Verkefni í sauðfjárrækt hlutu samtals 20,2 milljónir króna.
Verkefni í sauðfjárrækt hlutu samtals 20,2 milljónir króna.
Mynd / Zosia Szopka
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. Flestir styrkir fóru til verkefna sem snéru að sauðfjárrækt en hæsti styrkurinn fór til verkefnis í garðyrkju.

Tíu verkefni í sauðfjárrækt hlutu samtals 20,2 milljónir króna, sex verkefni í nautgriparækt hlutu samtals 14,8 milljónir króna, eitt afsláttur verkefni í hrossarækt fékk styrk upp á 2,4 milljónir króna og eitt verkefni í garðyrkju hlaut styrk sem nam 30 milljónum króna. Þróunarfé búgreina er ætlað að styðja við kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og þróun í greinunum. Atvinnuvegaráðherra úthlutar styrknum og fagráð búgreina leggur faglegt mat á umsóknir en meðmæli þess eru forsenda styrkveitinga ráðuneytisins.

Verkefnin sem hlutu styrkveitingu voru fjölbreytt og sneru til að mynda að rannsóknum, fundarhöldum og fræðslu. Í nautgriparækt var það meðal annars verkefni sem sneri að fósturvísaflutningum í íslenskum kúm sem hlaut styrk. Verkefni um hámörkun á magni og gæðum uppskeru með notkun fjölrásafjarkönnunarmynda og verkefni um áhrif brennisteins, magnesíums og kalsíums í áburði á uppskeru og efnainnihald fóðurs fengu styrk í bæði nautgriparækt og sauðfjárrækt. Rannsókn á umhverfissmiti á riðubæ, afkvæmarannsóknir á hrútum og frumrannsókn á eðli og erfðum kollótta og gula litarins í sauðfé voru meðal þeirra verkefna sem fengu styrk í sauðfjárrækt. Í hrossarækt rann styrkurinn til verkefnis um afnæmingu hesta með sumarexem og í garðyrkju var það ráðgjöf erlendra garðyrkjuráðunauta.

Verkefnin voru á vegum Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, Búnaðarsambands Eyjafjarðar, Landbúnaðarháskóla Íslands, Bændasamtaka Íslands, Tilraunastöðvar Háskólans Keldna og Karólínu Elísabetardóttur, bónda og frumkvöðuls. 

Mótið 2026 fer vel af stað!
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum ...

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...