Jörð.is og vorverkin
Mynd / Aðsend
Á faglegum nótum 13. maí 2026

Jörð.is og vorverkin

Höfundur: Borgar Páll Bragason
Borgar Páll Bragason.

Jafnt og þétt er unnið að því að gera úrbætur á Jörð.is til að mæta þörfum bænda og kröfum lögbundins jarðræktarskýrsluhalds. Þessar úrbætur tengjast því viðmóti sem bændur sjá og vinna með, en einnig úrbætur sem tengjast vinnsluhraða forritsins og gagnaöryggi sem notendur verða minna varir við.

Stórt skref var tekið þegar forritið var gert farsímavænt haustið 2023 sem gerði það raunhæfara fyrir bændur að skrá jarðræktarskýrsluhaldið jafnóðum. Fyrir tæpu ári kom síðan fyrsta útgáfa af mælaborði, en markmiðið er að þróa það enn frekar þannig að skýrsluhaldsgögnin nýtist sem best sem bústjórnartæki.

Í samstarfi við Efnagreiningu ehf sem efnagreinir m.a. hey- og jarðvegssýni fyrir bændur þá eru niðurstöðurnar gerðar aðgengilegar fyrir viðkomandi bændur, jafnóðum eftir greiningu. Á árinu 2025 voru þetta niðurstöður 2064 heysýna og 411 jarðvegssýna. Bændur þurfa sjálfir að tengja niðurstöður sýnanna við tilteknar spildur þar sem það á við og með þeim hætti er hægt að setja í samhengi upplýsingar um m.a. áburðargjöf og upplýsingar um efnainnihald heyja og jarðvegs.

Margar smávægilegar úrbætur hafa verið gerðar undanfarnar vikur sem einkum tengjast því að auka skilvirkni í skráningum og bæta við skráningarmöguleikum. Ekki verður farið sérstaklega yfir allar þessar úrbætur hér en notendur geta lesið meira um það í Jörð.is. Sérstök athygli er þó vakin á því að núna er hægt að skrá þegar heimaræktað sáðkorn er notað í kornrækt. Þetta er gert í samvinnu með atvinnuvegaráðuneytinu og með það að markmiði að fá yfirlit yfir notkun heimaræktaðs sáðkorns til að geta lagt mat á mikilvægi tiltekins sáðvöruframboðs, eftir misgóð kornræktarár.

Þá er einnig ástæða til að vekja athygli á því að búið er að endurbæta möguleika sem tengjast nýtingu á kortum og loftmyndum. Einkum snýr þetta að því að núna er hægt að skoða áburðaráætlanir á loftmynd þar sem túnin eru skilgreind með mismunandi litum eftir því hvaða áburðartegund áætlað er að nota. Einnig er hægt að sjá upplýsingar um fjölda sekkja á hverja spildu og fleiri praktískar upplýsingar sem nýtast við áburðardreifinguna. Þá er hægt að tengja staðsetningu símans og/eða tölvunnar við kortið og þannig er hægt að sjá á hvaða spildu verið er að vinna á hverju sinni.

Ástæða er til að minna á að gæði gagna ráðast mikið til af því hvort skráningar eru gerðar jafnóðum eða hvort beðið er með þær fram á síðustu stundu. Miklir framtíðar möguleikar felast í því að nýta skýrsluhaldsgögn jarðræktar í meira mæli við bústjórn og þá meðal annars til leiðbeininga við val á sáðvöru og magni og tegund áburðar. Rangar upplýsingar geta hæglega leitt okkur af leið í þeim efnum. Það er því til mikils að vinna, bæði í verklegum framkvæmdum og í skráningum.

Höfundur er fagstjóri rekstrar- og umhverfissviðs RML.

Skylt efni: RML | á faglegum n´otum

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...