Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Mjöll Sigurdís Magnúsdóttir við verk sitt, Alltaf til forystu, sem var afhjúpað við Fræðasetur um forystufé í Þistilfirði fyrir í sumar. Mynd / Daníel Hansen.
Mjöll Sigurdís Magnúsdóttir við verk sitt, Alltaf til forystu, sem var afhjúpað við Fræðasetur um forystufé í Þistilfirði fyrir í sumar. Mynd / Daníel Hansen.
Líf og starf 3. september 2018

Alltaf til forystu

Höfundur: Vilmundur Hansen

Nýlega var afhjúpað myndverk á pallinum við Fræðasetur um forystufé. Hönnuður verksins er Mjöll Sigurdís Magnúsdóttir, fædd 1999. Mjöll hefur unnið að ýmsu útgefnu efni og fyrir utan þennan skúlptúr þá má nefna 20 ára afmælismerki Dalvíkurbyggðar árið 2018.

Mjöll segir að verkið sé hugsað þannig að undirstaðan er rekaviðarbútur sem stendur upp á rönd, þar efst eru tálguð fjöll upp úr rekaviðnum. „Fjöllin er vegna tengingarinnar við forystufé sem leiðir kindahópinn oft heim af fjalli og við fé á Íslandi sem rekið er á fjöll á vorin. Fyrir ofan fjöllin er síðan steypa sem myndar klauf og það táknar ennfremur það síðarnefnda, að forystuféð fer fyrir hópnum. Hornin koma síðan af forystukindinni Þotu, en hún var níu vetra forystukind af Tröllaskaga.

Móðir Þotu var frá bænum Tunguseli á Langanesi og faðir hennar frá Klifshaga í Öxarfirði. Kjörumhverfi Þotu voru hæstu fjöll Tröllaskagans og þar þaut hún um og fékk einmitt nafn sitt af því. Þota var mjög veðurnæm og fann á sér þegar veðrabreytingar voru í nánd. Hún var alltaf mætt heim á hlað daginn fyrir vond veður.

Dalvískir trillusjómenn notfærðu sér þennan næma veðurfræðing og tóku upp báta sína og hættu við að fara á sjó þegar fréttist að hún væri komin heim því það var óbrigðult merki um að óveður væri í aðsigi.

Rekaviðurinn í verkinu tengist síðan landnámi Íslands og íslenska fjárstofninum þar með. Það voru einmitt víkingarnir sem komu fyrst með sauðfé til landsins svo að þar hófst þetta allt saman.“

Mjöll lauk stúdentsprófi af listnámsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri vorið 2018. Uppbygginga­­sjóður Norðausturlands styrkti verkefnið.

Ljós í myrkri
Líf og starf 14. maí 2025

Ljós í myrkri

Hver sem tekur sólböð háfjallasólarinnar – Original Hanau – finnur andlegt fjör ...

Fagur morgunn
Líf og starf 14. maí 2025

Fagur morgunn

Gleðilegt sumar, kæru landsmenn! Þessi fallega peysa er prjónuð úr DROPS Air, ne...

Jarðrækt í Gunnarsholti
Líf og starf 13. maí 2025

Jarðrækt í Gunnarsholti

Björgvin Þór Harðarson frá Laxárdal sáir hér vornepju 15. apríl síðastliðinn í 2...

Fjölmennu Reykjavíkurskákmóti lokið
Líf og starf 12. maí 2025

Fjölmennu Reykjavíkurskákmóti lokið

Dagana 9.–15. apríl fór Reykjavíkurskákmótið fram. Um er að ræða alþjóðlegt skák...

Búfræðingur í 75 ár
Líf og starf 12. maí 2025

Búfræðingur í 75 ár

Jón Kr. Magnússon útskrifaðist sem búfræðingur frá Hvanneyri 26. apríl árið 1950...

White Lotus og hlaðvörp um landbúnað
Líf og starf 9. maí 2025

White Lotus og hlaðvörp um landbúnað

Við lifum uppgangstíma sjónvarpsþáttaraðarinnar. Af fjölmörgum frábærum sjónvarp...

Fjölmenningarhátíð í Rangárvallasýslu
Líf og starf 9. maí 2025

Fjölmenningarhátíð í Rangárvallasýslu

Fjölmenningarráð Rangárþings eystra í samstarfi við nýstofnað fjölmenningarráð R...

Biblía allra tískuunnenda
Líf og starf 8. maí 2025

Biblía allra tískuunnenda

Eitt áhrifamesta tískutímarit veraldar er án efa Vogue. Þetta eitt mest áberandi...