Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Bragi Hannibalsson hefur verið aðalforgöngumaðurinn á bak við stikurnar á hættulegasta kaflanum á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls. Hér er hann ásamt Bryndísi, dóttur sinni (t.v.), og tveimur hollenskum sjálfboðaliðum, með plaststikur á leiðinni í vinnuferð árið 2017.
Bragi Hannibalsson hefur verið aðalforgöngumaðurinn á bak við stikurnar á hættulegasta kaflanum á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls. Hér er hann ásamt Bryndísi, dóttur sinni (t.v.), og tveimur hollenskum sjálfboðaliðum, með plaststikur á leiðinni í vinnuferð árið 2017.
Mynd / Úr einkasafni
Líf og starf 2. janúar 2023

Hugsjónamaður um öryggi á Fimmvörðuhálsi

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Bragi Hannibalsson, fyrrverandi skriftvéla- og rafeindavirki, hefur verið aðalforgöngumaðurinn á bakvið stikurnar á hættulegasta kaflanum á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuhálsinn. Með góðri samvinnu við velunnara og sjálfboðaliða hefur verið byggð upp vel merkt leið sem eykur öryggi allra sem ganga um svæðið.

Þegar gengið er frá Skógum til norðurs í átt að Þórsmörk er mjög mikilvægt að göngumenn rati að Heljarkambi, sem er eina leiðin á mjög stóru svæði þar sem fært er niður að Básum. Þar sem oft er allra veðra von og gjarnan lélegt skyggni á þessum slóðum getur skapast mikil hætta fyrir ferðalanga. Þarna voru stikur frá gamalli tíð, en vegna snjóþyngsla voru þær oft á kafi í snjó langt eftir sumri.

Dóttir lenti í lífsháska

Dóttir Braga fór þessa leið um miðjan júní 1988 ásamt tveimur öðrum ungmennum, sem öll voru vön útivist og rötun eftir áttavita. Þau lögðu af stað snemma dags við Skóga, en er þau voru komin norður á brúnir Goðalands var veðrið orðið afar slæmt, hífandi rok og ausandi rigning, og tókst þeim ekki að finna Heljarkamb þrátt fyrir mikla leit. Síðar kom í ljós að þau höfðu komið fram á brúnirnar sitt hvorum megin við Heljarkamb svo litlu munaði að þau fyndu hann. Þeim tókst að brjótast niður eftir stórhættulegu gljúfri (Hrunagili) niður á Krossár­ aura. Þremenningarnir voru á göngu fram undir morgun næsta dags í slagviðri og telur Bragi að þau hafi verið afar heppin að komast lifandi til byggða. Þetta atvik opnaði augu hans fyrir því hversu varasöm leiðin um Fimmvörðuhálsinn er og að nauðsynlegt væri að bæta stikun.

Nokkrum árum síðar varð Bragi málkunnugur Lovísu Christiansen, sem þá var formaður Útivistar, og reyndi að sannfæra hana um að láta félagið sjá um að stika alla leiðina. Meðal þeirra var mikill áhugi en þau sáu sér ekki fært að fara í framkvæmdir á eigin spýtur – og fengu því Braga til að gerast forgöngumaður verkefnisins. Útivist lagði því til mannskap og efni – til
hálfs á móti Braga – og var fyrsta vinnuferðin farin í september 1995. Ferðafélag Íslands hefur einnig lagt til fjármagn til efniskaupa.

Frá Baldvinsskála að Heljarkambi

Á einni helgi náðist að stika nær alla leiðina sem nær frá Baldvinsskála að Heljarkambi. Þetta er u.þ.b. fimm kílómetra kafli og eru stikurnar alla jafna með 50 metra millibili – sem gerir nálægt 100 stykki. Þrátt fyrir að ekki sé lengra á milli hverrar stiku hefur Bragi verið uppi á Fimmvörðuhálsi í það mikilli þoku að þegar hann stóð mitt á milli tveggja, sást hvorug.

Í grunninn eru stikurnar þær sömu og Vegagerðin notar á snjóþungum heiðum þar sem járnrör eru rekin ofan í jörðina og gulir plasthólkar festast ofan á. Bragi hefur hins vegar ekki stungið járnrörunum niður, heldur hannað tvær tegundir undirstaða sem nýtast við mismunandi aðstæður.

Önnur aðferðin felst í að hlaða vörðu í kringum járnrörin. Til þess að varðan sé stöðug er hún hlaðin inn í nethólk, sem er 70 sentímetrar í þvermál og einn metri á hæð. Hann notar lóðanet til að gera hólkinn, en þau eru þannig gerð að mjög auðvelt er að þræða endana saman.

