Viðburðir næstu daga
Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það til hliðsjónar mun í næstu blöðum birtast yfirlit yfir helstu skemmtanir og húllumhæ hérlendis.
Hér fyrir neðan má sjá brot af því helsta sem er á döfinni næstu tvær vikurnar, fyrir þá sem vilja gera sér dagamun, en um auðugan garð að gresja og næsta víst að ekki komist allt á lista. Fyrir þá sem vilja koma á framfæri hvers konar skemmtunum, opnunum eða uppákomum, má hafa samband í gegnum netfangið sigrunpeturs@bondi.is og við reynum okkar besta til að koma því að.
17.–20. júní Bíladagar á Akureyri Bíladagarnir fara fram að venju með pomp og prakt en um ræðir einn stærsta íþróttaviðburð sinnar tegundar sem haldinn er hérlendis.
17. júní Þjóðhátíðardagur Íslands, 17. júní, er haldinn hátíðlegur ár hvert um allt land svo nærri má geta að heilmikil stemning verði víða um landið. Eins og landsmenn muna etv. er þessi dagur fæðingardagur Jóns Sigurðssonar helsta leiðtoga Íslendinga í sjálfstæðisbaráttunni og árið 1944 valinn stofndagur lýðveldisins. Síðan hefur hann verið opinber þjóðhátíðardagur og almennur frídagur, þar sem landsmenn gleðja sig og aðra með miklu húllumhæi og hátíðarblæ.
(17.-)19.-21.júní Sólstöðuhátíðin á Kópaskeri Kópaskersbúar standa fyrir grilli á föstudeginum og á laugardeginum verður 50 ára afmæli Kópaskersskjálftans minnst með jarðskjálftamessu kl. 14:00 í Snartarstaðakikju. Þar sem 17. júní er á miðvikudegi fyrir Sólstðuhátíð hefur verið tekin ákvörðun um sameiningu þessara hátíða en 17. júní ratleikurinn mun fara fram yfir helgina.
17.– 21. júní Tónlistarhátíðin Við Djúpið Haldin verður hin sívinsæla kammmertónlistarhátíð á Ísafirði þar sem ný og gömul tónlist mætast. Tónlistarmenn frá ýmsum hornum heimsins troða upp og boðið verður upp á masterclass í kammertónlist og söng á leiksviði, vinnustofu fyrir söngvaskáld auk þess sem börnum býðst að sækja tónlistarleikjanámskeið.

18.– 21. júní Hinsegin hátíð Norðurlands eystra Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin í dagana 18.–21. júní 2026, en á hátíðinni verða hinir ýmsu viðburðir á borð við Innblástur: (stúdentahreyfinguna og mikilvægi þess að taka pláss) og námskeið um hvernig best er að bregðast við fordómum svo eitthvað sé nefnt.
19. júní Kirkjugarðar Reykjavíkur Kirkjugarðar Rekjavíkur bjóða upp á fjölbreyttar fræðslugöngur í allt sumar, en þann 19. Júní leiðir umsjónarmaður Hólavallagarðs, Heimir Janusarson göngu undir formerkinu Konur í manna minnum - birtingarmynd kvenna í kirkjugarði, með baráttudag kvenna í huga. Verð kr.1500, mæting 17:30.
19. júní Sumarsólstöðuganga að Stapavík. Þann 19. júní stendur Ferðafélag Fljótsdalshéraðs fyrir sumarsólstöðugöngu, en lagt verður af stað kl. 20:00 frá skrifstofu Ferðafélags Fljótsdalshéraðs, Tjarnarási 8. Gangan er auðveld, eftir vegaslóða en vegalengdin er 10 km. Verð 1000 kr. og skráning á ferdaf@ferdaf.is.
19.-20. Júní Mótorhjóladagar á Akureyri Hjóladagar Tíunnar fara fram að árlegri vennju, en Mótorhjólaklúbburinn Tían stendur fyrir viðburðinum og er boðið upp á fjölbreytta dagskrá sem hentar öllu áhugafólki um vélhjól. Nánari upplýsingar er að finna á facebooksíðu Tíunnar.
19.-21. júní Miðnætursólarinnar á sólstöðuhátíð Grímseyjar verður notið ... ef hún lætur sjá sig! Ferjan Sæfari siglir á milli Dalvík og Grímseyjar mánu-, miðviku-, fimmtu-, föstu- og sunnudaga. Athugið að einungis er hægt að bóka bíla í ferjuna með því að hringja í síma +354 853-2211 eða senda á netfangið saefari@vegagerdin.is. Einnig býður Norlandair upp á flug þriðju- og sunnudaga í sumar, fram og til baka sömu daga.
20. júní Sumarsólstöður á Snæfellsjökli Ferðafélag Íslands stendur fyrir göngu á jökulinn í fararstjórn Örlygs S. Sigurjónssonar. Mæting er kl. 18:30 á Arnarstapa, framan við minnisvarða um Bárð Snæfellsás, hægt er að leigja jökulbúnað hjá FÍ en gangan er um 14 km. Sextán ára aldurstakmark er í gönguna og kostar hún 23.000kr fyrir félagsmenn en 31.000 fyrir almenning.

21. júní Sumarsólstöðuhátíð Skaftfells, Seyðisfirði Skaftfell býður til líflegrar götuhátíðar með fjölbreyttu úrvali af afþreyingu og gjörningum fyrir fólk á öllum aldri.
Dagskráin hefst klukkan 17 með barnahorni og götumarkaði, en síðan fara fram helgisiðir tengdir sólstöðum í mismunandi menningarheimum. Að lokum verður götunni (regnbogagötunni) breytt í dansgólf fram til klukkan 21.
20. júní Flugdagur Flugsafns Íslands Akureyrarflugvelli Flugdagur Flugsafnsins hefur verið haldinn árlega síðan árið 2000, nú á á milli kl. 13-16.00.
20. júní Sæludagur í Hörgársveit Sæludagurinn í Hörgársveit er árleg fjölskylduhátíð þar sem von er á fjölbreyttri dagskrá fyrir alla aldurshópa; leikir, skemmtun, hópreið, ball, markaður eða notaleg stund með nágrönnum og vinum.
20. júní Skógardagurinn mikli Fjölskylduhátíðin vinsæla í Hallormsstaðarskógi þar sem að venju verður haldið Íslandsmót í skógarhöggi, grillveisla, ketilkaffi og skemmtilegheit. Um ræðir árlega skógarhátíð Félags skógarbænda á Austurlandi, Barra, Héraðs- og Austurlandsskóga, Skógræktarfélags Austurlands og Skógræktar ríkisins, sem er haldinn í Mörkinni í Hallormsstaðaskógi.
22.-23. júní Háskóli Íslands Ráðstefnan Whales and Humans fer fram í Háskóla Íslands.
25. júní Hvalasafnið á Húsavík Hin árlega Hvalaráðstefna Hvalasafnsins fer fram þann 25. júní á Stéttinni og nú hefur dagskráin litið dagsins ljós. Fjöldi fróðlegra erinda sem verður gaman að heyra. Að þessu sinni er ráðstefnan unnin í samstarfi við aðra ráðstefnu sem nefnist Whales and Humans, sjá hér að ofan.
25.-27. júní Brákarhátíð Hin sívinsæla sumarhátíð Borgarness, Brákarhátíðin verður haldin hátíðleg og mikið um að vera að venju.
