Hólar í Hjaltadal rétt svar við myndagetraun
Hólar í Hjaltadal voru staðurinn sem sást í myndagetraun síðasta tölublaðs Bændablaðsins.
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson hlýtur verðlaunin að þessu sinni en nafn hans var dregið úr vel á annað hundrað réttra svara. Við óskum Ingólfi Ásgeiri til hamingju.
Getraunin er unnin í samstarfi við Loftmyndir ehf. og eru verðlaunin í þeirra boði, út að borða fyrir tvo.
