Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Vísnahornið
Menning 8. júní 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Vísnagáta þessi er kennd fleiri en einum og trúlega orðin aldargömul:

Áðan hitti maður mig.

Mátti að nafni leita.

Trúfastur við sjálfan sig

sagðist karlinn heita.

Þessa vísu orti María Bjarnadóttir sem var dótturdóttir Bólu-Hjálmars:

Vermir lund sem vordags blær

vinafunda gaman.

Margra stunda minning fær

muna bundið saman.

Páll Jónsson sem kallaður var skáldi mun hafa þótt kærulaus prestur. Gáfumaður talinn, reikull í ráði og nokkuð drykkfelldur, en hagmæltur þó ekki hafi allt þótt prestlegt:

Andskotans hef ég axlarverk,

enginn það læknað getur,

utan þín heillahöndin sterk.

Heyrðu það! Skrattatetur.

Eitt sinn mun Páll skáldi hafa verið staddur í Rvk. og kaupmaður neitað honum um tóbak, en guggnaði við þessa vísu Páls og lét í té tóbak:

Ef mig lætur arka af stað

austur tóbakslausan,

bið ég sjálfan Satan

að sjóða þig í pausann.

Sagt er að þessa vísu hafi Páll ort á köldu vori þegar allt var heylaust:

Máttugur er góður Guð að gefa hláku

af útsuðri með enga bliku

og hana láta standa í viku.

Þessi vísa mun vera eftir Jón Einarsson á Syðri-Rauðamel, Snæfellsnesi:

Enginn stafur um það sást

í öllum boðorðunum,

hvort að maður matarást

mætti fá á konum.

Og þessi eftirmæli um gæðing mun Jón á Syðri-Rauðmel hafa ort:

Hvar sem sást í fákafans

fremst af öllum bar hann.

Augasteinninn eigandans

alla daga var hann.

Ekki veit ég um hvern Elivoga Sveinn yrkir svona lofgjörð, eða hvort þetta var á annað borð lof:

Ættarsvip af Agli ber hann.

Orðaleikni Grettis sterka.

Spaki Njáll til anda er hann.

Ólafur pá til rausnarverka.

Elivoga Sveinn virðist hér hafa verið nægjusamur varðandi skáldalaun:

Mér ég teldi mesta hnoss.

Mundi draga úr raunum

ef ég héldi að hálfan koss

hlyti að bragalaunum.

Ekki var nú kerskni í öllum vísum Sveins eins og þessi staka ber með sér:

Austri skreytir árdags blik

andar heiti blærinn.

Allt um sveitir kemst á kvik.

Klæðum breytir særinn.

Menn kunnu hér áður að lýsa mörkum í bundu máli, eins og þessi vísa Jóns Gottskálkssonar Skagaskálds ber með sér:

Aftan sneitt og undir gat er á því hægra.

Stýft skal á hinu vinstra vera.

Vel munu kindur þetta bera.

Jón bjó í Ketuseli á Skaga um tíma og orti þessa og lýsti sínum vonum:

Búið verður býsna vel

og borðað spaðið feita,

þegar karl í Ketusel

kemst til rólegheita.

Jón orti þegar hann náði sér í kærustu sem ekki tolldi þó lengi í Ketuseli:

Hunangsart á vörum var

veigabjartri línu

en eitursvarta orminn bar

innst í hjarta sínu.

Umsjón: Magnús Halldórsson mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 27. ágúst 2026

Stjörnuspá vikunnar

Meyjan þarf að muna að enginn mannlegur einstaklingur er gallalaus. Hvorki hún s...

Vaðmál og voðir
Líf og starf 26. ágúst 2026

Vaðmál og voðir

Bör Börsson, söguhetja samnefndrar skáldsögu sem flutt var í Ríkisútvarpinu árin...

Þeir skora sem þora!
Líf og starf 25. ágúst 2026

Þeir skora sem þora!

Hart var barist fram á síðasta spil og úrslit tvísýn í viðureign Vestra gegn Kjö...

Teflt erlendis
Líf og starf 25. ágúst 2026

Teflt erlendis

Íslendingar hafa verið iðnir við að tefla erlendis í sumar eins og venjan er. Þó...

Hvað er svona merkilegt  við íslensku ullina?
Hannyrðahornið 24. ágúst 2026

Hvað er svona merkilegt við íslensku ullina?

Landnámsmenn sem fóru þarna forðum frá Skotlandi, Noregi og víðar og héldu í nor...

Vísnahornið
Líf og starf 24. ágúst 2026

Vísnahornið

Stera-Pétur læknir fékk sitt auknefni vegna ummæla er féllu, varðandi notkun kra...

Fegursta kona landsins
Líf og starf 24. ágúst 2026

Fegursta kona landsins

Þeir stóðu inni í húsi biskups óðir af reiði og bjuggust til að útkljá málin í e...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 19. ágúst 2026

Lausn á vísnagátunni

Hér er lausn á vísnagátunni sem birtist í 14. tölublaði Bændablaðsins.