Sjóklæðagerðin 66°N fagnar aldarafmæli
Ein helsta borgarhátíð Reykjavíkur, HönnunarMars, fór fram dagana 6.–10. maí sl. Hátíðin, árleg uppskeruhátíð hönnunar á Íslandi, breytir Reykjavík í lifandi sýningarsvæði þar sem allt frá fatahönnun og húsgögnum yfir í arkitektúr og stafræna nýsköpun fær að njóta sín. Bæði fyrirtæki og sjálfstæðir hönnuðir taka þátt og rótgróin fyrirtæki kynna þá oft sérstakar vörulínur, nýja hönnun eða halda jafnvel upp á hin ýmsu tímamót.
Eitt fyrirtækjanna er Sjóklæðagerðin 66°Norður sem í ár fagnar 100 ára afmæli. Af því tilefni var ákveðið að mynda 100 einstaklinga fædda á hverju ári sögu þeirra, árunum 1926–2026.
Ljósmyndarinn, Sigríður Margrét Ágústsdóttir, starfsmaður fyrirtækisins, hefur ferðast um landið þvert og endilangt við tökurnar, en hver og einn einstaklingur er myndaður í sinni eigin flík frá 66°Norður og undirstrikar verkefnið þannig hvernig fyrirtækið hefur þróast samhliða daglegu lífi Íslendinga í heila öld.
Sigríður segir einlægni augnabliksins standa upp úr við tökurnar, en hún myndaði fólk í sínu eiginlega umhverfi, komandi úr búðinni, við leik eða störf. Hún segir það hafa komið sér á óvart hversu tilbúið fólk var að taka þátt enda ekki sjálfgefið að vilja láta mynda sig. „Það er svo mikil fegurð falin í hversdagslífinu,“ segir Sigríður. „Og úr varð þessi fallegi þverskurður sem sýnir að 66°Norður er ekki bara vörumerki heldur hluti af sögunni okkar.“ Fannar Páll Aðalsteinsson, markaðsstjóri fyrirtækisins, tekur undir og segir að markmið tímamótanna hafi verið einfalt. „Við vildum fagna fólkinu, þeim sem hafa verið með okkur alla leið og sýna þverskurð af þjóðinni, enda hefur 66°Norður alltaf snúist um að vernda fólk fyrir mögnuðum kröftum náttúrunnar, hvort sem það er í leik eða starfi.“
Frá sjóklæðum til sjálfbærrar hönnunar
Saga 66°Norður, eða Sjóklæðagerðar Íslands, hófst í byrjun tuttugustu aldarinnar á Suðureyri við Súgandafjörð. Árið 1924 hélt stofnandinn, Hans Kristjánsson, utan til þess að kynna sér sjóklæðagerð með styrkveitingu Fiskifélags Íslands í farteskinu, en á þessum tíma klæddust flestir sjómenn skósíðum stökkum frá Noregi og Bretlandi og báru sjóhatta. Hans hafði annað í huga og við heimkomu nýtti hann þekkingu sína á klæðskurði til að hanna öruggan vinnufatnað með eilítið öðru sniði – sem stóðst þó öfgafullt veðurfar Norður-Atlantshafsins. Treglega gekk að finna hentugt húsnæði undir framleiðsluna og fór svo að Hans Kristjánsson flutti með fjölskyldu sína til Reykjavíkur árið 1926 og stofnsetti Sjóklæðagerð Íslands í bakhúsi við Laugaveg 42.
Á þessum árum er Sjóklæðagerð Íslands auglýst, ma. í tímaritinu Ægi:
„Á Laugavegi 42 er sjóklæðagerðin nú og hefir þegar fyrirliggjandi miklar birgðir af tilbúnum oliufatnaði, sem þegar hefir sýnt sig að vera hin bezta vara. Hr. Hans Kristjánsson býðst einnig til að bæta og bera á gömul olíuföt og ætti það að spara fiskimönnum mikið fé, þar sem þeir hvorki hafa tíma né tækifæri til að hirða þau og vill þá svo oft verða, að mikið er eftir af þeim, þegar þeim er fleygt. Ættu íslenzkir sjómenn að hlynna að þessu innlenda, þarflega fyrirtæki og verzla við Sjóklæðagerð Íslands.“
Allt frá upphafi var tilgangurinn skýr: að vernda íslenska sjómenn og björgunarsveitarfólk við erfiðustu aðstæður. Í dag hefur fyrirtækið þróast úr því að vera framleiðandi vinnufatnaðar í að verða alþjóðlegt útivistarmerki. Þrátt fyrir þessa breytingu er kjarninn sá sami – fatnaðurinn er hannaður til að endast. Þessi áhersla á gæði og endingu hefur haldist alla tíð og er grunnsteinninn í nálgun fyrirtækisins á umhverfismál.
Sjálfbærni í brennidepli
66°Norður leggur mikla áherslu á að ágmarka vistsporið sitt með nokkrum lykilþáttum. Með hringrásarhagkerfið í huga býður fyrirtækið upp á viðgerðarþjónustu á sínum flíkum til að lengja líftíma þeirra, auk þess að endurselja notaðan fatnað í gegnum sérstök verkefni.
Einnig eru vottuð efni í forgrunni, notast er við hágæða endurunnin efni og vörur sem uppfylla stranga umhverfisstaðla auk þess sem fyrirtækið vinnur markvisst að því að verða kolefnishlutlaust. Fylgst er náið með allri virðiskeðjunni, allt frá hráefnisöflun til flutninga.
Með því að blanda saman tæplega aldargömlu handverki og nýstárlegri tækni heldur 66°Norður áfram að verja okkur fyrir veðrinu – með virðingu fyrir náttúrunni að leiðarljósi. Þótt sjóstakkurinn hafi í dag runnið sitt skeið þá eru afsprengi hans – sjóbuxurnar, anorakkarnir og jakkarnir – enn í notkun dag og nótt á fiskimiðunum.
