Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Stofnandi ásamt núverandi eigendum Slakka, barnabörnum og tengdasyni. Talið frá vinstri: Matthías Líndal Jónsson, Baltasar Breki Matthíasson, Sigurrós Birta Matthíasdóttir, Gunnur Ösp Jónsdóttir, Egill Óli Helgason, Helgi Sveinbjörnsson og Rannveig Góa He
Stofnandi ásamt núverandi eigendum Slakka, barnabörnum og tengdasyni. Talið frá vinstri: Matthías Líndal Jónsson, Baltasar Breki Matthíasson, Sigurrós Birta Matthíasdóttir, Gunnur Ösp Jónsdóttir, Egill Óli Helgason, Helgi Sveinbjörnsson og Rannveig Góa He
Fréttir 19. september 2018

Yfir 25 þúsund manns hafa heimsótt Slakka á afmælissumrinu

Helgi Sveinbjörnsson og fjölskylda ákváðu að stofna dýra- og skemmtigarð árið 1993 í  garðyrkjustöðinni Slakka sem þau stofnuðu 1985 en var síðar úrelt. Þar höfðu þau  ræktað gúrkur og annað grænmeti, en þeirri starfsemi var hætt 2002. Nú eru liðin 25 ár frá stofnun dýra- og skemmtigarðsins og 2016 tóku börnin og tengdabarn við rekstrinum og hafa verið öflug í uppbyggingunni. 
 
Helgi segir að í garðyrkjustöðinni hafi þau verið með tvær endur til gamans sem hann byggði lítið hús fyrir. Þá tóku þau að sér refayrðling sem nefnd var Rósa. Fólk sem leið átti í gróðrarstöðina til að kaupa grænmeti hafði gaman af að skoða dýrin og það vatt smám saman upp á sig. Í framhaldi af þessu var Slakki stofnaður sem dýra- og skemmtigarður 1993. Var hann strax mikið sóttur af fjölskyldum sem leið áttu um Suðurland. Enginn aðgangseyrir var rukkaður fyrst í stað, en fólki gafst þó kostur á að setja aura í fóðursjóð fyrir dýrin. 
 
Ýmsar hugmyndir um að breyta gróðrarstöðinni
 
„Við hjónin höfðum rætt að ef við kæmumst út úr garðyrkjunni að gera eitthvað annað á staðnum. Setja upp heita potta í gróðurhúsinu eða annað í þeim dúr sem aldrei varð reyndar af, en dýrin voru alltaf til staðar.
 
Síðan missti ég konuna (Hólmfríði Björgu Ólafsdóttur) árið 2002 og þá varð vendipunktur í mínu lífi. Þá ákvað ég að fara að breyta gróðurhúsunum. Það sama ár var ákveðið að veita fjármagni til úreldingar á gróðurhúsum til að auðvelda fólki að hætta í greininni. Ég sótti um strax sama haust og fékk úreldingarstyrk gegn því skilyrði að ég ræktaði ekkert í húsunum næstu 10 ár. Ég mátti hins vegar nýta þau í eitthvað annað. Þessir peningar gerðu svo sem ekki mikið en ég fór þó í að setja upp golfvöll í einu húsinu.“   
 
Fjölbreytt úrval framandi dýra
 
Frá 2002 hefur starfsemin hægt og rólega undið upp á sig. Fyrir utan fjölmörg forvitnileg og framandi dýr, þá er þar boðið upp á veitingar og mínígolf undir þaki sem nýtur mikilla vinsælda, púttvöll og pool- eða billjardstofu þar sem hægt er að horfa á íþróttaviðburði í sjónvarpinu. Það skiptir því ekki máli hvort það er sól á lofti eða nokkrir dropar að falla af himnum ofan, Slakki klikkar ekki.
 
Börnin tekin við
 
Helgi segir að reksturinn hafi gengið upp og ofan en þessu frumkvöðlastarfi hafi eðlilega fylgt mikil vinna. 
 
„Ég er nú kominn út úr þessu og börnin hafa tekið við. Þar eru nú skráðir eigendur  Gunnur Ösp Jónsdóttir, elsta barnið sem er framkvæmdastjóri. Svo eru Egill Óli Helgason, yngri sonur minn, og Rannveig Góa Helgadóttir, yngri dóttir mín.“
 
25 þúsund gestir á 25 ára afmælissumrinu
 
Gunnur Ösp segir að í sumar hafi komið yfir 25 þúsund manns í Slakka og ekki annað að heyra en gestirnir séu ánægðir með það sem þarna er að finna. Margir komi svo þangað aftur og aftur og ár eftir ár. Hún segir að í júnímánuði hafi verið frekar rólegt, enda hafi margir á suðvesturhorni landsins frestað því að fara í einhver frí vegna stöðugra rigninga. 
 
„Í júlí gat fólk ekki geymt það lengur að fara í frí og þá var stefnan oft tekin á Slakka. Enda hægt að gera sér ýmislegt þar til skemmtunar innanhúss með börnunum þótt úti væri rigning,“ segir Gunnur.
Erlendum gestum hefur líka fjölgað mikið og erlendir starfsmenn sem starfa í garðyrkjustöðvum á svæðinu í kring hittast líka oft í Slakka til að gera sér glaðan dag. 
 
Miklar endurbætur 
 
Slakki hefur tekið verulegum breytingum á síðustu tveim árum. Búið er að bæta verulega við sýningaraðstöðu undir þaki og endurbæta aðstöðuna utanhúss, auka rými bæði fyrir dýrin sem þarna er að finna og gestina. Þá hefur dýrum verið fjölgað og finna má ýmis framandi dýr eins og skjaldbökur og auðvitað páfagaukana sívinsælu.
 
Búið er að taka eldhúsmálin fyrir veitingastaðinn í gegn samkvæmt ströngustu kröfum og endurbæta alla aðstöðu innanhúss og auka við veitingaplássið. Þar eru að sjálfsögðu vínveitingar eins og á vel flestum veitingastöðum landsins. Vatns- og raflagnir hafa einnig verið endurnýjaðar og stígar utanhúss.
 
Helgi segir einstaklega gam­an að sjá hvað fólk er viljugt að koma og njóta þess sem þarna er upp á að bjóða. Þarna er líka gott aðgengi fyrir fatlaða og góð aðstaða fyrir barnafólk til að njóta þess sem í boði er. Í mínígolfinu geta líka allir verið með, allt frá smábörnum og upp í afa og ömmur. 
 
Slakki er vel staðsettur á því mikla ferðamannasvæði sem Suðurland er orðið. Ekki minnkaði gildi staðsetningarinnar við nýju brúna yfir Hvítá sem skapaði hringleið fyrir ofan Reykholt  og yfir á Flúðir. Þá hefur Helgi og margir aðrir líka horft vonaraugum á væntanlega brú frá Árnesi og yfir Þjórsá þegar þar verður reist virkjun. Í dag eru um 90 kílómetrar frá Slakka í Galtalæk en það mun styttast niður í um 30 kílómetra eða svo með tilkomu brúar úr Árnesi og yfir. Þá verður öll Rangárvallasýslan komin á kortið hjá Slakka og öllum öðrum þjónustuaðilum á stóru svæði. Bættar samgöngur og vegtengingar skipta svæðið því verulegu máli. 

20 myndir: