Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Skrifað í stjörnur komandi árs
Líf og starf 31. desember 2022

Skrifað í stjörnur komandi árs

Völva Bændablaðsins leit yfir komandi ár með stjörnumerkin til hliðsjónar, en merkin eiga það sameiginlegt á árinu 2023 að þurfa að velta því fyrir sér hvar þau standa í lífinu. Er lífið á þann hátt sem þú helst kýst? Er hamingja og sátt í fyrirrúmi eða langar þig að breyta einhverju? Samkvæmt tunglstöðu í byrjun árs býr þar kraftur á borð við holskeflu sem ætti að geta ýtt öllum draumum úr vör. Og þannig er það nú með drauma – allir byrja þeir einhvers staðar. Áberandi í krafti ársins 2023 er aukið sjálfstraust í bland við hógværð og elju. Setjum hroka og yfirgang í aftursætið og hefjum vegferð með nýja sýn í bakpokanum, öryggi, ró og yfirvegun. Trúum því að draumar okkar rætist.

Vatnsberi

Mikil velsæld er í stjörnum vatnsberans á komandi ári og peningaáhyggjur minnka svo um munar. Traustar stoðir virðast ríkja í nánum samböndum, bæði í einkalífi og annars staðar og því góður tími til að horfa á árið sem er að líða á jákvæðan hátt, vera stoltur af sjálfum sér og bera höfuðið hátt. Sjálfstraust og skynsamleg ákvarðanataka er í fyrirrúmi á árinu og öll verslun húsnæðis, aksturstækja og annarra stærri innkaupa ganga farsællega fyrir sig. Einhver stór persónulegri málefni þarf Vatnsberinn að leysa og þarf hann að gæta þess að taka ekki einhver skref sem hann er ekki tilbúinn í. Vatnsberinn getur verið svolítill sveimhugi og þyrfti að taka sig á endrum og eins, skipuleggja sig vel og gefa sjálfum sér skýrar línur á það líf sem hann æskir eftir. Vatnsberinn er einnig draumóramaður og getur vel farið á flug með verkefnin sín en má þó eiga það, að oftar en ekki tekst honum að framkvæma það sem hann setur sér fyrir hendur. Bönd ástarinnar styrkjast sem um munar á árinu og festa margir ráð sitt í byrjun sumars. Er þar steinninn settur fyrir komandi ár því sambönd vatnsberans eru jafnan löng og gæfurík þar sem þolinmæði og þrautseigja í bland við léttleika og ástríki haldast í hendur. Ferðalög verða nokkur á árinu, flest innanlands en þó verður eitthvað um utanlandsferðir síðla næsta árs. Gæfa og gengi ríkir heilt yfir og vatnsberar stíga léttar til jarðar en á því ári sem er að ljúka.

Fiskur

Nýtt ár þeirra í fiskamerkinu hefst á jákvæðu nótunum í faðmi fjölskyldu þar sem fiskurinn finnur öryggi og leyfi til að vera hann sjálfur. Vanlíðan og óöryggi virðist hafa stjórnað vissum hlutum í einkalífinu lengi meðan á öðrum sviðum lífsins, svo sem atvinnu, hefur verið jákvæð breyting á – ef litið er yfir sl. fimm ár. Láta þarf af stjórn og hætta að taka hlutum persónulega. Hvíld er fisknum mikilvæg og yfir komandi ár reynir á getu hans og vilja til þess að setja slíkt í fyrsta sætið. Nánasta fjölskylda leikur stórt hlutverk og þarf fiskurinn að gæta þess að koma vel fram við þá sem eru honum kærir. Góð heilsa er áberandi hjá þessu merki á komandi ári og taka margir hverjir skref að enn heilsusamlegra líferni. Fiskurinn á það til að vera örlítið sérhlífinn og þarf, eins og meyjan, að festa sér tíma til þess að stunda einhverja líkamsrækt. Einhverjar stórar ákvarðanir þarf fiskurinn að taka á árinu og ætti að taka sem flestar hliðar hvers máls vel til athugunar. Gefa sér tíma til að hlusta með kostgæfni á þá sem eiga hlut að máli, vega og meta hvað best er að gera. Töfrar ástarinnar svífa að venju yfir fisknum en þar má hann einnig gefa sér tíma til að velta fyrir sér hvað það er sem hann í raun leitast eftir. Ekki er víst að nýstofnuð sambönd verði langlíf, en fiskar eiga þó oft eftir að verða skotnir með boga Amors yfir árið. Þeir sem lengra eru komnir í að festa sér maka eru á betri stað og hjá þeim verður gott betra.

