Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Hæna aflúsuð og mítlahreinsuð á eggjabúi í Hollandi.
Hæna aflúsuð og mítlahreinsuð á eggjabúi í Hollandi.
Fréttir 14. ágúst 2017

Mítlar ekki fundist í innihænum á Íslandi í marga áratugi

Höfundur: Vilmundur Hansen

Skordýraeitrið fipronil hefur nú fundist í eggjum í 15 ríkjum Evrópusambandsins og í Hong Kong. Efnið hefur verið notað til að drepa mítla og lýs á hænum en notkun þess er stranglega bönnuð í matvælaiðnaði. Mítlar hafa ekki fundist í búrhænum á Íslandi í marga áratugi.

Þorsteinn Sigmundsson formaður félags eggjabænda og eggjabóndi Elliðahvammi segir að vandamál með mítla hafi ekki verið vandamál í hænsna- eða eggframleiðslu á Íslandi í marga áratugi. „Ekki í búrhænum sem eru aldar innanhús. Þorsteinn segir að erlendis finnist mítlar helst í hænum sem fá að ganga úti enda smitist hænurnar utandyra. „Þetta er nýmóðins vandamál sem tengist lausagöngu á hænum eða það sem kallast Free range hænur. Mítlar og lýs þekktust á hænum á Íslandi í gamla daga þegar þær vor hýstar í fjósinu gengu lausar og lifðu á fjóshaugnum.“

Samkvæmt upplýsingu frá Hildi Traustadóttir hjá félagi eggjabænda hefur hún ekki upplýsingar um að mítíllinn sem um ræðir fundist í hænum á Íslandi. „Enda eggjahús á Íslandi lokuð og fuglinn verndaður inni í þeim því litlar líkur á að slík óværa komist inn í húsin.“

Mast skoðar innfluttar eggjaafurðir

Í tilkynningu á vef Matvælastofnunnar segir að heil egg  á markaði  hérlendis séu af íslenskum uppruna. Unnar eggjaafurðir, til dæmis gerilsneyddar eggjarauður, eggjahvítur og eggjaduft eru fluttar til landsins og samkvæmt athugun Matvælastofnunar eru þær upprunnar í Bretlandi, Danmörku, Hollandi og Þýskalandi.

Búið að innkalla milljónir eggja

Eggin sem umræðir koma aðalleg frá Hollandi. Eftir að uppkomst um notkun Fipronil á eggjabúum í Hollandi fyrri í sumar létu yfirvöld í Þýskalandi og víðar í Evrópu milljónir eggja frá Hollandi. Á annað hundrað eggjabúum í Hollandi hefur verið lokað vegna málsins.

Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, WHO, telst fiprolin til mjög hættulegra efna sem geta við inntöku valdið alvarlegum skemmdum á lifur, skjaldkirtli og nýrum svo dæmi séu tekin.

Smituð egg finnast víða í Evrópu

Við rannsókn málsins, sem er rannsakað sem glæpamál, hefur eggjabúum í auk Hollands verið lokað í Belgíu, Þýskalandi og Frakklandi og vitað er að egg frá þessum löndum hafa verið seld til Bretlandseyja, Svíþjóðar, Austuríkis. Írland, Ítalíu, Lúxemborg, Póllands, Rúmeníu, Slóveníu, Slóvakíu, Danmerkur og Sviss. Efnið hefur einnig fundist í eggjum í Hong Kong sem hafa verið flutt inn frá Hollandi. 

Tveir handteknir

Lögreglan í Holland í samvinnu við lögregluna í Belgíu hafa handtekið tvo menn í tengslum við málið. Þeir grunaðir um að hafa seld hænsnaaflúsunarefni sem var blandað með Fipronil til eggbænda með og án þeirra vitneskju. Talið er að efnið hafi verið notað árum saman til að drepa mítla í  hænum þrátt fyrir að notkun þess sé stranglega bönnuð í matvælaframleiðslu.
 

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...