Engin riða í heilasýnum
Fréttir 12. febrúar 2026

Engin riða í heilasýnum

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Engin merki um sauðfjárriðu var að finna í heilasýnum sem tekin voru í sláturhúsum um land allt haustið 2025.

Matvælastofnun tilkynnti um þetta á vef sínum þar sem fram kom að Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum hafi staðið að rannsóknunum.

Eitt riðutilfelli var staðfest á árinu 2025, í september á bænum Kirkjubóli í Skagafirði. Greindist það í kind sem sýndi grunsamleg einkenni heima á bæ og fór niðurskurður fram á hluta fjárins fljótlega eftir greiningu.

Í umfjöllun Matvælastofnunar kemur fram að ekki sé enn ljóst hversu margar kindur á bænum voru með riðu, þar sem rannsóknum á sýnum sé ekki lokið.

Niðurskurður var skipulagður samkvæmt landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu og gildandi reglugerðir þar um.

Nokkur hluti fjárins á bænum var með verndandi eða mögulega verndandi arfgerð gegn riðu sem hafði áhrif á ákvörðunartöku um umfang niðurskurðar.

3.750 holdakýr eru í landinu
Fréttir 25. febrúar 2026

3.750 holdakýr eru í landinu

Bændasamtök Íslands í samvinnu við Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) stóðu f...

111 bæir sérhæfa sig í eldi holdanauta
Fréttir 23. febrúar 2026

111 bæir sérhæfa sig í eldi holdanauta

Kýr á holdanautabúum eru 3.333 og fæddust 2.466 kálfar á þessum búum á síðasta á...

Nautin uxu hraðast á Efstalandi
Fréttir 23. febrúar 2026

Nautin uxu hraðast á Efstalandi

Daglegur vöxtur ungneytanna á Efstalandi í Öxnadal var að meðaltali 714,5 grömm ...

Feitur ostur getur minnkað hættu á heilabilun
Fréttir 23. febrúar 2026

Feitur ostur getur minnkað hættu á heilabilun

Samkvæmt nýrri rannsókn við Háskólann í Lundi er hægt að tengja neyslu á feitum ...

Hestur í kvöldmatinn?
Fréttir 23. febrúar 2026

Hestur í kvöldmatinn?

Íslenskt hrossakjöt er takmarkað og verðmætt hráefni þar sem framboð er sveifluk...

Áfram stutt við LED-væðingu garðyrkjubænda
Fréttir 18. febrúar 2026

Áfram stutt við LED-væðingu garðyrkjubænda

Loftslags- og orkusjóður úthlutaði nýverið rúmlega 118 milljónum króna í styrki ...

Reykjaböðin verða opnuð í vor
Fréttir 18. febrúar 2026

Reykjaböðin verða opnuð í vor

Nú styttist óðum í að Reykjaböðin opni, en um ræðir nýtt náttúrulón og heilsulin...

Ræktun á burnirót til fæðubótarframleiðslu
Fréttir 17. febrúar 2026

Ræktun á burnirót til fæðubótarframleiðslu

Hafin er ræktun á burnirót í Hnífsdal í þeim tilgangi að framleiða fæðubótarefni...