Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Íslenskt kjúklingabú. Sameiginlegt átak stjórnvalda og kjúklingaframleiðenda hefur skilað því að tíðnið kampýlóbaktersýkinga á Íslandi er vel undir meðaltali í Evrópu.
Íslenskt kjúklingabú. Sameiginlegt átak stjórnvalda og kjúklingaframleiðenda hefur skilað því að tíðnið kampýlóbaktersýkinga á Íslandi er vel undir meðaltali í Evrópu.
Mynd / smh
Fréttir 11. apríl 2016

Kampýlóbaktersýkingar enn algengasta orsök matarsýkinga í Evrópu

Höfundur: smh
Þann 11. febrúar síðastliðinn voru birtar skýrslur Sóttvarnarstofnunar Evrópu (ECDC) og Evrópsku Matvæla­öryggisstofnunar (EFSA) um stöðuna í Evrópu árið 2014 hvað varðar sýklalyfjaþol baktería í dýrum, mönnum og umhverfi. 
 
Í umfjöllun Matvælastofnunar um skýrsluna kemur meðal annars fram að minni möguleikar eru á að meðhöndla alvarlegar kampýlóbaktersýkingar í fólki, vegna aukins þols gegn ciprofloxacin-sýklalyfjum. Kampýlóbaktersýkingar eru algengasta orsök matarsýkinga í Evrópu.
 
Í umfjölluninni kemur fram að stöðug aukning á sýklalyfjaþoli baktería í dýrum, mönnum og umhverfi sé sameiginlegt áhyggjuefni allra. Það sé stefna Evrópusambandins að vakta markvisst tilvist sýklalyfjaþolinna baktería og það sé hlutverk ECDC og EFSA að greina sameiginlega niðurstöður mælinga og gefa árlega út skýrslu um stöðu mála. 
 
 
Í nýjustu skýrslunni er fjallar um sýklalyfjaþol baktería sem teljast til náttúrulegrar flóru og baktería sem valda súnum (sjúkdómar sem berast á milli manna og dýra). Aðildarríki ESB og EFTA ríkin Ísland, Noregur og Sviss veittu þær upplýsingar sem skýrslan byggir á.
 
„Afar mikilvægt er að gæta nákvæmni í umræðu um hættur sem stafa af vaxandi þoli baktería gegn sýklalyfjum. Bakteríur eru jafn ólíkar innbyrðis og aðrar lífverur, það sem gildir um eina bakteríutegund á ekki endilega við um aðra.
 
Erfðaefnið sem veitir bakteríum þol gegn sýklalyfjum getur færst og þá með mismunandi hætti í aðrar bakteríur. Margir þættir hafa áhrif á hvort og hvenær það gerist. Það er ekki öruggt að bakteríur sem teljast til náttúrulegrar flóru (t.d. E. Coli) í einni dýrategund nái fótfestu í annarri dýrategund, þar á meðal í fólki. Þess vegna er ekki öruggt að erfðaefnið sem veitir bakteríunum t.d. þol gegn sýklalyfi flytjist á milli. Aukið lyfjaþol baktería er engu að síður talið ein alvarlegasta heilbrigðisógn samtímans og því eru rannsóknir í fullum gangi víða um heim til að afla betri þekkingar og vinna gegn þeirri hættu sem af þessu getur stafað,“ segir í umfjöllun Matvælastofnunar.
 
Matvælastofnun bendir á að samkvæmt skýrslunni eru minnkandi möguleikar á að meðhöndla alvarlegar kampýlóbaktersýkingar í fólki, vegna aukins þols gegn ciprofloxacin-sýklalyfjum. „Ciprofloxacin er talið vera mikilvægt úrræði þegar önnur sýklalyf virka ekki. Salmonellustofnar sýna áfram fjölónæmi, en það eru bakteríur sem þola þrjú eða fleiri sýklalyf.“
 
Aukið lyfjaþol baktería virðist ekki breiðast jafnt út um Evrópu. Hæst er tíðnin í Austur- og Suður-Evrópu, en í Norður-Evrópu er tíðnin lægri – sérstaklega í ríkjum þar sem sýklalyf eru lítið notuð í dýreldi.
 
Kampýlóbaktersýkingar aukast enn í Evrópu
 
Matvælastofnun greinir einnig frá skýrslu EFSA, Matvæla­öryggis­stofnunarinnar evrópsku, fyrir árið 2014 um áhættuna af því að smitast af sýklalyfjaþolnum bakteríum í Evrópu, en hún kom út í árslok á síðasta ári. 
„Varasamt er að einblína á lyfjaþolið eitt og sér þegar lagt er mat á hættuna af því að smitast af sýklalyfjaþolnum bakteríum í Evrópu, því útbreiðsla sjúkdómsvaldandi baktería í hverju ríki skiptir einnig miklu máli. Evrópska súnu-skýrslan sem gefin er út árlega af EFSA veitir þar góð svör.
 
Í skýrslunni fyrir árið 2014 kemur fram að kampýlóbaktersýkingar í fólki eru enn að aukast, en kampýlóbakter er algengasta orsök matarsýkinga í Evrópu og hefur verið það frá árinu 2005. Í þessu ljósi er aukið lyfjaþol kampýlobaktersýkla áhyggjuefni í Evrópu. 
 
Tíðni kampýlóbaktersýkinga í fólki hérlendis er vel undir meðaltali í Evrópu, þökk sé sameiginlegu átaki stjórnvalda og kjúklingaframleiðenda frá árinu 2000 til að stemma stigu við kampýlóbakter í kjúklingum,“ segir í greinargerð Matvælastofnunar um þessa skýrslu.
 
