Dvergasokkar
Haustið nálgast með svalara tíðarfari. Fram undan eru göngur og réttir og útivist í alls konar aðstæðum og veðrum.
Við slíkar aðstæður þarf að vanda valið á hlífðarfatnaði og nota íslensku ullina í flestar flíkur sem notaðar eru við útivistina. Lopapeysur, ullarvettlingar og húfur eru staðalbúnaður og hnausþykkir ullarsokkar halda yl á hvaða fótum sem er við hvaða aðstæður sem skapast. Hér er að finna hefðbundna uppskrift að ullarsokkum þar sem teknar hafa verið saman almennar þumalputtareglur um prjónaskap og frágang á þessari nauðsynlegu flík. Stuðst er við hinn svokallaða Halldóruhæl, sem Halldóra Bjarnadóttir (f. 1871–d. 1981) prjónaði upp eftir skoskum sokk sem hún komst yfir, rakti upp og prjónaði aftur og lærði þannig hvernig ætti að prjóna slíkan hæl. Halldóra var handavinnukennari að mennt og ferðaðist um Ísland og kenndi handavinnu og lagði áherslu á að bæði stúlkum og drengjum væri kennd handavinna. Hún var afkastamikil hannyrðakona og er þekkt innan handavinnuheimsins á Íslandi.
Uppskriftin sem hér fylgir var birt áður í Bændablaðinu rétt fyrir jól árið 2021, en þar sem að þessi árstími nánast hrópar á ullarsokkaprjón, þá birtist hún hér aftur.
Uppskriftin miðar við garn sem búið er til í Uppspuna og heitir Dvergasokkar, en það garn er eingöngu úr íslenskri ull og styrkurinn felst í sérvalinni ull af kindum sem hafa langt og sterkt tog og þétt og mikið þel. Það eru kindur sem eru gjarnan tveggja til þriggja vetra, en þá eru þessir eiginleikar oft hvað mestir.
Nota má hvaða garn sem er við prjónið, en hafa ber þó í huga að sokka úr þessu garni má setja í moltuhauginn þegar að lokum þeir slitna svo að ekki er unnt að laga þá oftar, þar sem 100% ull brotnar niður og jarðgerist á einu og hálfu til tveimur árum, en það gerir plastlagt garn ekki.
Efni:
Dvergasokkar 200 m ca 200 gr
Sokkaprjónar nr 5,0
Dvergasokkar eru þykkir og slitsterkari en venjan er með ullargarn.
Það er gert úr 100% íslenskri ull og ekki blandað með plasti (nyloni) eins og algengt er með sokkagarn, en það er gert til að styrkja það. Íslenska ullin hefur náttúrulega styrkingu í löngu og öflugu togi og það er nýtt til að gera sokkagarnið okkar svona slitsterkt.
Uppskrift:
Fitjið upp 32 eða 36 lykkjur á prjóna nr 5,0
Bætið við 4 lykkjum ef fóturinn er þykkur og fækkið eftir þörfum fyrir barnastærðir.
Tengið í hring og prjónið stroff 2sl, 2br. allan hringinn.
Prjónið þar til stroffið er orðið eins langt og óskað er eftir. Til dæmis 20 cm stroff, prjónið þá 10 umferðir slétt og prjónið svo hæl.
Halldóruhæll:
Skiptið lykkjunum í tvennt og prjónið annan helminginn fram og til baka 12-16 umferðir. Matsatriði er hvort prjónað er slétt í báðar áttir og þannig búið til garðaprjón, eða slétt á réttunni og brugðið á röngunni og þannig verður hællinn sléttur.
Þegar hæll er nógu langur: (þumalputtaregla er að prjóna u.þ.b. jafnmargar umferðir og lykkjurnar eru á prjóninum ef lykkjur eru 18, prjónið 12-18 umferðir), er tekið saman á eftirfarandi hátt: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir, prj. 2 sl. saman, snúið við, prjónið br þar til 6 lykkjur eru eftir prj. 2 br. saman, snúið við. Prjónið fram og til baka og takið alltaf saman 2 lykkjur áður en snúið er við þar til einungis miðjulykkjurnar 8 eru eftir. Þá er hællinn kominn.
Takið upp lykkjurnar í hliðunum og prjónið í hring. Heppilegt er að taka upp um 10 - 14 lykkjur hvoru megin.
Prjónið eina umferð í hring. Athugið: Nú er ristin tekin niður þannig: Prjónið saman tvær lykkjur við ristina hvoru megin í hverri umferð, þar til aftur er sami lykkjufjöldi samtals á prjónunum og þið byrjuðuð með fyrir ofan hæl. Þannig að á prjónunum eru nú 36 lykkjur. Fallegra er að taka tvær lykkjur saman hægra megin á sokknum og vinstra megin að taka eina óprjónaða lykkju fram af, prjóna næstu og steypa þeirri óprjónuðu framyfir.
Prjónið framleistann. Góð regla er að „mæla á“ sem kallað er, en það er að prjóna stytta umferð á ilinni, það gerir betra lag á sokkinn. Stytt umferð er þegar snúið er við í hliðinni og ilin prjónuð fram og til baka einu sinni og svo prjónað áfram í hring. Góðar útskýringar má finna fyrir það á youtube með því að slá German short rows í leitargluggann. Þegar komið er að ristinni er snúið við.
Fyrsta lykkjan tekin óprjónuð fram af, bandið sett fram fyrir og togað í þar til lykkjan verður tvöföld, prjónað brugðið að hinni hlið iljarinnar og snúið við að nýju. Fyrsta lykkjan tekin óprjónuð fram af, bandið tekið fram fyrir prjóninn og togað í þar til lykkjan verður tvöföld. Þá er prjónað áfram í hring og þessar tvær lykkjur sem eru tvöfaldar prjónaðar sem ein.
Affelling:
Þegar litla táin er að hverfa í sokkinn, er passlegt að byrja að fella af. Góð regla er að fella af með því að í hvorri hlið eru teknar 2 l saman; Fyrstu 2 þannig; takið eina óprjónaða fram af, prjónið næstu, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið að hinni hliðinni slétt þar til 2 lykkur eru eftir, prjónið 2 l sl saman, prjónið 2 lykkjur saman eins og í byrjun og prjónið síðan að fyrri jaðri og prjónið þar líka saman 2 l sl. Nú hefur lykkjunum fækkað samtals um 4 því þið takið af í byrjun og enda hliðar báðum megin. Prjónið 2 umferðir án úrtöku og endurtakið síðan úrtökuna.
Prjónið 1 umf. án úrtöku og takið svo úr aftur eins og áður og endurtakið þetta tvisvar.
Síðan er tekið úr í hverri umferð, þar til 8 lykkjur eru eftir, Klippið þá frá og dragið í gegnum allar lykkjurnar og gangið frá lausum endum.
Skolið og leggið til þerris.
Klæðist og njótið.
Hulda Brynjólfsdóttir Smáspunaverksmiðjan Uppspuni / Sveitakarlinn ehf

