„Í lok árs 2025 hófst borun á nýrri holu fyrir hitaveituna í Hveragerði. Sú hola verður virkjuð, enda vitað að þarna er bæði vatn og hiti,“ segja forsvarsmenn Veitna.
„Í lok árs 2025 hófst borun á nýrri holu fyrir hitaveituna í Hveragerði. Sú hola verður virkjuð, enda vitað að þarna er bæði vatn og hiti,“ segja forsvarsmenn Veitna.
Mynd / Veitur
Fréttir 17. febrúar 2026

Veitur efla jarðhitaleit

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Veitur auka jarðhitaleit og boranir á suðvesturhorni landsins.

Veitur hyggjast á næstu misserum og árum efla jarðhitaleit og bora eftir heitu vatni á nokkrum stöðum, m.a. frá Borg á Mýrum til Rangárþings eystra. Markmiðið er að tryggja nægt heitt vatn til húshitunar í takt við ört vaxandi samfélag og áætlaða fjölgun íbúða. Forsvarsmenn Veitna segja lagða áherslu á bæði aukna vinnslu á núverandi lághitasvæðum og þróun nýrra jarðhitaauðlinda.

Mestar vonir eru, skv. fregn af vefsíðu Veitna, bundnar við aukna vinnslu á núverandi lághitasvæðum í Lauganesi og á Reykjum í Mosfellsbæ, þar sem talið er líklegt að hægt sé að nýta meira heitt vatn til framtíðar. Á Geldinganesi hefur þegar fundist heitt vatn, en magnið hefur hingað til verið takmarkað og því er unnið að frekari borunum til að auka framboð.

Á Brimnesi á Kjalarnesi hefur fundist nýtanlegt magn heits vatns og rannsóknir halda áfram. Á Akranesi og á Borg á Mýrum er talið mögulegt að jarðhiti sé til staðar, en óvissa er um hvort vatnsmagn sé nægjanlegt. Þar beinist leitin að nýjum borholum til staðfestingar.

„Nýjustu rannsóknir á Akranesi gefa vísbendingar um að við Jaðarsbakka megi finna heitt vatn og þess vegna verður ein hola boruð þar í vor. Ef heitt vatn finnst á Borg eða við Jaðarsbakka á Akranesi verður það kærkomin viðbót við heita vatnið sem kemur frá Deildartungu og Bæjarsveit,“ segja Veitur.

Borun hófst á nýrri holu í Hveragerði í lok árs 2025 og verður hún virkjuð þar sem bæði vatn og hiti eru þegar þekkt. Í ár standa yfir, eða eru fyrirhugaðar, boranir í Lauganesi, á Reykjum, Geldinganesi og við Jaðarsbakka á Akranesi, sem fyrr segir. Ef holur reynast nýtanlegar geta liðið nokkur ár þar til heitt vatn fer inn á dreifikerfi hitaveitunnar.

3.750 holdakýr eru í landinu
Fréttir 25. febrúar 2026

3.750 holdakýr eru í landinu

Bændasamtök Íslands í samvinnu við Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) stóðu f...

111 bæir sérhæfa sig í eldi holdanauta
Fréttir 23. febrúar 2026

111 bæir sérhæfa sig í eldi holdanauta

Kýr á holdanautabúum eru 3.333 og fæddust 2.466 kálfar á þessum búum á síðasta á...

Nautin uxu hraðast á Efstalandi
Fréttir 23. febrúar 2026

Nautin uxu hraðast á Efstalandi

Daglegur vöxtur ungneytanna á Efstalandi í Öxnadal var að meðaltali 714,5 grömm ...

Feitur ostur getur minnkað hættu á heilabilun
Fréttir 23. febrúar 2026

Feitur ostur getur minnkað hættu á heilabilun

Samkvæmt nýrri rannsókn við Háskólann í Lundi er hægt að tengja neyslu á feitum ...

Hestur í kvöldmatinn?
Fréttir 23. febrúar 2026

Hestur í kvöldmatinn?

Íslenskt hrossakjöt er takmarkað og verðmætt hráefni þar sem framboð er sveifluk...

Áfram stutt við LED-væðingu garðyrkjubænda
Fréttir 18. febrúar 2026

Áfram stutt við LED-væðingu garðyrkjubænda

Loftslags- og orkusjóður úthlutaði nýverið rúmlega 118 milljónum króna í styrki ...

Reykjaböðin verða opnuð í vor
Fréttir 18. febrúar 2026

Reykjaböðin verða opnuð í vor

Nú styttist óðum í að Reykjaböðin opni, en um ræðir nýtt náttúrulón og heilsulin...

Ræktun á burnirót til fæðubótarframleiðslu
Fréttir 17. febrúar 2026

Ræktun á burnirót til fæðubótarframleiðslu

Hafin er ræktun á burnirót í Hnífsdal í þeim tilgangi að framleiða fæðubótarefni...