Alvarleg staða í túngrasatilraunum
Undanfarin ár hafa talsverð umsvif verið í kornræktartilraunum í gegnum verkefni sem heitir Vala. Hrannar Smári Hilmarsson, tilraunastjóri hjá Jarðræktarmiðstöð Íslands, fagnar því að lögð sé áhersla á eflingu kornræktar, en bendir á að í nokkur ár hafi rannsóknir sem snúa að túngrösum og öðrum jarðræktarmálum alveg legið niðri.