Hrútur

Hrúturinn þarf að hugsa vel um sig andlega og líkamlega, vera sjálfum sér nógur og mun þá uppskera vel. Ró í hjarta og friður mun umlykja hrútinn, aukið sjálfstraust - ef þess er gætt að taka hvern dag fyrir sig. Hrúturinn hefur staðið sig vel seinni hluta ársins sem er að ljúka og er á réttri braut. Gæta skal þess þó að fara ekki villur vegar, þá sérstaklega er kemur að skýjaborgum ástarinnar enda lofar ekki góðu að ana af stað með rósrauð gleraugu. Hrúturinn á eftir að þurfa að taka nokkrar mikilvægar ákvarðanir á árinu og þarf að treysta á sjálfan sig í auknum mæli ef miðað er við oft áður. Nú er sá tími kominn að hrúturinn hefur skýrari sýn á framhald lífs síns og þarf að gæta þess að vera staðfastur með sitt. Fjölskylda leikur stórt hlutverk hjá hrútum árið 2023 og yfir sumartímann kjósa þeir margir að hverfa á vit æskunnar þar sem tjaldferðalög voru dæmi um einfaldari skemmtun en oft er nú. Hrútar eru þó gefnir fyrir hið ljúfa líf og eftir tjaldferðalög er næsta víst að þeir leggi leið sína beinustu leið í einhvers konar dekur. Heilt yfir mun árið sem er að ganga í garð vera hrútum gott og þeir ánægðir með sjálfa sig í lok þess. Persónuleg uppgjör lita næstu tólf mánuði og einhvern veginn tekst hrútunum að feta ófarinn, persónulegan stíg í átt að betra lífi. Stígurinn er kannski kræklóttur, en með seiglu hefst för hrútsins, því þetta er eitt þrjóskasta stjörnumerkið.

Naut

Nautið er á margan hátt að lenda á jörðinni eftir nokkurra ára erfiðan tíma. Á síðastliðnu ári hóf það vegferð sína að betra lífi og er staðráðið í því að það besta sé eftir. Með holskeflu sjálfstrausts á nýju ári ætti nautinu að vera allir vegir færir og muna að trúa á sjálfan sig. Taka tíma í að jarðtengja sig, draga andann djúpt, sjá fyrir sér hvað það vill og hvert það raunverulega stefnir. Undanfarin ár hafa tekið sinn toll en nú er tími til að njóta þess að vera til. Ferðalög verða í forgrunni á komandi ári, bæði erlendis sem innanlands enda nýtur nautið þess að ferðast. Bæði í huganum og til fjarlægra landa. Lofuð naut ættu að taka tíma í að hrífast sem aldrei fyrr af maka sínum á meðan þau ólofuðu mættu sleppa fram af sér beislinu þó ekki væri nema af og til. Ástin er ekki skammt undan og nautið þarf að vera duglegra í að opna fyrir slíka strauma í stað þess að njóta þess að liggja í leti, nautnaseggurinn sem það er. Nautinu þykir nefnilega heldur notalegra að láta aðra sjá um fyrstu skrefin og njóta frekar aðdáunarinnar. Hins vegar er þetta eitt tryggasta stjörnumerkið og óþarflega seint oft að slíta þeim samböndum sem ganga ekki. Peningaáhyggjur hverfa alveg með hausti næsta árs og happdrættisvinningar fara í hendur margra nauta. Flutningar eru skrifaðar í stjörnurnar hjá þeim sem hafa verið að velta fyrir sér búferlaflutningum og munu nautin eiga eftir að koma sér vel fyrir á nýjum stað.

