Breytingar á fasteignaskráningu orku
Í samráðsgátt stjórnvalda er til umsagnar frumvarp um að undanþága orkumannvirkja frá fasteignamati verði afnumin til að stærri hluti tekna renni til nærsamfélags.
Frumvarp í samráðsgátt stjórnvalda gerir ráð fyrir umfangsmiklum breytingum á skráningu stórra og flókinna mannvirkja, einkum orkumannvirkja, með það að markmiði að tekjur af orkuvinnslu renni í auknum mæli til nærsamfélags.
Frestur til að senda umsögn eða ábendingar um frumvarpsdrögin er til og með 6. mars.
Afnám undanþágu og tekjureglur
Ein helsta nýbreytni frumvarpsins er að orkumannvirki falli ekki lengur utan fasteignamats, sem á að tryggja að tekjur skili sér til þeirra sveitarfélaga sem verða fyrir mestum áhrifum. Þannig verði undanþága orkumannvirkja frá fasteignamati afnumin, að undanskildum dreifikerfum raforku. Til þess að tekjur skiptist sanngjarnt eru settar fram dreifireglur um hvernig fasteignaskattstekjum skuli úthlutað milli sveitarfélaga sem verða fyrir áhrifum af orkuvinnslu. Þá er einnig tekið á hámarksviðmiðum fasteignaskattstekna á hvern íbúa.
Gert er ráð fyrir aðlögunartíma þar sem ný orkumannvirki verða undanþegin fasteignaskatti fyrstu þrjú starfsárin, til að létta byrðar á upphafstímabili framkvæmda.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir þetta eiga að tryggja sanngjarnt endurgjald til nærsamfélaga og ryðja úr vegi hindrunum sem hafi tafið uppbyggingu orkumannvirkja um land allt.
Rýmiseign ný tegund fasteignar
Í frumvarpinu er jafnframt lagt til að innleidd verði ný tegund fasteignar, svokölluð rýmiseign, sem afmarkast af þrívíðu rými í stað hefðbundinna lóðamarka. Rýmiseignin nær yfir mannvirki eða mannvirkjakerfi sem mynda heildstæða einingu, svo sem orkuvinnslukerfi, samgöngumannvirki eða iðnaðarsamstæður.
Nýju reglurnar eiga að einfalda skráningu mannvirkja sem liggja yfir eða undir mörgum fasteignum eða þvert á sveitarfélagamörk, þar á meðal orku- og samgöngumannvirkja og neðanjarðarbygginga. Í tengslum við innleiðinguna eru jafnframt lagðar til breytingar á skipulags- og mannvirkjalögum til að tryggja samræmda stjórnsýslu og skiptingu tekna milli sveitarfélaga.