Hinar undirstöðurnar byggjast á því að festa fjögur þykk steypustyrktarjárn á stuttan stálhólk sem mynda þá kross. Endunum er haldið niðri með þungu grjóti og stöðugleikinn aukinn með stífum úr flatjárni. Þessi aðferð gagnast vel til að koma fyrir stikum uppi á fönn. Á stuttum kafla fer leiðin um bratta klöpp – þar hefur Bragi borað fyrir stálteinum sem stikurnar festast á.

Mjög mikilvægt er að göngumenn finni rétta leið yfir Fimmvörðuhálsinn, því annars geta þeir lent í ógöngum. Bragi hefur af eigin hugsjón viljað tryggja öryggi allra sem eiga leið um svæðið. Mynd/Ferðafélagið Útivist

Fjögurra metra háar undir fönn

Flestar stikurnar eru með 150 sentímetra löngu plaströri sem fest er ofan á áðurnefnda járnhólka.

Bragi lét hins vegar sérframleiða lengri plastpípur til að nota á snjóþyngstu svæðunum.

Þó svo að þær stikur standi fjóra metra upp úr jörðinni fara þær oftar en ekki á kaf í snjó og sjást ekki fyrst á vorin.

Til þess að gæta öryggis eru vegstikurnar sem Vegagerðin notar hannaðar til þess að brotna auðveldlega á samskeytunum við árekstur. Sá eiginleiki er óheppilegur uppi á Fimmvörðuhálsi og því hefur Bragi hannað nýja festingu. Í staðinn fyrir að nota stutt sívalningslaga stykki sem fer inn í stálrörið og plastpípuna setur hann breiðan plasthólk utan um samskeytin og skorðar með hosuklemmum.

Fóru á kaf í gosinu

Bragi hefur fengið sjálfboðaliða til að hjálpa til við viðhald á hverju ári. Hann hefur líka betrumbætt hönnunina með tíð og tíma til þess að stikurnar þoli betur öll veður. Oftar en ekki þarf að rétta einhverjar við eða laga festingar. Mesta tjónið varð þó þegar gaus á Fimmvörðuhálsi og hraun fór yfir hluta gönguleiðarinnar.

Hann stikaði nýja leið meðfram hrauninu í samvinnu við Útivist. Sá kafli hefur oft reynst til vandræða þar sem leiðin er krókótt og vegna mikillar snjósöfnunar eru stikurnar oft á kafi langt fram eftir sumri. Þegar gengið er að sunnan virðist augljósasta leiðin að fara beint yfir hraunið, en þá endar fólk oft við bratta hraunbrún og getur þurft talsvert klöngur til að komast niður. Bragi hefur fundið heppilega leið yfir hraunbreiðuna sem sveigir fram hjá áðurnefndri ófæru og er hann að vinna í því um þessar mundir að fá heimild til að stika þann kafla.

Skylt efni: Útivist | Fimmvörðuháls

Umhverfisvænar blómaskreytingar
Líf og starf 25. apríl 2024

Umhverfisvænar blómaskreytingar

Náttúruleg fegurð var í fyrirrúmi á námskeiði um blómaskreytingar í Garðyrkjuskó...

Sumardagurinn fyrsti
Líf og starf 25. apríl 2024

Sumardagurinn fyrsti

Samkvæmt dagatalinu kemur sumarið 25. apríl. Bændablaðið leitaði því til lesenda...

Lóan
Líf og starf 23. apríl 2024

Lóan

Lóan er komin! Um þessar mundir eru heiðlóur að tínast til landsins en apríl er ...

Jöklapeysur úr íslenskum lopa
Líf og starf 23. apríl 2024

Jöklapeysur úr íslenskum lopa

Mjólkurfræðingurinn og frumkvöðullinn Pétur Pétursson setur nú á fót hönnunarsam...

Að höndla sér hross til reiðar
Líf og starf 22. apríl 2024

Að höndla sér hross til reiðar

Orðsins list kemur að þessu sinni úr Íslendingasögunum.

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Líf og starf 16. apríl 2024

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands

Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum var krýndur Kjötmeistari Íslands í fagkep...

Paella með skelfiski
Líf og starf 16. apríl 2024

Paella með skelfiski

Paella er einfaldur réttur og til í ýmsum útgáfum, grunnurinn þó alltaf sá sami ...

Flugvélarflak í Eyvindarholti
Líf og starf 10. apríl 2024

Flugvélarflak í Eyvindarholti

Við Eyvindarholt undir Eyjafjöllum hefur gömlu flugvélarflaki verið komið fyrir....