Tvíburi

Mikil auðsæld einkennir tvíburana á komandi ári. Sérstaklega á það við fólk sem er ekki í hefðbundnum skrifstofustörfum heldur kýs að starfa sjálfstætt. Bjart er yfir málum hjartans, bæði þeim sem dýpri eru til jafns við þau sem eru platónskari. Tvíburarnir hafa jafnan unun af því að hafa fólk í kringum sig og eru eitt vinflesta merkið. Á komandi ári verða vinasambönd dýpri og tengingar hjartans sterkari. Þeir þurfa þó að gæta þess að fara ekki yfir mörk félaga sinna á einn eða annan hátt og koma ekki fram á annan hátt, en þann sem þeir vilja taka við sjálfir. Einhver tímamót eru í kortunum seinna á árinu þar sem tvíburinn þarf að gera upp við sig hvar hann stendur. Þarna eru einhverjar takmarkanir ef ein ákvörðun er tekin fram yfir aðra og þarf hann að vera alveg viss um að vera á réttri braut. Verðlaun af einhverju tagi og/eða viðurkenning hlýst tvíburanum fyrir vel unnin störf seinni part árs og mikið lof hljóta þeir fyrir framlag sitt í þágu lista og menningar margir hverjir. Tvíburarnir eru eitt litríkasta merkið og geta verið hrókar alls fagnaðar. Þeir geta þó einnig sýnt á sér hina hliðina sem er ekki alltaf sú skemmtilegasta. Þeir læra á áhugaverðan hátt fína línu þarna á milli um mitt sumar og einhverjir tileinka sér að dansa á þeirri línu. Einhver ferðalög eru í kortunum en mest innanlands og gerir tvíburinn vel við sig á baðstöðum og hótelum víða um land. Ástarsambönd styrkjast sem um munar og eiga þeir sem ólofaðir eru, von á einhverjum sem á eftir að leika stóran þátt í lífi þeirra áður en árinu lýkur.

Krabbi

Mikill öldugangur einkenndi árið sem er að líða hjá krabbanum. Erfiðleikar í einkalífi á mót við stöðuhækkanir og þar fram eftir götunum. Það er því léttir að vita að árið 2023 verður heilt yfir rólegra og tími fyrir krabbann til að jarðtengja sig eins best og hann getur. Með rólegri orku koma nýir tímar, bæði er viðkoma stöðu hans á vinnumarkaði og persónulegri málefnum og því ætti krabbinn að stíga öll þau aukaskref sem hann getur á göngustíg rólegheitanna. Krabbinn á það til að vera alveg viss um að hlutirnir gangi sér ekki í hag er kemur að málum hjartans og þarf að hætta slíkum hugsanahætti. Vitrir menn vilja meina að hugsanir okkar stjórni gjarnan því sem verður og má taka þá hugmynd vel til greina. Krabbinn býr yfir meiri kostum en hann telur sig gera en er oft lokaður á sjálfan sig. Trúir því ekki einlæglega að hann sé að gera rétt eða á réttum stað. Ef honum tekst að finna innri ró, munu fleiri draumar en einn fá tækifæri til að rætast. Krabbinn á eftir að ferðast mikið á árinu þó hann sé ekki endilega sá sem sækist í slíkt. Eitt ferðalaganna á eftir að skipta sköpum í lífi krabbans sem fær hann til þess að taka nýja stefnu í lífinu. Hvort sem er innra með sér eða í veraldlega lífinu. Annað sem á eftir að valda straumhvörfum í lífi ólofaðra krabba eru kynni við nýjan einstakling sem mun hafa rík og varanleg áhrif á þá á jákvæðan hátt. Þarna gæti verið um tilvonandi maka að ræða, eða tengingu við hann. Best er að hafa augun opin fyrir þessum tengslum um mitt sumar. Þeir sem lofaðir eru munu njóta lífsins enn frekar en á árinu sem er að líða, en gæta þarf þess þó að sleppa gleðinni ekki alveg lausri.

