Góður samhljómur fyrir búvörusamningana
Á deildarfundi sauðfjárbænda var Eyjólfur Ingvi Bjarnason endurkjörinn formaður til næstu tveggja ára án þess að mótframboð bærist.
Nýja stjórn skipa þau Ásta Fönn Flosadóttir og Birgir Haraldsson, árin 2025 til 2027, og Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Sigurborg Hanna Sigurðardóttir fyrir árin 2026 til 2028. Fráfarandi stjórnarmaður er Magnús Helgi Loftsson, en Þuríður Lillý kemur ný inn í stjórn.
Tollamálin mikilvæg sauðfjárbændum
Eyjólfur segir að fundurinn hafi gengið vel. „Það var góður samhljómur í fulltrúum og alveg skýrt hvað við viljum sjá til framtíðar. Við förum nú í markvissa vinnu með Bændasamtökunum fyrir komandi búvörusamningagerð.“
Hann segir að staða sauðfjárbænda hafi lagast aðeins að undanförnu en það sé ýmislegt í óvissu nú með boðaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við Evrópusambandið. „Þar er kannski ekki endilega stuðningsumhverfi Evrópusambandsins sem skiptir mestu máli heldur tollamálin. Verði brottfall á tollum í hinum kjötgreinunum mun það væntanlega leiða til lækkunar á sauðfjárafurðum líka á Íslandi. Tollverndin skiptir okkar grein miklu máli líka.
Sauðfjárrækt er víða undirstaða byggðar í dreifbýli og það ekkert samfélag sterkara en veikasti hlekkur þess. Ég vonast því til að samdrættinum sé lokið og við getum farið að spyrna við.“
Rafrænt kjötmat mikilvægt
Þegar Eyjólfur er beðinn um að nefna sérstök mál sem standi upp úr frá fundinum, segir hann að samningsmarkmið búvörusamninganna hafi verið mikilvægt mál. Þar er lagt til að ekki verði gerðar verulegar breytingar á núverandi stuðningskerfi, þar sem almenn sátt ríki um núverandi fyrirkomulag ríkisstuðnings við sauðfjárframleiðslu.
„Það er líka hægt að nefna tillöguna um rafrænt kjötmat, sem mun leiða til mikilla framfara ef allt virkar eins og það á að virka. Þá hverfur hið huglæga mat út úr ferlinu og í staðin koma mældar stærðir. Við gerum ekki ráð fyrir því að það verði búið að innleiða þetta næsta haust en vonandi haustið 2027 ef allt gengur upp. Það hefur auðvitað lengi verið tortryggni gagnvart þessu hefðbundna kjötmati og sjálfsagt verður tortryggni út í þetta líka – í það minnsta tilað byrja með.“ /smh
