Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Öllu er haganlega fyrir komið á tónlistarsafninu í Bíldudal og á safnstjórinn sjálfur, Jón Kr. Ólafsson, heiðurinn af því.
Öllu er haganlega fyrir komið á tónlistarsafninu í Bíldudal og á safnstjórinn sjálfur, Jón Kr. Ólafsson, heiðurinn af því.
Menning 7. júní 2023

Melodíur minninganna

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Tónlistarsafnið Melódíur minninganna var formlega opnað þann 17. júní um síðustu aldamót – með pomp og prakt! Um er að ræða afar áhugavert og lifandi safn tónlistarmannsins Jóns Kr. Ólafssonar, á heimili hans að Reynimel – á Bíldudal við Arnarfjörð.

Hefur safnið að geyma hinar ýmsu gersemar, en Jón hefur um árabil safnað munum og heimildum íslenskrar tónlistarsögu. Má þar til dæmis finna innrammaðar hljómplötur, hljóðfæri, plötur og búninga sem áður voru í eigu tónlistarmanna á borð við Ellý Vilhjálms, Hauk Morthens, Ragga Bjarna og Stuðmanna – auk annars – og geta gestir notið þess að gleyma sér í tónlistartengdum minningum áratuga áður. Er öllum munum stillt upp á faglegan og aðgengilegan hátt og ljóst er að þarna er bæði ástríða og kunnátta að baki. Á vefsíðu Vesturbyggðar kemur fram að:

„... á safninu má sjá rauða jakkann hans Hauks Morthens og fyrstu plötu Bjarkar, Arabadrenginn auk ýmissa muna frá íslensku tónlistarlífi sjötta til áttunda áratug síðustu aldar. Á safninu er að finna ljós-myndir úr tónlistarlífinu á Íslandi, klæðnað og hluti frá þekktu tónlistarfólki, plötur, persónulega muni, auglýsingaplaköt og ótalmargt fleira. Sögubrot í formi mynda, muna og tónlistar sem ella væri horfið úr íslenskri tónlistarsögu. Á safninu er einnig unnt að nálgast tónlist Jóns Kr. Ólafssonar til sölu.“

Stigið inn í ævintýraheim

Safnstjórinn Jón á nefnilega sjálfur langan feril að baki í tónlistarbransanum, þá helst þekktur sem söngvari, en margir kannast við hljómsveitina Facon sem gaf út afar vinsælt efni. Naut fólk þess um árabil að hlýða á Jón syngja m.a. bæði á Hótel Borg og Hótel Sögu, svo eitthvað sé nefnt, en árið 1983 gáfu SG-hljómplötur út plötu þar sem hann syngur kunn einsöngslög við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar.

Jón hefur yfir ævina myndað vináttubönd við aðra tónlistarmenn, eins og eðlilegt er, og er safnið tileinkað því listafólki sem hefur orðið á vegi hans yfir árin. Hefur heimili Jóns yfir sér notalegan blæ en inn af sýningarsalnum kemur fyrir að fólki sé gjarnan boðið í betri stofuna og spjallað um ævintýraheim tónlistarinnar. Ef til vill er hljómplata sett á fóninn og gamlar og góðar minningar rifjaðar upp, en safnstjórinn kann ótal sögur og frásagnir sem gaman er, og fróðlegt að hlýða á.

Áskorun

Tónlistarsafnið Melódíur minninganna má segja að kveiki í manni ýmsa elda. Töfra tónlistarinnar vissulega. Til jafns hugsjónastarfs Jóns, sem setur taktinn fyrir því hvernig einstaklingur getur upp á sitt einsdæmi gætt mikilvægra menningarverðmæta án opinbers fjárstuðnings, þó ekki vaði hann í seðlum sjálfur.

Mætti segja að tilvera tónlistarsafnsins á Bíldudal sé áminning þess efnis, áskorun til þeirra sem ættu að telja það mikilvægt að varðveita sögu okkar Íslendinga – að líta til þeirra sem með ástríðu gæta menningarinnar og leggja þeim lið.

Hægt er að sækja tónlistarsafnið heim alla daga að Tjarnarbraut, Reynimel, á Bíldudal, nema laugardaga, á milli klukkan 13-18. Til viðbótar má ná í Jón í símum 456 2186 /847 2542.

Skylt efni: söfnin í landinu

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 11. júní 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn er fullur af nýrri orku og tilbúinn í ævintýri – já, jafnvel ástaræv...

Aldagömul tíska?
Líf og starf 9. júní 2026

Aldagömul tíska?

Langar perlufestar, lágt mitti og víðar buxur einkenna nútíma- samfélag um þessa...

Hilmir Íslandsmeistari í skák
Líf og starf 9. júní 2026

Hilmir Íslandsmeistari í skák

Hilmir Freyr Heimisson varð á dögunum Íslandsmeistari í skák í fyrsta sinn. Hilm...

Vinningsleið í vondri legu
Líf og starf 9. júní 2026

Vinningsleið í vondri legu

Þeir voru nokkuð niðurlútir sumir AVspilararnir sem fóru niður á 6 gröndum í spi...

Sjómannadagurinn
Fréttir 3. júní 2026

Sjómannadagurinn

Á þessum árstíma, fara viðburðir um land allt að skjóta upp kollinum og kennir m...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 1. júní 2026

Lausn á vísnagátunni

Hér er lausn við vísnagátunni úr 10. tölublaði Bændablaðsins.

Svar við loftmyndagetraun
Líf og starf 1. júní 2026

Svar við loftmyndagetraun

Í loftmyndagetrauninni að þessu sinni voru lesendur beðnir um að bera kennsl á í...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 1. júní 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn finnur hvernig skapandi hugmyndir hans fá nú loksins byr undir báða ...