Ljón

Orðatiltækið „vertu besta útkoman af sjálfum þér“ fer ógurlega í taugarnar á ljóninu enda telur það sig ekki þurfa að vera betri en það er nú þegar. Að minnsta kosti passar það vel upp á að líta svo út í augum annarra. En sjálfsgagnrýni og óvissa getur nagað gat á sálina. Á nýju ári þarf ljónið að venja sig á jákvæða sjálfsgagnrýni og leyfa sjálfum sér að blómstra til jafns við þá ímynd sem það telur ákjósanlega út á við. Hroki og reiði í garð annarra er eitthvað sem ljónið hefur rekið sig örlítið á síðastliðna mánuði en gæti nú tekið skref í átt til umbóta á því sviði. Kraftur nýja ársins ýtir undir sjálfstraust, hógværð og elju og ætti að auðvelda ljóninu að taka persónulegum framförum, með hógværðina bak við eyrað. Vinsældir ljónsins verða miklar á atvinnumarkaðinum og það mjög eftirsótt. Ljónið er þó almennt afar vinsælt og vel liðið enda skemmtikraftur af náttúrunnar hendi. Þó má ekki gleyma því að það vinnur ætíð störf sín af miklum dug og aldrei minna en 100%. Að sama skapi má það búast við aukinni fjárhagslegri velgengni. Ástarmálin eru aldrei langt undan því ljónið á marga aðdáendur í mörgum hópum mannlífsins. Eitthvað vefjast þó fyrir ljóninu allir þess aðdáendur því innst inni veltir ljónið því stundum fyrir sér hvort það sé í raun aðdáunar vert. Er verið að dást að ljóninu sem hristir makkann með glæsibrag, eða felst aðdáunin í þess innra manni? Með þetta í huga gefst ljóninu tækifæri til þess að vera einlægur og opinskár við þá sem vekja áhuga hans, í stað þess að setja á svið leikrit. Því þegar leikritinu lýkur falla tjöldin.

Meyja

Mikill kraftur og uppgangur er í merki meyjunnar árið 2023. Sjálfstraustið og getan til þess að stíga út fyrir þægindarammann er nær óbilandi og seigla meyjunnar til þess að standa fyrir því sem hún trúir á tvöfaldast á nýju ári. Mikið verður um að meyjan fari dýpra inn í sjálfið, leiti að því sem gerir hana að henni og taki sér tíma til þess að anda djúpt umkringd trjám eða náttúru. Frumöflin gera meyjunni gott, s.s. eldur, vatn eða jörð og því æskilegt að heimsækja sundlaugar, fara í gönguferðir í náttúrunni eða sitja við arineld. Sköpunarkraftur meyjunnar mun blómstra, hvort sem viðkemur lagfæringum heima við, skrifum á skáldsögu, leikriti eða með málningarpensil í hönd. Hreyfing er meyjunni nauðsynleg en henni þykir afar notalegt að liggja í leti. Gott væri að koma sér upp þeim vana að hreyfa sig a.m.k. þrisvar í viku, svo sem klukkustund í senn. Á árinu 2023 gerir meyjan upp ýmsa hluti og tekur í kjölfarið ákvarðanir um nýjar stefnur í sínu lífi. Meyjan er oft heldur vanaföst, en þarf nú að spyrja sjálfa sig hvort hún vilji halda gömlum siðum eða með auknum krafti nýs árs að breyta til og hætta jafnvel alveg vissum hlutum. Vinabönd styrkjast annaðhvort eða slitna og í lok árs 2023 á meyjan sterkan og góðan hóp vina í stað fjölmargra kunningja. Ástin bankar upp á hjá ólofuðum meyjum, þó á varfærinn og feimnislegan máta sem styrkist er líður á árið. Þeir sem lofaðir eru mega vera vissir um að sambandið sé á hárréttum stað og svífi um lygnan sjó reyndar alveg til ársins 2025. Þá koma upp lítils háttar verkefni sem þarf að tækla.

