Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Hafragrautur og hnetubrauð
Matarkrókurinn 12. júní 2020

Hafragrautur og hnetubrauð

Höfundur: Bjarni Gunnar Kristinsson
Margir slá á „blundhnappinn“ á morgnana of oft,  morgunmaturinn verður þá ekki eins skipulagður og hollur og  hann ætti að vera. Haframjölsbollar eru ekki ný uppfinning en oft eru þeir sem seldir eru í búðum bættir með sykri og öðrum efnum. Þessir eru fullkomlega aðlagaðir að smekk hvers og eins. 
 
Hugmyndin að baki skjótum haframjölsbollum er einföld: Setjið haframjöl, þykkingarefni (fínt haframjöl) og uppáhaldsáleggið ykkar í krukku sem bíður bara eftir heitu vatni þegar þið eruð tilbúin að borða. 
Geymið tilbúna hafra­mjöls­bollana á köldum, dimmum stað, eins og í búri, í allt að þrjá mánuði.
 
Þegar þið eruð tilbúin að borða þá eru tvær leiðir til að elda haframjölið. Fyrsti valkosturinn er að bæta 1/2 bolla (eða meira) af sjóðandi vatni í krukkuna, hræra, hylja og láta sitja í fimm mínútur. Hafrarnir og haframjölið munu gleypa vatnið og verða að fullkomlega rjómalöguðum bolla af höfrum (gott er að hita aðeins aftur í örbylgjuofni). Önnur aðferðin er að bæta við 1/2 bolla (eða meira ef þið viljið þynnri haframjöl) af köldu vatni í krukkuna og setjið hana í örbylgjuofn í þrjár mínútur og fjarlægið þá krukkuna úr örbylgjuofninum, setjið lokið á og látið standa í tvær mínútur.  
 
Hafra- og fræbollar
  • 5 bollar gamaldags haframjöl, má setja hluta tröllahafra
  • 1/2 msk. kókos sykur, hunang eða döðlur (fyrir smá sætu)
  • 1 tsk. kanillduft
  • 1/2 tsk. salt
 
Valfrjáls viðbót 
(ofan á hvern bolla):
  • 1/3 bolli þurrkaðir ávextir, svo sem rúsínur, saxað epli, kirsuber eða jarðarber
  • 1/4 bolli kókoshnetuflögur
  • 1/4 bolli saxaðar hnetur
  • 2 msk. lítill súkkulaði-múslí  eða hnetusmjör
  • Gott er að bæta kaldri mjólk, banana og ferskum eða frosnum berjum á toppinn
Vinnið saman 1 bolla af höfrunum í haframjöl. Setjið bolla af höfrunum í matvinnsluvél, eða litla kryddkvörn og „púlsið“ þetta saman í fínt haframjöl, þetta mun hjálpa til við að gera grautinn þykkan og gera haframjölið kremkennt. Flytjið yfir í stóra skál.
 
Blandið saman höfrum, haframjöli, sætuefni að eigin vali, kanil og salti í stóra skál. Skiptið hafrablöndunni niður í skammta sem nema um hálfum bolla í átta krukkur eða önnur lokuð ílát eins og einnota kaffibolla. Bætið hvaða sælkerahráefni sem er ofan á  hverja krukku.
 
Lokið og geymið. Hyljið krukkurnar og geymið við stofuhita þar til þær eru tilbúnar til notkunar.
 
Þegar á að njóta, bætið hálfum bolla af sjóðandi vatni í hvert ílát. Hrærið til að blanda vel saman, hyljið aftur og látið sitja í fimm mínútur eða í eina mínútu í örbylgjuofni.
 
Leiðbeiningar um eldun eingöngu í örbylgjuofni: 
 
Einnig er hægt að bæta við köldu vatni og sjóða í örbylgjuofni í eina mínútu.  Látið sitja í tvær mínútur og njótið.
 
 
Girnilegt og gott hnetubrauð 
  • 3 egg
  • 300 g ósöltuð hnetublanda, fæst til dæmis í Costco ( hakkið helminginn í matvinnsluvél)
  • 300 g fræblanda og þurrkaðir ávextir, eins og trönuber eða apríkósur
  • 2 tsk.  flögusalt
  • 0,5 dl  bráðið smjör ef vegan er gott að nota ólífuolíu 
Aðferð
Stillið ofninn á 175 °C.
 
Hakkið gróft helminginn af hnetublöndunni, setjið í skál.
 
Blandið saman öllum hnetum og fræjum ásamt hökkuðum hnetum í skál.
 
Bræðið smjörið og setjið út í.
 
Bætið eggjunum út í og hrærið vel saman.
 
