Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 mánaða.
Meðlimir kvæðamannafélagsins Gefjunar frá Akureyri voru hressir.
Meðlimir kvæðamannafélagsins Gefjunar frá Akureyri voru hressir.
Líf og starf 2. maí 2023

Landsmót kvæðamanna

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Vísnagerð er þjóðariðkun frá fornu fari og hlutverk þeirra og efni eru nánast samofið lífi þjóðarinnar, samkvæmt vefsíðu kvæðamannafélagsins Iðunnar.

Þessum arfi okkar Íslendinga er enn haldið á lofti, en Landssamtök kvæðamanna héldu landsmót á dögunum, nánar tiltekið helgina 21.–23. apríl sl. Var margt um manninn, mæting góð frá bæði aðildarfélögum svo og öðrum gestum, en kvæðamannafélögin Iðunn frá Reykjavík og Vatnsnesingur V-Húnavatnssýslu héldu utan um mótið.

Formaðurinn tekur til höndum

„Það var afar vel mætt þetta árið,“ segir Bára Grímsdóttir, sem gegnir hlutverki bæði formanns Iðunnar og Stemmu, sem er heiti Landssamtakanna, og bætir við að til kvöldverðar á laugardeginum hefðu bókast yfir sextíu sæti.

Bára, sem er fædd og uppalin í kvæðamannafjölskyldu, telur þó ekki eftir sér þá miklu vinnu sem liggur að baki, en hún ásamt fleirum hafa verið að skipuleggja mótið síðan í fyrravor. Meðal annars hafa skipuleggjendur velt fyrir sér hentugum stað fyrir áætlaðan fjölda, grennslast fyrir um skáld fyrri tíma sem eiga rætur að rekja til staðarins svo og þá sem miðla vilja af sköpun sinni eða visku.

Bára stóð sjálf fyrir kveðskaparnámskeiði á laugardeginum, rakti þar sögu systkinanna frá Bergsstöðum, en fjögur þeirra fluttust til Reykjavíkur í upphafi tuttugustu aldar og stofnuðu Kvæðamannafélagið Iðunni árið 1929. Nokkru síðar, á árunum 1935- 36, héldu þau í stúdíó og létu hljóðrita þar 200 stemmur sem Steindór Andersen, formaður Iðunnar, lét gefa út í tilefni 75 ára afmælis félagsins árið 2004. Samkvæmt ræðu sem var haldin á útgáfuhátíð Iðunnar þann 15. september sama ár kom fram að:

Kvæðamennirnir á silfurplötum Iðunnar eru aðeins 13 að tölu en þeir kveða stemmur sem rekja má til 70 annarra kvæðamanna víðs vegar að af landinu. Við útgáfuna var kappkostað að finna hvaða kvæðamenn fylltu þennan hóp, hvar þeir bjuggu og allt annað sem varpaði ljósi á uppruna laganna.

Þá var rakin slóð til jafn margra skálda og hagyrðinga sem áttu lausavísur eða rímnabrot á upptökunum. Alls koma því um 170 kvæðamenn, skáld og hagyrðingar við sögu á silfurplötum Iðunnar.

Gaman er að geta þess að við það tilefni var yngsta kvæðamanni Silfurplatnanna, Jóni Eiríkssyni, þær færðar að gjöf, en hann var níu ára árið 1935.

Fór Bára einnig yfir kvæðamenn frá Vatnsnesi og feril Jóns Lárussonar, kvæðamanns frá Hlíð í Vatnsenda, dóttursonar Bólu-Hjálmars, en hann var vel þekktur fyrir kunnáttu sína og leikni á þessum sviðum.

Lifandi og skemmtileg dagskrá

agskrá helgarinnar var eins og geta má mjög lifandi og skemmtileg, en strax á föstudagskvöldinu fóru kvæðafélögin mikinn á sviði félagsheimilis Hvammstanga og flutti hvert félag stemmur og kvæði með sínum brag. Voru meðlimir Gefjunar frá Akureyri áberandi, en þar mátti bæði finna yngsta meðlim Landssamtakanna, Níels Ómarsson, svo og Þór Sigurðsson, en kröftugur flutningur hans á vísu Bólu-Hjálmars, „Ofan gefur snjó á snjó“ gaf viðstöddum gæsahúð og það sjálfsagt ekki í fyrsta skipti sem þessi ágæti kvæðamaður hefur mikil áhrif.

Ofan gefur snjó á snjó
snjóum vefur flóa tó.
Tófa grefur móa mjó
mjóan hefur skó á kló.

Aðspurður segist yngsti meðlimurinn, Níels, þó ekki vera alinn upp í kvæðamannaumhverfi heldur hafi hann einskæran áhuga á öllu því sem tengist fyrri áratugum. Níels er t.a.m. félagi í þjóðháttafélaginu Handraðanum á Akureyri og leist öðrum meðlimi þar þannig á að hann ætti hvergi betur heima en í kvæðamannafélagi. Níels, sem hefur fengið lof fyrir frammistöðu sína sem kvæðamaður, á því framtíðina fyrir sér í þeim efnum.

Kveðja

Skáldið og kvæðamaðurinn Sigurður Sigurðarsson, fyrrverandi dýralæknir, bar kveðju frá Steindóri Andersen en vegna veikinda gat Steindór ekki sótt landsmótið.

Steindór Andersen hefur um árabil verið einn þekktasti kvæða- maður okkar þjóðar, ötull í því starfi er kemur að íslenskri rímnahefð og fengið mikið lof fyrir flutning. Minnisstætt er samstarf Steindórs og hljómsveitarinnar Sigur Rósar í kringum aldamótin sem meðal annars gaf af sér plötuna Rímur. Til viðbótar hafa a.m.k. komið út þrjár plötur til viðbótar, m.a. þar sem Steindór kveður Úlfhamsrímur, en meðal samstarfsmanna hans er Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði.