Vog

Vogin fer ekki varhluta af töfrum aukins sjálfstrausts frekar en meyjan og að sama skapi styrkist hún í sínu er kemur að öryggi varðandi líf hennar. Ástarmálin eru áberandi og nóg að gera í þeim efnum. Frjósemi vogarinnar er vel þekkt og því barneignir í kortunum fyrir marga. Þeir sem stunda veiðar geta búist við góðum afla næstkomandi sumar og í raun má segja að vogin verði krýndur aflakóngur stjörnumerkjanna, en að honum dragast ástvinir, auður, auk þess sem hann mun taka margar affarasælar ákvarðanir. Nokkrir erfiðleikar í einka- eða fjölskyldulífinu hafa steðjað að yfir árið 2022, sem flytjast yfir á komandi ár, en með auknu sjálfstrausti ætti vogin að geta gert sér auðveldara fyrir í þeim efnum. Taka meðvituð og staðföst skref í rétta átt að lausn vandamála án þess að hafa áhyggjur af mögulegum afleiðingum. Það er alltaf hægt að ímynda sér allt hið versta og vogin er ekki saklaus í þeim efnum. Ótti ætti ekki að stjórna ákvarðanatöku, heldur þarf vogin að bera höfuðið hátt og framkvæma það sem hún telur réttast. Voginni þykir þægilegast að hafa mikla yfirsýn og heldur því ótrauð til streitu. Slíkt getur þó valdið óþarfa álagi og gott að leyfa öðrum að halda um stjórnartaumana af og til. Fullkomnunarárátta er einnig álagsvaldur og þyrfti að slaka á í þeim efnum. Rólegar gönguferðir þar sem horft er út á hafið, djúpöndun og lestur góðra bóka er eitthvað sem vogin ætti að tileinka sér – og láta af allri stífni og stjórnunaráráttu. Gott væri að gráta svolítið til að losa um sálarlífið og ekki úr vegi að hlæja þeim mun meira.

Sporðdreki

Árið sem gengur nú í garð byrjar ekki með jafn miklum lúðrablæstri eins og sporðdrekinn kysi helst – en að ári loknu getur hann stjórnað lúðrasveit. Áætlanir og plön sporðdrekans í byrjun ársins 2023 ganga sem sagt ekki eftir að fullu, eða ekki eins og hann hafði séð fyrir sér. Hann þarf því að leggjast undir feld og byrja upp á nýtt. Best er að hafa hógværð að leiðarljósi og líta á málin frá fleiri hliðum en einni. Í haust sér hann svo afrakstur þrautseigju sinnar og þaðan er leiðin bara upp á við. Mikið er um ferðalög í kortum sporðdrekans þar sem hann kynnist fleiri en einni manneskju sem mun hafa áhrif á líf hans. Sumir staldra stutt við en aðrir lengur – en þó þarf hann að taka vel eftir því sem við hann er sagt, sama hver er. Atvinnumálin sigla jafnan sjó, eru hvorki til frekari auðs né ama. Þó býðst sporðdrekanum áhugaverð staða í öðrum geira en hann er jafnan vanur. Sporðdrekinn þarf að muna að taka tíma til þess að kúpla sig út af og til því annríkt verður hjá honum á fleiri sviðum en einu. Lofaðir sporðdrekar kynnast mætri hlið á maka sínum, á meðan þeir ólofuðu enda árið dansandi uppi á borðum, einir með sjálfum sér. Eitthvað þurfa sporðdrekar að vera duglegri við að tjá sig og vera óhræddir við að segja sína skoðun. Það býr meira í þeim en þeir vilja halda og nýtt ár ætti að veita þeim aukið traust á sjálfa sig. Svo gerir æfingin meistarann og því upplagt að tjá sig sem allra mest.

