Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
100% rafmagnsdrifinn Benz Sprinter
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 14. desember 2021

100% rafmagnsdrifinn Benz Sprinter

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson - liklegur@internet.is

Í gegnum árin hafa margir Íslendingar verið hrifnir af Mercedes-Benz Sprinter sem sendibílum, pallbílum og húsbílum. Sjálfur á ég einn slíkan, 18 ára öðling sem ég nota nánast daglega sem sendibíl, farartæki sem kemur mér í og úr vinnu og húsbíl.

Alltaf hefur mér líkað vel við Sprinter að flestu leyti fyrir utan að aldrei hef ég verið að fullu sáttur við ökumannssætið fyrr en mér bauðst að prófa nýjasta útspil Benz af Sprinter sem er 100% rafdrifinn sendibíll.

Vörulyftan fór létt með mann og hjól sem er um 350 kg.

Framhjóladrifinn með 47 kWh rafhlöðu

Þegar ég fékk bílinn var aðeins búið að keyra hann 25 km og daginn áður hafði hann verið settur á ónegld vetrardekk þannig að ég taldi mig vera í nokkuð góðum málum. Bíllinn fullhlaðinn, þegar ég kveikti á honum sagði mælaborðið mér að drægnin væri 98 km. Mér fannst í fyrstu þetta vera fulllítil drægni, en í mjög mörgum tilfellum ætti þessi drægni að duga fyrir daglega notkun og sérstaklega fyrir sendibílaakstur með léttar vörur á milli staða hjá mörgum fyrirtækjum sem eru mest í borgarakstri einum.

Eins og flestir aðrir rafmagnsbílar má sjá í mælaborðinu við alla rafmagnsnotkun hvað drægnin styttist við aðra notkun á rafmagni en drifmótor. Það rafmagn sem „stelur“ mest af drægninni er nánast undantekningarlaust miðstöðin í bílnum, en bara við það að stilla miðstöðina á 22 gráðu innihita og blásturinn á 3 af 7 sýndi mælaborðið að þetta mundi minnka drægnina úr 98 km í 86 km, en þar sem ég var ágætlega klæddur ákvað ég að spara rafmagnið og drap á miðstöðinni í byrjun og prófaði bílinn á möl, í hálku og hávaðamældi bílinn á 90.

Rafhlaðan er undir bílnum endilöngum og því þyngdarpunktur neðarlega.

Hávaðamælingin kom vel út, en rak mig á hættu í mikilli hálku

Hávaðamælingin var alveg ásættanleg, 71,2 db., en til samanburðar þá mældist Maxus sendibíllinn 74,1db., en hann er eini samanburðurinn sem ég hef í rafmagnssendibíl. Á malarvegi var fjöðrunin alveg í lagi, framhjóladrifið er jafnvel aðeins betra á þessum í samanburði við hefðbundnu afturhjóladrifnu Sprinter-dísilbílana gömlu.

ABS bremsukerfið var að virka fínt á möl og í hálku, en á flughálum kafla varð ég var við hættu sem eflaust innflytjandinn og framleiðandinn hafa sennilega ekki áttað sig á.
Flestir rafmagnsbílar eru þannig að þegar slegið er af þá hleður bíllinn inn á rafhlöðuna, en það er mismikið hvað þessi hleðsla bremsar bíla mikið við að slá af. Þegar ég sló af á flughálum vegi á ónegldum dekkjunum læstust framhjólin og bíllinn byrjaði að leita út í kant. Ég náði því ekki fullri stjórn á bílnum fyrr en ég hafði sett hægri fótinn aðeins á gjöfina, en þá hætti bremsunin og ég náði að stýra bílnum eðlilega. Þarna hefði sennilega verið betra að hafa nagladekk til að gefa betra grip.

Pínulítil bakkmyndavél er í baksýnisspeglinum.

Frekar þungur bíll sem minnkar hleðslugetuna

Bíllinn er frekar þungur og 116 hestafla vélin frekar „letileg“ að koma bílnum áfram, aksturskerfin eru þrjú, E, E+ og C, en mér fannst bíllinn snarpastur í C stillingunni, en þá eyðir hann meira rafmagni (minnst virtist mér hann vera að eyða, eða telja niður kílómetra í mælaborðinu með stillt á E+ stillinguna á). Flestir Sprinter bílar eru með hleðslu og burðargetu upp á 1.000 til 1.300 kg, en þar sem rafhlaðan er þung undir endilöngum bílnum og í ofanálag búið að setja vörulyftu aftan á bílinn sem var prófaður er burðargetan á „rafmagns-Sprinternum“ ekki nema á bilinu 600-700 kg. Vörulyftan aftan á bílnum stelur smá þyngd til að hlaða bílinn, en er auðbeld í notkun og léttir eflaust mörg handtökin og burðinn (kostar nálægt 1.000.000 aukalega ofan á innkaupsverð bílsins).

Í lokin var ég sáttur við bílinn fyrir utan að drægnin mætti vera meiri.Bíllinn heitir Benz Sprinter 312, með 47kWh rafhlöðu, kostar frá 9.290.000 og er uppgefinn með drægni upp á 155 km við bestu aðstæður. Ég var alsæll með bílstjórasætið, rafmagnsmiðstöðin fljót að hita bílinn upp að innan. Þægilegt að keyra bílinn.

Það sem ég get sett út á er að það vantar varadekk, lítil hleðslugeta og drægnin hjá mér í kuldanum entist ekki vel. Ég keyrði bílinn alls 71,2 km og samkvæmt mælaborði átti ég eftir 13 km, en í byrjun sýndi mælaborðið að í boði væru 98 km þannig að miðað við það, þá telur mælaborðið tiltölulega rétt niður, en mesta aukaeyðslan var miðstöðin og sætishitarinn sem „stálu“ af mér nálægt 10-15 km.

Helstu mál og upplýsingar:

Hæð 2.610 mm
Breidd 2.345 mm
Lengd 4.325mm

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...