Hönnuðirnir Veronika Sedlmair og Brynjar Sigurðarson.
Hönnuðirnir Veronika Sedlmair og Brynjar Sigurðarson.
Mynd / Studio Brynjar & Veronika
Íslensk hönnun 11. ágúst 2026

Tilraunir með að hitameðhöndla íslenskan við

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Í HAKK Gallery við Óðinsgötu í Reykjavík stendur yfir sýning á munum sem framleiddir eru úr hitameðhöndluðum íslenskum við. Hönnuðir verkanna eru hjónin Brynjar Sigurðarson og Veronika Sedlmair. Sýningin verður opin út júlí.

Brynjar er vöruhönnuður og er Veronika innanhúshönnuður. Þau reka saman hönnunarstúdíóið Studio Brynjar & Veronika í Þýskalandi. Brynjar segir í samtali að ef ætlunin er að framleiða vörur og húsgögn á Íslandi sé mest vit í því að nota íslenskan við, enda sé meira af honum en margir telja. 

„Áður en við fórum í þetta verkefni höfðum við ekki kynnt okkur íslenskan við að neinu ráði og áætluðum að birkið væri það eina sem kæmi til greina í húsgagnasmíði,“ segir Brynjar. „Við áttum svo samtal við Skógræktarfélag Reykjavíkur í Heiðmörk og sáum þá að það er nóg til af íslenskum við. Þau sögðu okkur frá öspinni, en þrátt fyrir að vaxa einstaklega vel má segja að öspin sé á vissan hátt illa liðin trjátegund á Íslandi þó svo að fá tré vaxi jafn beint og hratt.

Asparviður flokkast sem harðviður, en er einn mýksti harðviðurinn sem finnst. Öspin er almennt ljós, en svo getur hún verið skellótt. Eins er hún mjög kvistótt, þannig að það er mikið líf í henni sem getur verið fallegt út af fyrir sig. Það er hins vegar eitthvað sem hentar illa við framleiðslu húsgagna þannig að við fórum að skoða hvernig við gætum gert öspina að stöðugra og einsleitara hráefni.

Þá kom upp sú hugmynd að baka viðinn, sem nefnist einnig hitameðhöndlun eða thermo treatment á ensku. Þetta er þekkt aðferð og er auðvelt að kaupa innfluttan hitameðhöndlaðan við á Íslandi sem er gjarnan notaður í klæðningar. Ég veit hins vegar ekki til þess að viður hafi verið hitameðhöndlaður á Íslandi áður,“ segir Brynjar.

Húsgagn smíðað úr bakaðri íslenskri ösp sem er til sýnis í HAKK Gallery.

Hitameðhöndlunin heppnaðist yfirleitt

„Við fengum viðarborð úr skógræktinni í Heiðmörk og þeir í Fjarðarstáli í Hafnarfirði gáfu okkur aðgang að loftþéttum og stórum ofni sem er notaður við dufthúðun,“ segir Brynjar. „Viðurinn er hitaður í einhverjar klukkustundir í súrefnisleysi við 180 til 190 gráður. Við þessa bökun karamelliserast sykurinn í viðnum og við það breytist liturinn. Þegar sykurinn er farinn er enginn matur eftir fyrir örverur. Viðurinn bakast alveg í gegn, sem er ólíkt yfirborðsmeðhöndlun þar sem kjarninn í viðnum er óbreyttur.

Sumar prufurnar enduðu sem brunarústir á meðan aðrar komu vel út. Ég held að ef við ætluðum að fara að gera þetta á stærri skala þyrfti að vera hægt að stýra ofninum mun nákvæmar, en þú vilt losna við allan raka úr viðnum áður en þú byrjar að baka hann. Eins er mikilvægt að hindra aðgang súrefnis, því að annars kviknar í viðnum,“ segir Brynjar.

Öspin verður eins og dýr viður

„Við framleiddum bakaða viðinn úr ösp, en gerðum einnig prufur úr reynivið, birki, greni og furu sem var áhugavert að sjá,“ segir Brynjar. „Okkur finnst spennandi að geta beitt þessari aðferð til að breyta notkun viðarins, en það er mikil verðmætasköpun fólgin í því að geta gert fín íslensk húsgögn í staðinn fyrir að kurla viðinn.

Eftir hitameðhöndlunina verður þægilegt að vinna með viðinn en hann verður aðeins stökkari og losnar við alla spennu og því er hann afar stabíll. Liturinn sem kemur við bökunina minnir á margan hátt á dökkan og dýran við. Við bárum prufurnar saman við hnotu og tekk og það var varla hægt að sjá mun. Þetta er hálfgerð gullgerðarlist, því að við hitameðhöndlun á ösp verður eitthvað allt annað efni til.

Við erum með sýningu í HAKK gallery sem verður opin út júlí. Þar er bæði hægt að sjá húsgögnin sem við hönnuðum og létum húsgagnasmiðinn Gústav Jóhannsson smíða fyrir okkur og viðarprufur af nokkrum ólíkum viðartegundum sem fólk getur skoðað ef það er forvitið. Verkin eru til sölu og eru allt frá sófaborði úr bakaðri ösp og blágrýti og annar hálfgerður skúlptúr sem getur nýst sem skilrúm og var málaður af leikmyndahönnuði,“ segir Brynjar. 

Skylt efni: hönnun

Tilraunir með að hitameðhöndla íslenskan við
Íslensk hönnun 11. ágúst 2026

Tilraunir með að hitameðhöndla íslenskan við

Í HAKK Gallery við Óðinsgötu í Reykjavík stendur yfir sýning á munum sem framlei...

Þjóðlegar kynjaverur úr þæfðri ull
Fréttir 2. október 2020

Þjóðlegar kynjaverur úr þæfðri ull

Katrín Grétarsdóttir byrjaði að vinna með íslenska ull árið 2003 og eftir það va...

WETLAND skarar fram úr í handverki og hönnun úr sauðfjárafurðum
Íslensk hönnun 17. janúar 2018

WETLAND skarar fram úr í handverki og hönnun úr sauðfjárafurðum

Á dögunum veitti Icelandic lamb nokkrum aðilum viðurkenningar sem skarað hafa fr...

HönnunarMars
Íslensk hönnun 4. nóvember 2013

HönnunarMars

HönnunarMars fer fram í sjötta sinn, dagana 27. – 30. mars 2014. Íslenskir hönnu...

Íslenskri hönnun gerð prýðileg skil í finnsku hönnunartímariti
Íslensk hönnun 28. október 2013

Íslenskri hönnun gerð prýðileg skil í finnsku hönnunartímariti

Út var að koma nýasta tölublað Glorian Koti í Finlandi en það er eitt helsta hei...