Bogmaður

Aukin ábyrgð litaði árið 2022 og bogmaðurinn hefur staðið sig vel í að halda þeim boltum á lofti. Fjármálin hafa verið í forgrunni og verða áfram á jákvæðan hátt á nýju ári. Mikið af verkefnum koma á hendur bogmannsins og með aðstoð vina og vandamanna getur hann sinnt þeim til jafns við fjölskyldulífið. Í byrjun næsta sumars verður nokkuð um að bogmaðurinn festi ráð sitt á einn eða annan hátt, en hann hefur nú þegar velt slíkum hugmyndum fyrir sér árið með 2023. Nokkuð er um ferðalög erlendis í kortum bogmannsins, bæði styttri og lengri ferðir, oft tengdar atvinnu. Ferðalög innanlands einskorðast við fjölskylduna og mun bogmaðurinn hafa gaman af að koma maka sínum á óvart með rómantískum ferðum á borð við helgi hér og þar. Hvað varðar persónulegan þankagang bogmannsins hefur hann nú skýrari línur á hvernig manneskja hann vill vera og tekur heilmörg skref á komandi ári í þá átt. Bogmaðurinn er nokkuð þrjóskur og því er það svo að það sem hann ætlar sér, verður. Velgengni fer honum vel og hann er örlátur á að leyfa öðrum að njóta hennar með sér. Hvort heldur með hrósi eða velgjörðum. Örlítið púsluspil verður varðandi tíma fjölskyldu annars vegar og svo einkalífs hins vegar og þarf bogmaðurinn að vega og meta vel og vandlega hvað best er að gera hverju sinni. Við uppgjör í lok árs má bogmaðurinn enn vera stoltur af sínu en þarf að halda áfram að æfa sig að vera besta útgáfan af sér. Eins og við flest.

Steingeit

Eitthvað hefur verið um breytingar nú í lok árs og hefur steingeitin þurft að stíga nokkur ný skref óvissu. Lífið hefur þó gengið sinn vanagang, enda steingeitin örugg í vananum. Með það sagt, árið 2023 (samkvæmt stöðu stjarna steingeita) er tilvalið að leggja land undir fót og ekki einungis innanlands. Utanlandsferðir eru í kortunum og jafnvel dvöl um tíma í heitara loftslagi sem gerir steingeitum gott. Veikindi hafa verið nokkur og gott er að breyta því um dvalarstað um tíma. Útivist er líka eitthvað sem steingeitin mun sækja í og tengja með því sjálfa sig frumefnunum enda allra meina bót. Sambönd vina og kunningja styrkjast svo um munar og steingeitin finnur að hún á fleiri að en hún heldur. Hugsun hennar og sýn á lífið hefur snert hjörtu margra og verður ekki lát á því á nýju ári. Steingeitin er frumkvöðull í hugsun og veltir því gjarnan upp spurningum sem vekja aðra til umhugsunar. Gleði og glaumur eykst á árinu og steingeitin lyftir sér upp oftar en áður. Hún gefur sér tíma til að muna eftir öllu því sem gleður hana og gott væri að gera lista yfir slíkt. Sem síðasta merki stjörnuspekinnar hefur hún þurft að vera með yfirsýn yfir líf margra, en nú er um að gera að sleppa tökunum og njóta frekar lífsins til fullnustu. Steingeitin þarf ekki að hafa áhyggjur af peningum enda tvöfaldast allt sem kemur í vasa hennar á nýju ári. Rétt er að geta þess að lofaðar steingeitur geta orðið fyrir tvöfeldni eða svikum í samböndum sínum en þær ólofuðu kynnast maka úr allt öðru umhverfi en þær helst myndu halda.

