Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 mánaða.
Alheimsvíðátta Jónasar
Mynd / Úr safni
Líf og starf 11. mars 2026

Alheimsvíðátta Jónasar

Höfundur: Þröstur Helgason

Á rómantíska tímanum átti það jafnt við þegar horft var inn í huga sér og út í geim að þá gapti alheimsvíðáttan við. Jónas Hallgrímsson yrkir ljóð með þessu heiti og segir það byggt á hugmynd frá Schiller en það er í grunninn þýðing á ljóði þýska skáldsins frá árinu 1782 sem heitir „Die Gröẞe der Welt“. Í ljóðinu takast á ytri geimur og innri, alheimsvíðáttan eða „himinbláminn“ og „arnfleygur hugur“ skáldsins sem glímir við að fanga alheiminn. En skáldið, hinn „flugmóð[i] / ferðamaður“, er varað við að halda lengra í hugarflugi sínu um himingeima og bent á að fram undan séu „Ómælisundur / og endaleysa“:

„Hættu, hættu!

þú sem hér kemur,

ónýtisferð

þú áfram heldur;

belja mér á baki

bláir straumar,

eilífðar ógrynni

og endaleysa.“

Í lokaerindinu kastar „skáldhraður skipstjóri[nn]“ því akkerinu og hugsar með sjálfum sér: „hættu nú sveimi; / sárþreytta vængi / síga láttu niður“. Alheimsvíðáttan er takmarkalaus og hugaraflið, eða það sem Jónas kallar „sköpunarmagn“ skáldsins, þarf að beisla. Gera mætti því skóna að hér tali náttúruvísindamaðurinn Jónas. Til að henda reiður á ómælisundrin þurfi að halda röklegum aga á hugsuninni. En ljóðið endurspeglar líka heimsmynd Schillers seint á átjándu öld þegar glíman við að finna jafnvægi á milli efnis og anda – eða hreinlega leysa andstæðuna upp – litaði mjög heimspekilega hugsun.

Hjá skáldbróður hans Schelling gegndi listin mikilvægu hlutverki í glímunni við þessar andstæður. Í henni birtast bæði átökin á milli efnis og anda og leitin að jafnvægi á milli þeirra, löngunin til að beisla hið takmarkalausa og ósýnilega afl sem við lesum um í ljóði Jónasar. Schelling taldi að einungis listamaðurinn gæti ráðið við andstæður tilverunnar og sameinað þær í listaverkinu, endanleikann og óendanleikann, hið sýnilega og ósýnilega, meðvitaða og ómeðvitaða. Í vísindum og heimspeki toguðust þessar andstæður á. Til þess að sameina þær þurfti listamaðurinn snilligáfu, eitthvað óútskýranlegt eða dulvitað sem kallað var fram í listaverkinu til að sætta annars ósamrýmanlegar andstæður eins og anda og efni, sjálfið og heiminn. Og þetta sem listamaðurinn kallaði fram með gáfu sinni léði listaverkinu grundvallareðli, sagði Schelling, sem er ómeðvitaður óendanleiki (þ. bewuẞtlose Uendlichkeit)

Þetta eru ómælisundrin, eilífðar ógrynnin, endaleysan og óreiðan, sem eru bæði ytra og innra í ljóði Jónasar. Höfundur frumtextans, skáldheimspekingurinn Schiller, taldi einmitt að þessar víðáttur efnis og anda yrðu einungis beislaðar í hvöt mannsins til að bregða á leik, eins og segja má að skáldið í „Alheimsvíðáttunni“ geri, en leikurinn tjái mennskuna og birtist helst í frjálsræði mannsins og list. Í leik undirgengst maðurinn einungis þær reglur sem hann samþykkir sjálfur.

Schelling hafði mikil áhrif á skáld og listamenn nítjándu aldar. Íslenskir Hafnarstúdentar kynntust hugmyndum hans líklega fyrst í fyrirlestrum danska náttúrufræðingsins Henrik Steffens í Kaupmannahöfn árið 1802 eða um svipað leyti og Schelling hélt fræga fyrirlestra sína um fagurfræði í Jena í Þýskalandi. Tómas Sæmundsson hlustar svo á Steffens lesa fyrir í Berlín þrjátíu árum síðar og er Steffens þá enn undir áhrifum Schellings. Jónas hefur vafalítið fengið að heyra af fyrirlestrinum hjá vini sínum, Tómasi. Áhrifin af náttúruspeki Schellings má til að mynda einnig sjá í „Hulduljóðum“ Jónasar sem hann orti síðustu ár ævinnar og kláraði raunar aldrei. Þar kveikir dulinn lífsog sköpunarkraftur náttúrunnar tregaljóð um landið og skáldið, náttúruna og skáldskapinn sem hún vekur. Hulda er táknmynd ósýnilegs lögmáls náttúrunnar – „þótt sjónum mínum falin / sértu“, segir um Huldu – en ljóðið fjallar ekki síður um skáldið sjálft sem keppir um hylli skáldgyðjunnar við upplýsingamanninn Eggert Ólafsson og kannski á það að vera tákn nýrra tíma að hann hefur betur.

Skylt efni: Hrifla

Lausn á vísnagátunni úr 21. tölublaði
Líf og starf 24. nóvember 2026

Lausn á vísnagátunni úr 21. tölublaði

Hér er lausnin á vísnagátunni úr 21. tölublaði Bændablaðsins.

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 20. nóvember 2026

Stjörnuspá vikunnar

Þörfin fyrir nýja reynslu er bogmanninum ofarlega í huga, en skyldurnar heima fy...

Vísnahornið
Líf og starf 18. nóvember 2026

Vísnahornið

Steingrím Thorsteinsson þarf ekki að kynna. Hann yrkir svona fallega um haustið ...

Stephan Briem með alþjóðlegan áfanga
Líf og starf 18. nóvember 2026

Stephan Briem með alþjóðlegan áfanga

Fjögur íslensk skáklið tóku þátt á Evrópumóti taflfélaga (European Club Cup), sí...

Gosi banar geimi
Líf og starf 18. nóvember 2026

Gosi banar geimi

Það var dálítið vandræðalegur spilari sem þurfti að upplýsa fyrir sveitarfélögum...

Hafmeyjan og sólskríkjan
Líf og starf 17. nóvember 2026

Hafmeyjan og sólskríkjan

Laugardaginn 29. mars 1947 hófst gos í Heklu eftir rétt rúmlega aldarlangt eldsu...

Er hár yðar óstýrilátt?
Líf og starf 13. nóvember 2026

Er hár yðar óstýrilátt?

Margir þekkja þá raun að eiga við hárið á sér, sumir fremur öðrum auðvitað og ei...

Tilmæli um ábyrga notkun gervigreindar
Líf og starf 12. nóvember 2026

Tilmæli um ábyrga notkun gervigreindar

Bandalag íslenskra listamanna (BÍL) hefur ákveðið að hrinda af stað átaki þar se...