Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Vísnahornið
Líf og starf 22. júní 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Nýlega kom út kver sem nefnist, Eitt og annað, en Þórarinn Eldjárn birtir þar nýjar stökur og kviðlinga. Alveg bráðskemmtilegt efni, svo maður gleymir sér við lestur:

Skyldi það vera skipulagsslys

sem skapar okkar vanda

að milli himna og helvítis

vor heimur skuli standa?

Og Þórarinn segir um breytingarnar:

Ég veit ekki neitt um neitt

og næ ekki að komast í feitt

því allt svona yfirleitt

er einhvern veginn breytt.

Hringhenda snjöll frá skáldinu:

Með sér elur margur sveinn

margt sem felur hraður.

Það sem telur afleitt einn

annar velur glaður.

Hér yrkir Þórarinn um vorverk sólar:

Þegar hörfa hret og kul

hlýnar í laut og bala.

Sólin vinnuvélagul

verkin lætur tala.

Jón Ingvar Jónsson var líka skáld með góðan húmor, en áhugalítill um leikfimi í æsku og orti þegar hann leit inn um dyr á íþróttasal, þar sem við blöstu gólfæfingar:

Reigja búkar háls og hupp,

hefst þá sjúka atið.

Brosi ljúka allir upp

út um kúkagatið.

Fyrir stúdentsprófið orti Jón:

Fólkið hefur furðumargt,

-fæst með geði ljúfu-,

ansi mikið á sig lagt

aðeins fyrir húfu.

Á ferð með kvæðamannafélginu Iðunni, orti Jón þessa vísu:

Yfir kæra frónið fríða

furðuléttir enn

gúmmídekkja griðung ríða

gamlir kvæða menn.

Fyrir daga nútíma ferðahraða sem margir vilja heldur auka en hitt, var langt ferðalag yfir marga sandana. Þorsteinn Einarsson á Höfðabrekku orti um sinn uppáhaldsgæðing:

Þó við eigum langt í land

létt er ennþá sporið.

Margoft yfir Mýrdalssand

mig hefur Skjóni borið.

Til er frásögna af því að séra Páll, prófastur í Hörgsdal hafi farið á 4. v. fola af Eyrarbakka og austur á Síðu. Klerkur orti um þá reið, röska 200 km á einum sólarhring einhesta:

Af Eyrarbakka utan stanz

-æði töf með stuttri-

frá miðaftni til miðaftans

mig í hlaðið flutti.

Umsjón: Magnús Halldórsson mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Vísnahornið
Líf og starf 3. nóvember 2026

Vísnahornið

Sigrún Haraldsdóttir lýsir ástkærri fósturjörð okkar í góðri stöku: Er af grjót...

Leiðtogar og landbúnaður
Líf og starf 2. nóvember 2026

Leiðtogar og landbúnaður

Þegar Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov (eða Garbatsjov eins...

Dagur sauðkindarinnar
Líf og starf 30. október 2026

Dagur sauðkindarinnar

Dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu fór fram 10. október síðastliðinn. Fjöl...

Grikk eða gott?
Líf og starf 29. október 2026

Grikk eða gott?

Í tilefni hrekkjavökudagins sem nú hefur hægt og sígandi fest sig í sessi hérlen...

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...