Naðurvaldi

Stjörnufræðingar víða um heim, bæði hjá NASA og eins og lesa má á vefsíðu Stjörnufræðivefsins, vilja meina að í raun séu stjörnumerkin þrettán. Kemur það til vegna stöðu möndluls jarðar, eða pólveltunnar sem tekur um 26.000 ár og því eru stjörnumerkin sem sjá má á himni ekki lengur á sama stað og fyrir þúsundum ára. Upphaflega höfðu Babýlóníumenn stjörnumerkin þrettán talsins og var naðurvaldi, stjörnumerki á miðbaug himins eitt þeirra. Myndgerð Naðurvalda er maður haldandi á höggormi, samanber grísku goðsögnina, guðinn og lækninn Asklepíos. Er naðurvaldi ríkjandi frá 30. nóvember til 17. desember, þekktur fyrir eigingirni og öfundsýki, en einnig.er hamn litríkur og skemmtilegur persónuleiki auk þess að vera afar vel gáfum gæddur. Ef honum væri úthlutað varanlegt sæti meðal merkjanna myndu sæti hinna skarast sem svo svarar; Vatnsberi 16. febrúar til 12. mars, Fiskar 12. mars til 18. apríl, Hrútur 18. apríl til 14. maí, Naut 14. maí til 21. júní Tvíburi 21. júní til 20. júlí, Krabbi 20. júlí til 10. ágúst, Ljón 10. ágúst til 16. september, Meyja 16. september til 31. október, Vog 31. október til 23. nóvember, Sporðdreki 23. nóvember til 29. nóvember, Naðurvaldi 29. nóvember til 18. desember, Bogmaður 18. desember til 19. janúar, Steingeit 19. janúar til 16. febrúar. Eins og kemur hér glögglega fram eru tímatöl stjörnumerkjanna þrettán ekki jöfn að lengd, líkt og þau tólf sem nú ríkja – en í þeim virðist sólin ríkja um mánuð í senn.

Safnað fyrir Einstök börn
Líf og starf 26. apríl 2024

Safnað fyrir Einstök börn

Stóðhestaveisla Eiðfaxa var haldin 13. apríl í HorseDay-höllinni á Ingólfshvoli ...

Umhverfisvænar blómaskreytingar
Líf og starf 25. apríl 2024

Umhverfisvænar blómaskreytingar

Náttúruleg fegurð var í fyrirrúmi á námskeiði um blómaskreytingar í Garðyrkjuskó...

Sumardagurinn fyrsti
Líf og starf 25. apríl 2024

Sumardagurinn fyrsti

Samkvæmt dagatalinu kemur sumarið 25. apríl. Bændablaðið leitaði því til lesenda...

Lóan
Líf og starf 23. apríl 2024

Lóan

Lóan er komin! Um þessar mundir eru heiðlóur að tínast til landsins en apríl er ...

Jöklapeysur úr íslenskum lopa
Líf og starf 23. apríl 2024

Jöklapeysur úr íslenskum lopa

Mjólkurfræðingurinn og frumkvöðullinn Pétur Pétursson setur nú á fót hönnunarsam...

Að höndla sér hross til reiðar
Líf og starf 22. apríl 2024

Að höndla sér hross til reiðar

Orðsins list kemur að þessu sinni úr Íslendingasögunum.

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Líf og starf 16. apríl 2024

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands

Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum var krýndur Kjötmeistari Íslands í fagkep...

Paella með skelfiski
Líf og starf 16. apríl 2024

Paella með skelfiski

Paella er einfaldur réttur og til í ýmsum útgáfum, grunnurinn þó alltaf sá sami ...