Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Buffalo skór voru afar vinsælir hjá stúlknahljómsveitinni Spice Girls.
Buffalo skór voru afar vinsælir hjá stúlknahljómsveitinni Spice Girls.
Líf og starf 2. maí 2023

Léttstíg og leikandi í sumar

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Í heimi tískunnar er aldrei að vita hvert stefnir. Einn daginn er það klassík á borð við niðurþröngar buxur og rokkaraskó, en aðra daga mætti halda að þeir sem halda um taumana hafi gjörsamlega misst tökin.

Crocs á öðru leveli frá Balenciaga.

Þegar virðist sem enginn sé við stjórnvölinn koma í ljós atriði á borð við háhælaða Crocs skó Balenciaga svo og svokallaða „táskó“ – undir sama merki – sem hafa, þótt ótrúlegt sé, fengið afar góð viðbrögð. Hafa neytendur meðal annars upplifað sig afar kynþokkafulla í skónum sem gerðir eru úr endurunnu efni. Fréttaritari Vouge vildi sannreyna þann orðróm og varð ekki fyrir vonbrigðum. Á vefsíðu Vouge kemur fram: „Mér líður eins og ég sé að smeygja mér í klæðskerasaumaða silkihanska sem bæði gæla við hörundið og líta glæsilega út. Þéttur sóli skótausins leyfir mér svo að stíga þokkafullt til jarðar þar sem ég merki yfirráðasvæði mitt með eigin þunga.“

Hinir kynþokkafullu táskór Balenciaga.

Stórt og mjúkt

Nú er ekki vitað hvort allir upplifa sig á sama hátt og fréttaritari Vouge, en skórnir eru í það minnsta forvitnilegir. Ekki er hægt að dæma þá glæsilega út frá hönnunarsjónarmiði, en í dag virðist sem neytendur líti æ oftar framhjá útlitinu og versli frekar eftir andlegri upplifun sinni og vellíðan. Kemur það sem andsvar við óþægilegri hátísku sem oft á illa við annir daglegs lífs. Líkamleg vellíðan helst auðvitað í hendur við þá andlegu og má segja að áhrifavaldar víðs vegar um heiminn séu oftar en ekki að stíga skref í þá átt. Stórir og mjúkir strigaskór drottna nú yfir skótísku vorsins og spurning er hvort slíkt sé ekki akkúrat sumargjöfin í ár.

Strigaskótíska þeirra miðaldra

Nú velta lesendur ef til vill fyrir sér um hvers konar skó er að ræða. Þeir sem miðaldra eru muna gjarnan eftir Buffalo skótískunni sem þótti hvað helst móðins fyrir um 30 árum.

Var Buffalo upphaflega stofnað í Þýskalandi árið 1979, en náði á stall evrópskar hátísku um miðjan tíunda áratuginn. Voru stúlkurnar í hljómsveitinni Spice Girls þekktar fyrir að ganga í skónum sem voru jafnan með tíu sentímetra þykkum botni, en hinar allra djörfustu strunsuðu um í allt að tuttugu sentímetrum. Voru klassískir Buffalo skór helst svartir eða hvítir, en var þó að finna í öllum regnbogans litum.

Með tuttugustu og fyrstu öldinni döluðu vinsældir skónna en í dag virðist sem þeir séu að hljóta aukið fylgi. Á vefsíðu fyrirtækisins má sjá að skref hafa verið tekin í átt að vegan- stemningu þeirri, er ríkt hefur nú um nokkurt skeið hjá forsvarsmönnum tískuheimsins. Til að mynda er notast við endurunnin efni og lífræna bómull og segir á vefsíðu þeirra, buffalo-boots.com, að leitast sé við að halda áfram á þeirri braut.

Fyrir áhugasama má finna þar ýmiss konar skófatnað, bæði vegan og ekki.

HOKA, skór sumarsins.

Vor 2023

En þetta var útúrdúr. Það sem þykir nú allra smartast vorið 2023 eru strigaskór sem bera nafnið HOKA, vel þéttir og halda vel að fæti. Framleiðendur skónna, sem hófu starfsemi sína árið 2009 í Frakklandi, eru í raun undirfyrirtæki bandaríska fyrirtækisins Deckers sem hefur verið í framlínunni síðastliðin 50 ár.

Meðal annarra fyrirtækja undir vængjum Deckers má nefna UGG og Teva, sem bæði eru þekkt merki víðs vegar um heiminn. HOKA skórnir, sem hafa þó verið í framleiðslu í þó nokkur ár, hafa smám saman verið að klífa metorðastigann.

Breiddist hróður þeirra hratt út, meðal annars í hlaupasamfélagi bæjarins Boulder í Colorado-ríki Bandaríkjanna, eftir að hlaupari keypti hvorki meira né minna en 770 pör. Innan fárra ára voru strigaskór HOKA á listum yfir bestu skó markaðarins og viðurkenndir af úrvalsíþróttamönnum víða um heim. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja að upphaflega hafi hönnunin verið atlaga að lausn á því að fara sem hraðast niður brekkur án þess að renna, en sérstaða skónna er að stórum hluta sú að sólinn er í nokkurri yfirstærð.

Útkoman varð sú að þarna varð til lögun á hlaupaskóm sem ekki hafði áður þekkst, en er í dag einna helst sú tegund sem utanvegahlauparar
(og aðrir) kjósa við iðkun sína. HOKA skórnir þykja einstaklega þægilegir á fæti, mjúkir og hentugir fyrir þá sem þurfa að vera mikið á fótum í vinnu sinni og eiga jafnvel við eymsl að glíma í hnjám.

Segir orðrómur að notkun þeirra „sé eins og að ganga á skýjum“. En þetta er nú staðan í dag. HOKA skó má finna hérlendis á nokkrum stöðum og því um að gera að versla sér par ef áhugi er á því að klífa skriður, skríða kletta og þar fram eftir götunum – nú eða til þess eins að fylgja hátísku vorsins.

Skylt efni: tíska

Safnað fyrir Einstök börn
Líf og starf 26. apríl 2024

Safnað fyrir Einstök börn

Stóðhestaveisla Eiðfaxa var haldin 13. apríl í HorseDay-höllinni á Ingólfshvoli ...

Umhverfisvænar blómaskreytingar
Líf og starf 25. apríl 2024

Umhverfisvænar blómaskreytingar

Náttúruleg fegurð var í fyrirrúmi á námskeiði um blómaskreytingar í Garðyrkjuskó...

Sumardagurinn fyrsti
Líf og starf 25. apríl 2024

Sumardagurinn fyrsti

Samkvæmt dagatalinu kemur sumarið 25. apríl. Bændablaðið leitaði því til lesenda...

Lóan
Líf og starf 23. apríl 2024

Lóan

Lóan er komin! Um þessar mundir eru heiðlóur að tínast til landsins en apríl er ...

Jöklapeysur úr íslenskum lopa
Líf og starf 23. apríl 2024

Jöklapeysur úr íslenskum lopa

Mjólkurfræðingurinn og frumkvöðullinn Pétur Pétursson setur nú á fót hönnunarsam...

Að höndla sér hross til reiðar
Líf og starf 22. apríl 2024

Að höndla sér hross til reiðar

Orðsins list kemur að þessu sinni úr Íslendingasögunum.

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Líf og starf 16. apríl 2024

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands

Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum var krýndur Kjötmeistari Íslands í fagkep...

Paella með skelfiski
Líf og starf 16. apríl 2024

Paella með skelfiski

Paella er einfaldur réttur og til í ýmsum útgáfum, grunnurinn þó alltaf sá sami ...