Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Eldislax fóðraður á timbri
Fréttir 10. desember 2020

Eldislax fóðraður á timbri

Höfundur: Vilmundur Hansen

Eldisstöð Hafrannsóknastofnunar í Grindavík vinnur að tilraunaverkefni fyrir Matís, þar sem lax er alinn á fóðri sem upprunnið er úr timbri. Verkefnið er hluti af Evrópuverkefninu Sylfeed sem er alþjóðlegt fjögurra ára verkefni sem snýst um að búa til prótein úr aukaafurðum frá skógariðnaði.

Auk Matís taka alls 10 stofnanir og fyrirtæki þátt í samstarfinu, þar á meðal fyrirtækin Arbiom, Norske Skog Golbey (í Frakklandi) og Fóðurverksmiðjan Laxá.

Aukaafurðum breytt í prótein

Ragnar Jóhannsson, sviðsstjóri fisk­eldis og fiskiræktunar hjá Haf­rannsókna­stofnun, segir í frétt á heima­síðu stofnunarinnar: „Að sjálfsögðu er ekki mikið prótein í timbri sem fiskar gætu melt en verið er að þróa aðferð þar sem aukaafurðum, svo sem sagi úr vinnslu lauftrjáa, er umbreytt í fásykrur sem ákveðin gerð gersveppa getur nýtt sér og myndar úr þeim svokallað einfrumuprótein. Þetta einfrumuprótein hefur hagstæða amínósýrusamsetningu sem jafnast á við fiskimjöl.“

Hafrannsóknastofnun vinnur nú að fóðurtilraunum á stórum skala þar sem eldislax er alinn á þessu fóðri og mælingar gerðar á vexti og fóðurnýtingu.

Dýraprótein takmörkuð auðlind

Ragnar segir einnig að til að ala fisk, og reyndar fleiri dýr svo sem kjúkling og svín, þarf próteinríkt fóður. „Stór hluti fóðurs í dag er úr jurtapróteini, gjarnan sojamjöli. Lax getur þó ekki verið jurtaæta eingöngu og verður að fá hluta próteins úr dýraríkinu og þá er notað fiskimjöl. Fiskimjöl er unnið með bræðslu uppsjávarfiska sem er takmörkuð auðlind og uppsjávarfiskar fara í auknum mæli beint til manneldis. Mjölið sem framleitt er í þessu verkefni getur uppfyllt vaxandi þörf fyrir dýraprótein til fiskeldis og annarrar matvælaframleiðslu.“

Í Evrópu eru möguleikar á að framleiða mjög mikið magn af einfrumupróteini með þessum aðferðum og stuðla þannig að auknu matvælaöryggi álfunnar.