Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Íslensk hönnun í Mýrdal
Líf og starf 22. júní 2026

Íslensk hönnun í Mýrdal

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

EY Collection er íslenskt lista- og hönnunarfyrirtæki staðsett í Garðakoti í Vík í Mýrdal.

Eva Dögg Þorsteinsdóttir og Þorbjörg Kristjánsdóttir standa á bak við EY Collection.

Vinkonurnar Eva Dögg Þorsteinsdóttir og Þorbjörg Kristjánsdóttir hafa alla tíð verið hrifnar af handverki og listum. Í dag reka þær vinnustofuna og verslunina EY Collection, hanna vörurnar og búa þær margar hverjar til. EY leggur áherslu á vörur sem hafa tengingu við náttúru, menningu og sögu nærumhverfisins. Þar má finna margvíslegar nytja- og gjafavörur, líkt og bolla, taupoka, kerti, teppi, skrautmuni og tækifæriskort.

Vörurnar eru hannaðar í Mýrdal og sækja Eva og Þorbjörg sér mikinn innblástur í náttúruna þar í kring. Vörur þeirra eru gjarnan skreyttar íslenskum fuglum og plöntum. Bæði fá þessi klassísku blóm að njóta sín, líkt og gleymmérei, baldursbrá og hvönnin en þá fá plöntur sem enda oftast ekki í íslenskri hönnun einnig að stíga fram í sviðsljósið eins og melgresið og puntstráin. Einkennandi landslag Mýrdals, svörtu sandar Reynisfjörunnar og dramatísku drangarnir hafa einnig veitt þeim innblástur.

Kerti.

Vinkonurnar nota efnivið úr umhverfinu, tína jurtir sem þær nýta í kertaskreytingar og nota ull af kindunum sínum til þess að búa til gærur og fjölbreyttar ullarvörur. Eva málar myndirnar sem þær nota á meðan að Þorbjörg saumar en þær hanna allar vörurnar í sameiningu. Íslandslínan þeirra hefur verið einkar vinsæl en þar má sjá málaða mynd af fjölskyldu í íslenska þjóðbúningnum. Auk eftirprents af málverkinu sjálfu hafa þær prentað myndina á servíettur, kerti og eldspýtustokka. Saumuð ullardýr sem þær búa til úr efnis- og ullarafgöngum hafa auk þess notið vinsælda.

Taupoki.

Litríkir og brosmildir steinar hafa vakið mikla lukku meðal viðskiptavina EY Collection. Happy Stone, á íslensku Glaður steinn, er hönnun sem Eva og Þorbjörg hugsuðu að myndi höfða sérstaklega til barna en hefur verið vinsæl meðal allra aldurshópa. Happy Stone eru þæfðar kúlur sem vísa í ávala fjörusteina, með augu og stærðarinnar bros. Aðallega hefur selst af lyklakippum en á döfinni er að gera derhúfur með þessum vinsælu krúttlegu fígúrum.

Aðspurðar um aðrar nýjungar segir Þorbjörg að þæfðar ullarsápur séu nú á leið í verslunina en annars séu hugmyndirnar endalausar svo það sé um að gera að fylgjast vel með EY Collection. Sem stendur eru Eva og Þorbjörg að undirbúa sumarmánuðina en mikið af ferðafólki leggur leið sína á Suðurlandsundirlendið. Þetta er þriðja sumarið sem þær stöllur hafa opið fast og hlakka þær til að taka á móti fjölbreyttum gestum. Þeir sem gera sér ferð út að Dyrhólaey geta komið við í Garðakoti, litið hönnunina augum og jafnvel verður heitt á könnunni.

Vísnahornið
Líf og starf 3. nóvember 2026

Vísnahornið

Sigrún Haraldsdóttir lýsir ástkærri fósturjörð okkar í góðri stöku: Er af grjót...

Leiðtogar og landbúnaður
Líf og starf 2. nóvember 2026

Leiðtogar og landbúnaður

Þegar Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov (eða Garbatsjov eins...

Dagur sauðkindarinnar
Líf og starf 30. október 2026

Dagur sauðkindarinnar

Dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu fór fram 10. október síðastliðinn. Fjöl...

Grikk eða gott?
Líf og starf 29. október 2026

Grikk eða gott?

Í tilefni hrekkjavökudagins sem nú hefur hægt og sígandi fest sig í sessi hérlen...

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...