Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Eldsmatur í skógunum er mikill og yfirleitt lítið hægt að gera til að stöðva þá.
Eldsmatur í skógunum er mikill og yfirleitt lítið hægt að gera til að stöðva þá.
Mynd / Pétur Halldórsson
Fréttir 20. september 2016

Malbikaður skógarstígur í Kristnesskógi

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Nýr malbikaður stígur, um 330 metra langur, hefur verið tekinn í notkun í Kristnesskógi.Umhverfis- og auðlindaráðuneytið veitti styrki til framkvæmdanna á þessu ári og því síðasta. 
 
Stígurinn verður kærkominn fyrir alla gesti skógarins en þwó ekki síst fólki sem nýtur aðhlynningar og endurhæfingar á Kristnesspítala þar sem er bæði endurhæfingardeild og öldrunarlækningadeild.
 
Styrkir veittir til verksins
 
Sjálfsbjörg á Akureyri sótti á sínum tíma í samvinnu við Skógrækt ríkisins um styrk til umhverfis- og auðlindaráðuneytis til að leggja stíg fyrir hreyfihamlaða í Kristnesskógi. Í byrjun síðasta árs veitti ráðuneytið 1,4 milljónir króna úr verkefnasjóði sínum á sviði umhverfis- og auðlindamála.
 
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða lagði að auki til hálfa milljón króna úr sérstakri fjárveitingu fyrir árið 2015. Þessi framlög nægðu til að hefja mætti verkið en í vor bættist við annar styrkur frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 2,4 milljónir, sem nægði til að ljúka við stíginn. Styrkir til verkefnisins nema samtals 4,3 milljónum króna.
 
Um hönnun stígsins sá Ingvar Ívarsson, landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf. á Akureyri, en Túnþökusala Kristins tók að sér framkvæmdina. Verkið hófst á liðnu hausti en stígurinn var malbikaður á liðnu sumri. 
Haft er eftir Rúnari Ísleifssyni, skógarverði á Norðurlandi, á vef skógræktarinnar að sá hluti Kristnesskógar sem stígurinn liggur um sé að mestu leyti gróðursettur á árunum um og upp úr 1950.
Helstu trjátegundir á svæðinu eru birki, sitkagreni og síberíulerki en tegundirnar eru talsvert fleiri sem ber fyrir augu og fjölbreyttur gróður í skógarbotni.
 
Gróður hefur jákvæð áhrif
 
Sjúkrahúsið á Akureyri rekur tvær deildir á Kristnesi, öldrunardeild og endurhæfingardeild, þar er góð aðstaða, m.a. þjálfunarsundlaug. Skógurinn veitir einnig tækifæri til þjálfunar og auknir möguleikar eru til þess með tilkomu nýja stígsins. 
 
Ingvar Þóroddsson, yfirlæknir endurhæfingardeildarinnar, segir á vef skógræktarinnar að stígurinn muni breyta miklu fyrir báðar deildir spítalans. Þarna komist fólk á hjólastólum eða með göngugrindur auðveldlega út í heilnæmt umhverfi skógarins. Fjölmargar rannsóknir hafi sýnt fram á jákvæð áhrif gróðurs, ekki síst skóga, á líðan fólks. Ingvar telur að með tilkomu þessa stígs verði komin aðstaða við Kristnesspítala sem sé einstök við sjúkrahús á Íslandi og til eftirbreytni. Hann tekur þó skýrt fram að þessi stígur sé ekki fyrir spítalann einan. Hann verði opinn öllum og allir velkomnir að nota hann, enda er Kristnesskógur þjóðskógur. 
 

Skylt efni: Kristnesskógur | Kristnes

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...