Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Skuldbindingar staðfestar gagnvart  Parísarsamkomulaginu
Fréttir 28. september 2020

Skuldbindingar staðfestar gagnvart Parísarsamkomulaginu

Höfundur: Vilmundur Hansen

Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um loftslagsmál sem ætlað er að styrkja umgjörð skuldbindinga Íslands gagnvart Parísar­samkomu­laginu til 2030.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra segir á vef ráðuneytisins að samþykkt frumvarpsins marki tímamót í loftslagsmálum á Íslandi því með þessu hefur Alþingi staðfest alþjóðlegar skuldbindingar okkar gagnvart Parísarsamkomulaginu í gegnum samstarf við Noreg og Evrópusambandið. „Þessi niðurstaða Alþingis er því stórt skref í loftslags­málum og henni fagna ég innilega.“

Ætlað að styrkja umgjörð skuldbindinga Íslands

Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um loftslagsmál sem ætlað er að styrkja umgjörð skuld­bindinga Íslands gagnvart Parísar­­samkomulaginu til 2030. Með breytingunni er lögfest samstarf Íslands, Noregs og Evrópu­sambandsins um 40% heildarsamdrátt ríkjanna í losun gróðurhúsalofttegunda fram til 2030, miðað við losun ársins 1990.

Sameiginleg ábyrgð

Ísland og Noregur náðu í lok árs 2018 samkomulagi við Evrópusambandið um þátttöku í sameiginlegu markmiði 30 ríkja innan Parísarsamningsins. Samkvæmt samkomulaginu eru teknar upp tvær lykilreglugerðir ESB á sviði loftslagsmála, auk reglna um bókhald og skýrslugjöf og fleira.

Með samþykktri breytingu á loftslagslögum er veitt heimild til að innleiða þessar reglugerðir, en þær fjalla annars vegar um landnotkun, breytta landnotkun og skógrækt og hins vegar um sameiginlega ábyrgð, sem nær til losunar utan viðskiptakerfis ESB, svo sem frá samgöngum, sjávarútvegi, land­búnaði og meðferð úrgangs

 
Auknar vöktunarskyldur flugrekenda

Þá eru í lögunum ákvæði um breyt­ingar á viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS) á fjórða tímabili viðskiptakerfisins sem varir frá 2021–2030 sem og ákvæði um auknar vöktunarskyldur flugrekenda vegna hnattræns kerfis Alþjóða­flugmálastofnunar sem ætlað er að taka á losun frá flugumferð frá 2021.