Flaggað á 50 ára afmælishátíð Hringvegar.
Flaggað á 50 ára afmælishátíð Hringvegar.
Mynd / Ársskýrsla Vegagerðarinnar 2024
Fréttir 16. febrúar 2026

Umferð jókst en ástand vega versnaði enn

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Árið 2024 reyndist viðburðaríkt, krefjandi og umfangsmikið fyrir Vegagerðina þar sem náttúruhamfarir, aukin umferð og stórar framkvæmdir mótuðu allt starfsár hennar.

Tólfta ársskýrsla Vegagerðarinnar, fyrir árið 2024, kom út í í lok síðasta árs. Þar segir að veðuröfgum, eldgosum og auknu álagi á vegakerfið hafi verið mætt samhliða rekstri, viðhaldi og mikilvægum framkvæmdum.

Jarðhræringar á Reykjanesskaga höfðu veruleg áhrif á verkefni ársins 2024. Alls gaus þá sex sinnum á Sundhnúkagígaröðinni, og þrisvar sinnum rann hraun yfir Grindavíkurveg, sem krafðist hraðra viðbragða, viðgerða og nýrrar tækni við að leggja vegi yfir nýrunnið hraun. Óveður og vatnsflóð settu einnig mark sitt á árið. Í lok júlí flæddi vatn yfir brú og veg við Skálm og loka þurfti Hringveginum í rúman sólarhring, og í nóvember féll stór aurskriða á Hnífsdalsveg eftir mikið vatnsveður.

Aukin umferð og sívaxandi álag

Umferðin hélt áfram að aukast og árið varð metár hvað heildarakstur varðar. Umferð jókst um tæp tvö prósent frá árinu áður og samtals voru eknir 3.236 milljón kílómetrar á þjóðvegakerfinu. Mesta umferðin var sem fyrr á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi þar sem eru um 67% allrar umferðar.

Á sama tíma versnaði ástand vegakerfisins víða vegna rysjótts veðurfars, aukinnar umferðar og uppsafnaðrar viðhaldsskuldar. Holumyndun, slitlagsblæðingar og rof verða sífellt algengari áskoranir. Skv. skýrslunni lagði Vegagerðin á árinu 2024 mikla áherslu á að vekja athygli á skorti á fjármagni til viðhalds og þeim áhrifum sem það hefur á burðarþol og örugga færð.

Lykilverkefni dreifðust

Á suðursvæði var árið 2024 unnið að styrkingum á Hringvegi, Biskupstungnabraut og fleiri köflum þar sem fræsingu, burðarlagsefnum og klæðningu var beitt til að bæta sléttleika og öryggi. Á sama svæði var haldið áfram vinnu við nýja Hringvegslínu austan Selfoss og gerð undirganga fyrir gangandi, hjólandi og hestamenn.

Á höfuðborgarsvæðinu hófust eða héldu áfram stór verkefni á borð við breikkun Reykjanesbrautar, undirbúning Sundabrautar og áframhaldandi framkvæmdir við Arnarnesveg, þar sem bæði ný brú og ný undirgöng eru hluti af heildarumferðarbótum.

Á vestursvæði stóðu yfir miklar framkvæmdir við Vestfjarðaveg á Dynjandisheiði og við Fjarðarhornsá og Skálmardalsá, þar sem nýjar brýr og endurbætur á vegum voru meginverkefni. Auk þess fór fram endurbygging á Karlseyjarbryggju í Reykhólahreppi.

Á norðursvæði var unnið að styrkingum og endurbótum á m.a. Aðaldalsvegi, Hegranesvegi og Ólafsfjarðarvegi, þar sem burðarlag og slitlög voru endurbætt og öryggisaðgerðir framkvæmdar á mörgum köflum.

Á austursvæði voru umfangsmestu verkin við Hringveg um Hornafjörð og Jökuldal, þar sem fræsingu, styrkingu og klæðningu var beitt á tugi kílómetra. Unnið var að viðgerðum í skriðum, endurnýjun ræsa og lagfæringum á lykilkafla milli Breiðdals og Fljótsdals.

Öryggi og þróun innviða

Fjallað er sérstaklega um umferðaröryggi í ársskýrslunni. Árið 2024 létust 13 einstaklingar í umferðinni í 10 banaslysum, sem er aukning frá árinu áður.

Sjálfvirkt meðalhraðaeftirlit í Hvalfjarðargöngum var tekið í notkun og ný undirgöng við Arnarneshæð opnuð til að bæta öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Þá var ráðist í margvíslegar lagfæringar á öryggissvæðum, vegrið sett upp eða lengd á tugi staða og merkingar bættar.

Á árinu var einnig kynntur til leiks nýr kolefnisreiknir, LOKI, sem metur kolefnisspor framkvæmda á hönnunarstigi. Stafræn umbreyting hélt áfram með uppfærslu veflausna, nýjum upplýsingakerfum og aukinni áherslu á aðgengilegar upplýsingar fyrir vegfarendur.

3.750 holdakýr eru í landinu
Fréttir 25. febrúar 2026

3.750 holdakýr eru í landinu

Bændasamtök Íslands í samvinnu við Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) stóðu f...

111 bæir sérhæfa sig í eldi holdanauta
Fréttir 23. febrúar 2026

111 bæir sérhæfa sig í eldi holdanauta

Kýr á holdanautabúum eru 3.333 og fæddust 2.466 kálfar á þessum búum á síðasta á...

Nautin uxu hraðast á Efstalandi
Fréttir 23. febrúar 2026

Nautin uxu hraðast á Efstalandi

Daglegur vöxtur ungneytanna á Efstalandi í Öxnadal var að meðaltali 714,5 grömm ...

Feitur ostur getur minnkað hættu á heilabilun
Fréttir 23. febrúar 2026

Feitur ostur getur minnkað hættu á heilabilun

Samkvæmt nýrri rannsókn við Háskólann í Lundi er hægt að tengja neyslu á feitum ...

Hestur í kvöldmatinn?
Fréttir 23. febrúar 2026

Hestur í kvöldmatinn?

Íslenskt hrossakjöt er takmarkað og verðmætt hráefni þar sem framboð er sveifluk...

Áfram stutt við LED-væðingu garðyrkjubænda
Fréttir 18. febrúar 2026

Áfram stutt við LED-væðingu garðyrkjubænda

Loftslags- og orkusjóður úthlutaði nýverið rúmlega 118 milljónum króna í styrki ...

Reykjaböðin verða opnuð í vor
Fréttir 18. febrúar 2026

Reykjaböðin verða opnuð í vor

Nú styttist óðum í að Reykjaböðin opni, en um ræðir nýtt náttúrulón og heilsulin...

Ræktun á burnirót til fæðubótarframleiðslu
Fréttir 17. febrúar 2026

Ræktun á burnirót til fæðubótarframleiðslu

Hafin er ræktun á burnirót í Hnífsdal í þeim tilgangi að framleiða fæðubótarefni...