Killi mara kussu mu

Fyrsta erindi laugardagsins var í höndum Agnars nokkurs Levy, af mörgum þekktur sem skemmtilegur og margfróður grúskari er kemur að kveðskaparlistinni. Hann hóf fyrirlestur sinn með þeim orðum að honum litist ekkert á að hafa verið úthlutað það verkefni að fjalla um helstu skáld Vatnsness á hálftíma, enda þyrfti helst að fjalla til jafns um þau sem ekki væru jafn áhugaverð – svo hin fengju að njóta sín. Agnar naut sín annars vel í pontu og minntist á heilmörg ágætis skáld, þar á meðal Sigurð Bjarnason, eitt afkastamesta skáldið sem m.a. hafði gert 966 vísur með 10-11 bragarháttum. Sæunn Jónsdóttir var nefnd, frá árinu 1790, en hún var var þó skilningslaus á tungumálið eins og við flest þekkjum það. Þróaði hún sitt eigið og samdi vísur hin djarfasta, sem falla undir allar réttar kveðskaparreglur. Sem dæmi má nefna fyrstu línu einnar vísu hennar; „Killi mara kussu mu...“

Eftir hádegisverðinn tók ungliðinn Linus Orri Gunnarsson Cederborg við keflinu en hann hefur verið stjórnandi Kvæðakórs Reykjavíkur um nokkurt skeið. Leiðbeindi hann gestum við þjóðlagasöng í einföldum útsetningum og gladdi viðstadda með hressilegri framkomu og stjórnun enda sungið af hjartans lyst.

Að því loknu var haldið í heimsókn að Stöpum á Vatnsnesi til hjónanna Kjartans Sveinssonar og Maríu Huldar Markan sem buðu upp á rjúkandi kaffi, pönnukökur og kleinur, auk þess sem þar var kveðið úr rímum Guðmundar Bergþórssonar, eins mikilvirkasta rímnaskálds allra tíma. Guðmundur var mikið fatlaður, en fluggáfaður, næmur og síyrkjandi. Er merkt að vitna í manntal þessara ára en hann var eini Íslendingurinn sem var skrifaður skáld – en ekkert annað. Guðmundur fór aldrei á sveitina þrátt fyrir fötlun sína heldur sá vel fyrir sér.

Dagskrá laugardagsins lauk svo með dýrindis hátíðarkvöldverði og kvöldvöku í félagsheimilinu þar sem mikil skemmtan hófst, kveðskapur og söngdansar og má með sanni segja að aðildarfélög Stemmu gefi engum eftir þegar gleði ríkir sem hæst. Landsmótinu lauk svo á sunnudagsmorgun með aðalfundi og nutu gestir hádegisverðar á veitingastaðnum Sjávarborg um hádegisbil.

Aðildarfélög Stemmu eru Kvæðamannfélögin Iðunn í Reykjavík, Vatnsnesingur í Vestur- Húnavatnssýslu, Gefjun á Akureyri, Ríma í Fjallabyggð, Árgali í Árborg, Snorri í Reykholti, Gná í Skagafirði og Félag ljóðaunnenda á Austurlandi. Fyrir þá sem hafa áhuga á að ganga til liðs við félag má hafa samband við hana Báru Grímsdóttur á netfanginu bara.grimsdottir@gmail.com.

Vegna greinar um Kvæðamót á Hvammstanga viljum við koma á
framfæri leiðréttingu. Í textanum var skekkja í vísuorði eftir Sæunni Jónsdóttir frá Illugastöðum. Textinn „Killi mara kussu mu“ er ekki rétt – heldur skal segja; „Killi mærra kussu hu“. Við þökkum Agnari Levy ábendinguna.

19 myndir:

Safnað fyrir Einstök börn
Líf og starf 26. apríl 2024

Safnað fyrir Einstök börn

Stóðhestaveisla Eiðfaxa var haldin 13. apríl í HorseDay-höllinni á Ingólfshvoli ...

Umhverfisvænar blómaskreytingar
Líf og starf 25. apríl 2024

Umhverfisvænar blómaskreytingar

Náttúruleg fegurð var í fyrirrúmi á námskeiði um blómaskreytingar í Garðyrkjuskó...

Sumardagurinn fyrsti
Líf og starf 25. apríl 2024

Sumardagurinn fyrsti

Samkvæmt dagatalinu kemur sumarið 25. apríl. Bændablaðið leitaði því til lesenda...

Lóan
Líf og starf 23. apríl 2024

Lóan

Lóan er komin! Um þessar mundir eru heiðlóur að tínast til landsins en apríl er ...

Jöklapeysur úr íslenskum lopa
Líf og starf 23. apríl 2024

Jöklapeysur úr íslenskum lopa

Mjólkurfræðingurinn og frumkvöðullinn Pétur Pétursson setur nú á fót hönnunarsam...

Að höndla sér hross til reiðar
Líf og starf 22. apríl 2024

Að höndla sér hross til reiðar

Orðsins list kemur að þessu sinni úr Íslendingasögunum.

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Líf og starf 16. apríl 2024

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands

Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum var krýndur Kjötmeistari Íslands í fagkep...

Paella með skelfiski
Líf og starf 16. apríl 2024

Paella með skelfiski

Paella er einfaldur réttur og til í ýmsum útgáfum, grunnurinn þó alltaf sá sami ...