Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Steypuvinna við Steinavötn.
Steypuvinna við Steinavötn.
Mynd / Ístak
Fréttir 26. apríl 2021

Alls eru 32 einbreiðar brýr eftir á Hringvegi 1

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdótttir

Áfram verður haldið við að fækka einbreiðum brúm á Hringvegi 1 nú í ár, en skipulega hefur verið unnið að því markmiði, bæði hvað varðar Hringveginn og eins landið allt á liðnum árum. Nokkurt hlé varð þó á verkefninu á árunum eftir 2011. Áform eru nú um töluverðar framkvæmdir í þessum efnum næstunni, að því er fram kemur í Framkvæmdafréttum sem Vegagerðin gefur út.

Fyrir um 30 árum, árið 1990 voru hátt í 140 einbreiðar brýr á Hringvegi, þeim fækkaði hratt, voru orðnar um 60 talsins kringum árið 2006 og árið 2011 voru þær ríflega 40. Síðan þá hægðist mjög á slíkum framkvæmdum, undanfarin átta ár hafa aðeins verið breikkaðar eða byggðar nýjar brýr í stað 6 einbreiðra brúa.

Árið 2019 voru byggðar sjö brýr í stað einbreiðra brúa á landinu öllu. Þetta voru brýr í Berufjarðarbotni, yfir Hófsá í Arnarfirði, yfir Mjólká í Arnarfirði, brú á Eldvatn og yfir Loftsstaðaá í Flóa, einnig brú yfir Breiðdalsá og stokkur fyrir Tjarnará á Vatnsnesi.

Bráðabirgðabrú og ný brú yfir Brunná. Mynd / Ísak


Lokið við fjórar nýjar brýr á Hrinvegi

Í lok árs 2019 voru boðnar út fjórar brýr á Hringvegi; brú yfir Steinavötn í Suðursveit sem er 100 metra löng, brú á Fellsá í Suðursveit sem er 47 metrar, brú á Kvíá í Öræfum sem er 32 metra löng og brú á Brunná aust­an Kirkjubæjar­klausturs sem er 24 metrar. Fram­kvæmdir við þessar brýr hófust vorið 2020 og er þeim nú lokið eða við það að ljúka. Þar með hefur einbreiðum brúm á Hringvegi 1 fækkað í 32 auk bráðabirgðabrúar yfir Fellsá sem enn er uppistandandi og þjónar vegfarendum en verður rifin þegar umferð verður hleypt á nýju brúna í vor.

Nú í ár mun einbreiðum brúm enn fækka, en búið er að bjóða út nokkur verkefni. Þar má nefna byggingu brúar yfir Jökulsá á Sólheimasandi en einnig stendur til að fara í framkvæmdir við brýr yfir Hverfisfljót, Súlu (Núpsvötn) og Skjálfandafljót. Þá er fyrirhugað að bjóða út fyrsta samvinnuverkefnið um vegaframkvæmdir en það er nýr vegur og brú yfir Hornafjarðarfljót.
663 einbreiðar brýr á landinu

Einbreiðar brýr eru þó víðar en á Hringvegi en alls eru 663 einbreiðar brýr á landinu. Árið 2020 voru breikkaðar brýr á Hattardalsá, Hvítsteinslæk, Álftárbakkaá, Kálfalæk á Mýrum og Hrútá. Þá eru núna í framkvæmd nokkrar brýr utan Hringvegar eins og Botnsá í Tálknafirði, Bjarnadalsá í Önundarfirði, Vesturhópshólaá, Laxá í Laxárdal og Köldukvíslargil. Önnur verkefni sem stendur til að fara í eru: Bakkaá hjá Keisbakka, Þverá, Hólkotsá, Otradalsá, Þverá á Langadalsá, Ólafsdalsá, Efri Skarðsá, Sandalækur í Miðfirði, Fossá í Jökulsárhlíð og Helgustaðaá. 

Nýja brúin yfir Kvíá. Mynd / Ísak

Kort sem sýnir framkvæmdasvæðin.