Vönduð óþekkt
Haustið er mætt og það þýðir að nú er kominn tími til að stokka aðeins upp í fataskápnum eða fyrir þá hagsýnni, grafa upp löngu gleymda fjársjóði. Það er nefnilega þannig að ef fjárfest er að upplagi í vönduðum fötum, þá koma þau skemmtilega á óvart ef ákveðið er að standa í gullgrefti.
Nú, hausttískan á þessu ári snýst að miklu leyti um að finna jafnvægi á milli þess að vera í þægilegum, klassískum fötum en ganga aðeins á lagið með það sem fellur undir óþekkt. Það eru nefnilega smáatriðin sem gera gæfumuninn að þessu sinni. Þegar kemur að litum þá ber ekki á öðru en að kirsuberjarauður, „terrakotta“ (djúpur, jarðbrúnn litur með hlýjum blæ af appelsínugulum og rauðum undirtónum) kolgrár, eða espressóbrúnn í djúpum tónum séu allt litir haustsins.
Sá síðastnefndi kemur sterkur inn í stað svarts litar enda gefur hann mýkra og hlýlegra yfirbragð, sérstaklega ef valdar eru flíkur úr rúskinni eða flaueli. Reyndar fær svartur að eiga leik, en einungis þegar kemur að allra smæstu smáatriðunum.
Svo verður einnig litið til endurkomu silkiklúta og höfuðklúta. Meðal annars er ekki úr vegi að binda fallegan silkiklút yfir hárið, svolítið í anda sjöunda og áttunda áratugarins, en slíkir klútar eiga einstaklega vel við stór sólgleraugu og síða rykfrakka. Einnig má hnýta minni og þynnri silkiklúta þétt upp við hálsinn eða kasta stórum og grófum ullarklút yfir axlirnar þegar fer að kólna verulega í veðri.
Nú, rúskinn er enn hæstmóðins ... en gaman er að segja frá því að vart hefur verið við skemmtilega tilbreytingu nú í haust. Fyrir þá sem vilja vera með á nótunum, eru vel aðsniðin jakkaföt og pilsdragtir að komast á kortið. Vel ... þá út í það að vera ögrandi, sem gerir hefðbundið skrifstofulúkk mun djarfara en ella. Kannski kominn tími til reyndar að ýta aðeins við klassíkinni og langt síðan ýtt var undir stundaglaslúkkið, en sniðin eru til dæmis ýktari, með áberandi öxlum, örlítið flegnari en gott þykir eða tekin inn í mittinu. Mjó bindi, eða hálsslaufur geta gert gæfumuninn, helst dökk að lit – en þau kitla oft ímyndunarafl hjá fólki þó allar tölur séu hnepptar upp í háls. Sokkabuxur eða háir sokkar flokkast þarna einnig undir ögrandi aukahluti og svokölluð
„cateye“ augnmálning að sama skapi. Andlitsmálning skal að öðru leyti vera hlutlaus. Ef ekki er lögð áhersla á augnsvæðið má hins vegar setja á sig varalit. Kirsuberjarauða eða skærrauða helst, nú eða í espressó- og mokkalitum sem þykja víst það alheitasta nú með haustinu. Það skal þó hafa bak við eyrað að nauðsynlegt er að hafa einhvern hemil á sér. Stutt pils eiga við rúllukragapeysur, eða vel hnepptar skyrtur og flegnari eða aðþrengdari flíkur að ofanverðu verða að hafa jafnvægi að neðan. Jafnvel þó gaman megi hafa af örlítilli óþekkt.
Blúndur, háir hælar við gallabuxur, blússa þar sem hneppt er einni tölu neðar en sæmilegt þykir og hálsklútar jafnvel út í svört mjó silkibindi við hvíta skyrtu – hver og einn verður að finna villinginn í sér.
En nú hefur verið farið á handahlaupum yfir hitt og þetta sem gefur tískunni lit í haust. Með það í huga að þessi þáttur er ekki einungis ætlaður kvenfólki, verða hinir að grafa upp klútana og leyfa skyrtuhnöppunum að njóta vafans...
