Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Krakkarnir voru einbeitt að skapa dýr úr listaverkum eftir göngutúr dagsins í skóginum.
Krakkarnir voru einbeitt að skapa dýr úr listaverkum eftir göngutúr dagsins í skóginum.
Líf og starf 23. júlí 2021

Fjölbreytt sambland af dýra­um­hirðu og kennslu ólíkra listforma

Höfundur: Erla Hjördís Gunnarsdóttir

Sóldís Einarsdóttir, myndlistarkennari, hestakona, hundaþjálfari og hundasnyrtir, stendur nú fyrir námskeiðunum Dýr og list í annað sinn í hesthúsi sínu hjá Hestamannafélaginu Spretti í Garðabæ/Kópavogi. Þar stendur börnum á aldrinum 5-11 ára til boða að koma á námskeið sem er sambland af myndlistarnámskeiði og kennslu í umhirðu dýra sem hefur svo sannarlega verið vel tekið af borgarbörnunum.

Þegar blaðamann Bændablaðsins bar að garði á dögunum var mikið líf og fjör í hesthúsinu hjá Sóldísi þegar börnin komu hvert af öðru kampakát úr göngutúr í skóginum með nokkra hunda í eftirdragi og fangið fullt af alls kyns blómum og laufblöðum. Eitt af verkefnum dagsins var síðan að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn eftir gönguna og skapa dýr á blað úr náttúrulegum efnum sem fundust á göngunni.


„Ég byrjaði á þessum námskeiðum í fyrrasumar með vinkonu minni, Höllu Maríu, sem rekur reiðskólann Eðalhesta, sem síðan flutti á Skagaströnd en ég ákvað að halda þessu áfram með dóttur minni, Þórunni Rebekku. Aðsóknin hefur aukist um helming í sumar þrátt fyrir að við höfum sáralítið auglýst, svo það er greinilega þörf fyrir þessa tegund af námskeiði fyrir börn,“ segir Sóldís, sem er myndlistarkennari við Myndlistarskólann í Kópavogi og málar myndir, aðallega af dýrum.

Dýrakona frá blautu barnsbeini

Það er óhætt að segja að fjölbreytni sé í dýrategundum í hesthúsinu hjá Sóldísi en fyrir utan hestana hafa, hænuungar, kettlingar, naggrísir, kanínur og hamstrar aðstöðu að ógleymdum íslensku fjárhundunum, þeim Mána og Skorra, sem fylgja þátttakendum á námskeiðinu hvert fótmál.


„Ég hef verið mikil dýrakona frá blautu barnsbeini og langaði alltaf að eiga alls konar dýr en fékk það nú kannski ekki alveg eins mikið og ég vildi. Ég og dætur mínar, Þórunn Rebekka og Sunna Dís, höfum lengi verið í hestum og átt alls konar dýr og því var ekki erfitt að bjóða upp á dýra- og listnámskeið hér í hesthúsinu. Við ákváðum strax að hafa hópana fámenna til að geta sinnt bæði börnum og dýrum vel. Það eru 10 til 15 börn á aldrinum 5–11 ára á hverju námskeiði sem eru ýmist fyrir eða eftir hádegi,“ segir Sóldís og bætir við: „Uppleggið er að börnin komist í tæri við náttúruna og listsköpun auk þess að fá að umgangast dýr og læra að hugsa um þau. Börnin eru tvö til þrjú saman að sjá um dýrin og skiptist það á milli hópa hvaða dýr þau sjá um þann og þann daginn. Þá sjá þau um almenna umhirðu, að þrífa og læra hvað dýrin borða ásamt því að þau fá líka knússtund með þeim.


Síðan eru alltaf tvö börn á dag sem fá að prófa að fara á hestbak og þess á milli vinnum við með listina og mismunandi listform, svo allir hafa mismunandi hlutverk á hverjum degi alla vikuna á námskeiðinu. Það sem er líka mikill plús í þessu er að við erum á svo yndislegum stað alveg ofan í náttúruperlunni Heiðmörk, en við förum mikið upp í Guðmundarlund til að sækja okkur efnivið í listsköpunina, auk þess sem við sitjum oft úti og teiknum. Við mæðgurnar erum allar miklar dýra- og listakonur svo þetta er sannarlega draumur að rætast hjá okkur að geta boðið upp á þessi námskeið. Börn á höfuðborgarsvæðinu komast oft ekki í tæri við dýr en hér hafa þau möguleika á því og kunna virkilega að meta það.“

Vísnahornið
Líf og starf 28. apríl 2026

Vísnahornið

Í síðasta þætti birti ég vísu um mun á Húnvetningum og Þingeyingum. Óskar í Meða...

Hámóðins með hækkandi sól
Líf og starf 28. apríl 2026

Hámóðins með hækkandi sól

Það er skemmtilegt þegar sólin tekur að skína og ekki síst þegar hægt er að busl...

Risinn Reykjavíkurskákmótið
Líf og starf 27. apríl 2026

Risinn Reykjavíkurskákmótið

Opna Reykjavíkurskákmótið fór fram í Hörpu dagana 25.–31. mars. Mótið er að öllu...

23 slagir í einu spili
Líf og starf 27. apríl 2026

23 slagir í einu spili

Undankeppni Íslandsmótsins fór fram á dögunum í Fjölbrautaskólanum í Ármúla og v...

Bók um Svein búfræðing
Líf og starf 27. apríl 2026

Bók um Svein búfræðing

Maður er nefndur Sveinn Sveinsson (1849–1892), austfirskur. Svein má með réttu t...

Samkeppni um hönnun lopapeysu fyrir kvenbændur
Líf og starf 21. apríl 2026

Samkeppni um hönnun lopapeysu fyrir kvenbændur

Árið 2026 er alþjóðlegt ár kvenbóndans en af því tilefni hefur Uppspuni í Ásahre...

Klassísk blómfegurð stofuhindar
Líf og starf 20. apríl 2026

Klassísk blómfegurð stofuhindar

Litir og form garðblóma heilla ræktendur en vinsældirnar eru hverfular, nýjar te...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 20. apríl 2026

Lausn á vísnagátunni

Lausn á vísnagátu.