Gott er að setja smjörpappír í formið, smyrjið samt með smá olíu, setjið deigið varlega ofan í, sléttið og jafnið toppinn, setjið í ofninn og bakið í 45 mínútur.
 
Látið kólna aðeins á grind áður en það er borðað.
 
 
Japanskt mjólkurbrauð
 
Hokkaido-mjólkurbrauð er ótrúlega mjúkt og loftmikið, þökk sé einfaldri tækni sem felur í sér hveitijafnings-„startara“, sem heitir tangzhong. Hveitijafningi er blandað saman í lokaútgáfu deigsins og framkallar það dásamlega mjúkt brauð.
 
Tangzhong (fordeig eða hveiti-jafningur)
  •  3 msk. (43 g) vatn
  •  3 msk. (43 g) nýmjólk
  •  2 msk. (14 g) gott brauðhveiti
Deigið
  • 2 1/2 bollar (298 g) hveiti
  • 2 msk. (18 g) mjólkurduft  eða 2 mat- skeiðar (11g) þurrmjólk
  • 1/4 bolli (50 g) sykur
  • 1 tsk. salt
  • 1 msk. þurrger
  • 1/2 bolli (113 g) nýmjólk
  • 1 stórt egg
  • 1/4 bolli (4 msk., 60 g) brætt ósaltað smjör
Til að búa til tangzhong: Sameinið öll innihaldsefnin í litlum potti og þeytið þar til engir kekkir eru eftir.
Setjið pottinn á lágan hita og eldið blönduna, þeytið stöðugt, þar til hún er þykk og skán myndast á botni pönnunnar, í um þrjár til fimm mínútur.
 
Flytjið tangzhong yfir í litla blöndunarskál eða mælibikar og látið það kólna niður að stofuhita.
Til að búa til deigið: Blandið tangzhong saman við hráefnið (deigið) sem eftir er, blandið síðan saman og hnoðið saman – með hendi eða hrærivél – þar til það er slétt og teygjanlegt.
 
 Mótið deigið í kúlu og látið það hvíla í létt smurðri skál í 60 til 90 mínútur, þar til það er orðið loftkennt en ekki endilega tvöfaldað í stærð.
 
Losið deigið varlega úr skálinni og skiptið því í fjóra til átta jafna hluta og mótið hvert stykki í kúlu.
 
Setjjið kúlurnar í létt smurt form eða pönnu. Breiðið yfir pönnuna og látið brauðið hvíla í 40 til 50 mínútur, þar til það er orðið aðeins loftkennt.
 
Hitið ofninn í 180 gráður. Penslið brauðið með mjólk eða eggjablandi (1 stórt egg slegið með 1 msk. köldu vatni) og bakið í 25 til 30 mínútur, þar til það er orðið gullbrúnt ofan á og mælið með hitamæli, miðjan ætti að vera að minnsta kosti 90 gráður.
 
Takið brauðið úr ofninum. Leyfið því að kólna í minnst 10 mínútur.
 
Ábending:
Þetta mjúka deig  er líka nothæft í fallega steikta kleinuhringi eða kanilsnúða.
Buff í brúnni
Matarkrókurinn 23. nóvember 2023

Buff í brúnni

Kíló fyrir kíló og krónu fyrir krónu er nautahakkið sennilega fjölbreyttasta pró...

Pönnuréttir úr afgöngum
Matarkrókurinn 13. nóvember 2023

Pönnuréttir úr afgöngum

Matarsóun er alltof mikil hjá okkur Íslendingum rétt eins og flestum vestrænum þ...

Napolí, New York ... Kópavogur
Matarkrókurinn 26. október 2023

Napolí, New York ... Kópavogur

Frá því að Íslendingar kynntust pitsum í fyrsta sinn fyrir alvöru, um og eftir m...

Rauðspretta í pönnu
Matarkrókurinn 12. október 2023

Rauðspretta í pönnu

Rauðspretta er afar góður matfiskur og er í algjöru uppáhaldi á mínu heimili þeg...

Veturgamalt í vetur
Matarkrókurinn 28. september 2023

Veturgamalt í vetur

Lambakjötið er nú flest allt komið úr dölunum, af fjöllum og heiðum. Þar sem það...

Steikt lamba rib-eye
Matarkrókurinn 14. september 2023

Steikt lamba rib-eye

Haustið er komið og með því göngur og réttir í sveitum landsins og meðfylgjandi ...

Miðaldramanna-salat
Matarkrókurinn 31. ágúst 2023

Miðaldramanna-salat

Árin færast hratt yfir og miðöldrunin gengur vel. En svo byrjar að smella í öllu...

Hamborgari
Matarkrókurinn 16. ágúst 2023

Hamborgari

Góður hamborgari á allar sínar vinsældir skilið, en er samt auðvitað bara hambor...