Hvorki salmonella né kampýlóbakter fannst á Íslandi
 
Matvælastofnun greinir einnig sérstaklega frá útkomunni varðandi þol salmonellustofna og kampýlóbakterstofna á Íslandi. „Í skýrslunni um lyfjaþol kemur fram að á árinu 2014 var sérstök áhersla lögð á skimun baktería úr kjúklingum, kjúklingakjöti og varphænum. Salmonellustofnar sýndu tiltölulega háa tíðni lyfjaþols, en þol gegn sýklalyfjum er mismunandi á milli sermisgerða, en salmonella skiptist í fjölmargar sermisgerðir. Hérlendis greindust fáir salmonellustofnar í alifuglum, en þeir stofnar sem greindust voru næmir fyrir öllum sýklalyfjum nema súlfonamid. Ekkert þol greindist í íslenskum stofnum gegn sýklalyfjum sem eru mikilvæg til meðhöndlunar á fólki. Í nokkrum ríkjum voru salmonellustofnarnir óvenju þolnir gegn t.d. ciprofloxacin og nalidixinsýru. Enginn íslenskur salmonellustofn sýndi þol gegn tveimur eða fleirum sýklalyfjum, sem má teljast gott samanborið við önnur ríki. Þess ber þó að geta að Ísland getur ekki borið sig saman við Noreg, Svíþjóð  og Finnland því þar greindist ekki salmonella í kjúklingum eða kjúklingakjöti árið 2014.
 
 
Allir kampýlóbakterstofnar sem greindust í íslenskum kjúklingum voru næmir fyrir öllum sýklalyfjum fyrir utan einn stofn (3,6 prósent), en sá stofn var með þol gegn tveimur sýklalyfjum. Þetta eru mjög jákvæðar niðurstöður, sérstaklega í ljósi þess hve tíðni kampýlobaktersmits í kjúklingaeldi er lág hérlendis. Í öllum öðrum ríkjum var tíðni sýklalyfjaþols kampýlóbaktería úr kjúklingum meiri en hér. 
Þol gegn ciprofloxacin var í mörgum löndum mjög mikið, eða að meðaltali í 70% stofna., Einungis fjögur ríki skiluðu inn niðurstöðum um þol á stofnum úr kjúklingakjöti, en ekki Ísland, þar sem kampýlóbaktersmit í kjúklingakjöti var ekki mælt árið 2014. 
 
Síðasta stóra könnunin á neytendamarkaði hér á landi var gerð yfir 12 mánaða tímabil frá maí 2012 til apríl 2013 í samvinnuverk­efni Matvælastofnunar og Matís. Þá voru tekin til rannsóknar 537 sýni af kjúklingaafurðum og  fannst hvorki salmonella né kampýlóbakter í þessum sýnum. Sýnatökur á markaði koma til viðbótar við öflugt eftirlit með eldi alifugla og við slátrun þeirra.“
 
Vel fylgst með þoli gegn síðasta úrræðinu við fjölónæmum bakteríum
 
Matvælastofnun minnist sérstaklega á að fylgst sé vel með þoli gegn carbapenem sýklalyfjum. Munu tilteknar bakteríur, svokallaðar gramneikvæðar bakteríur myndað aukið þol gegn þessum flokki sýklalyfja á undanförnum árum.. Þetta valdi sérstökum áhyggjum með tilliti til lýðheilsu, því carbapenem sýklalyf eru talin vera síðasta úrræðið í meðhöndlun á fólki sem sýkt er af fjölónæmum bakteríum. 

4 myndir:

Hvað þýðir aðild að ESB?: „Svínaræktin myndi ekki standast breytingarnar“
Fréttir 12. júní 2026

Hvað þýðir aðild að ESB?: „Svínaræktin myndi ekki standast breytingarnar“

Ingvi Stefánsson, formaður svínabænda, segir í nýjasta þætti Útvarps Bændablaðsi...

Opnar á nýja möguleika í fóðurtilraunum
Fréttir 12. júní 2026

Opnar á nýja möguleika í fóðurtilraunum

Á Hesti í Borgarfirði, sem er sauðfjárbú rekið af Landbúnaðarháskóla Íslands, he...

126 milljónum úthlutað  til landbúnaðarverkefna
Fréttir 12. júní 2026

126 milljónum úthlutað til landbúnaðarverkefna

Alls hlutu 42 verkefni styrk úr Matvælasjóði 2026 upp á 479,4 milljónir króna. 1...

Framleiðsluvirði landbúnaðarins 100 milljarðar árið 2025
Fréttir 12. júní 2026

Framleiðsluvirði landbúnaðarins 100 milljarðar árið 2025

Heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins árið 2025 er áætlað 100 milljarðar sem er...

Mikill gangur í LED-væðingu
Fréttir 12. júní 2026

Mikill gangur í LED-væðingu

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur veitt fjármunum á undanförnum mis...

Tjón unnið á kjúklingabúi
Fréttir 11. júní 2026

Tjón unnið á kjúklingabúi

Brotist var inn í alifuglabúið að Reykjum í Mosfellsbæ aðfaranótt 1. júní þar se...

Búvörusamningar framlengdir til 2027
Fréttir 11. júní 2026

Búvörusamningar framlengdir til 2027

Búvörusamningar hafa verið framlengdir um eitt ár en þeir hefðu annars runnið út...

Opnað fyrir umsóknir
Fréttir 10. júní 2026

Opnað fyrir umsóknir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fyrirframgreiðslu jarðræktarstyrkja vegna ko...