Stjörnuspá vikunnar
Vatnsberinn hefur eytt fullmiklum tíma í einhvers konar híði að undanförnu og bæði líkami og sál kalla á hreyfingu. Því er um að gera að fá sér göngutúr – helst í roki, og fá svolítið súrefni í heilann því ekki veitir af! Næstu vikur eru nefnilega mikilvægar bæði í ástar- og fjármálum og því þarf að gera skýra áætlun um það sem skiptir máli. Happatölur: 7, 17, 42.
Fiskarnir geta glatt sig við það að nú stefnir í þó nokkurn fjárhagslegan glaðning sem léttir á áhyggjum síðustu vikna. Þó er mikilvægt að fara varlega með þessa peninga og setja hluta til hliðar, enda sparnaður ætíð af hinu góða. Gæta skal að veikindum sem sveima yfir, en þau geta orðið þrálát. Happatölur: 3, 11, 29.
Hrúturinn má ekki ganga fram af sér eða hunsa þreytuna sem hann finnur fyrir, því ef ekki er tekið á þeim málum mun það enda með ósköpum. Í ástinni þarf að sýna þolinmæði og gefa hlutunum svigrúm til að þroskast eðlilega. Ekki ýta neinu áfram sem á ef til vill ekki að gerast. Happatölur: 1, 9, 21.
Nautið finnur að þörfin fyrir öryggi er mikilvæg og því gott að gera langtímaáætlun. Engar áhyggjur þarf þó að hafa því allt er á uppleið. Í ástarsamböndum og samböndum við sína nánustu ætti nautið ekki að bíða eftir því að annað fólk lesi hugsanir þess, heldur segja nú hátt og skýrt hvernig því líður. Happatölur: 4, 14, 33.
Tvíburinn má eiga von á óvæntum tímum fram undan í einkalífinu og möguleika á einhverju æsilegu hvað sem það nú þýðir. Þarft er að gæta vel að öllu óvæntu sem verður á vegi tvíburans, ekki síst ef hann ætlar sér að hafa einhverja yfirsýn yfir allann æsinginn. Happatölur: 5, 12, 38.
Krabbinn þarf að passa upp á heilsuna og vera viss um að klæða sig vel. Hann hefur reyndar (að venju) sterka þörf fyrir að vernda sjálfan sig, en þarf að gæta þess að loka sig ekki inni tilfinningalega – sem er eilítið skref frá því að bara klæða sig skynsamlega. Að þora að opna sig er forsenda þess að dýpka allt það sem lífið býður upp á. Happatölur 2, 16, 27.
Ljónið er í miklu stuði þessa dagana þegar kemur að endurbótum lífs síns, hvort sem er að taka sig á í líkamsræktinni eða setja sér langtímamarkmið í fjármálum. Það krefst þess þó að fórna einhverjum skammtímaþægindum og hugsa vel um útgjöldin ... Ljónið þarf að muna að virði þess fer eftir innri styrk og raunverulegu jafnvægi. Happatölur 8, 19, 44.
Meyjan þarf að muna að enginn mannlegur einstaklingur er gallalaus. Hvorki hún sjálf né hennar nánustu. Fullkomnunarárátta eða óþarfa áhyggjur af öðrum geta skemmt fyrir frekar en hitt, þannig nú þarf meyjan að einbeita sér að öðru. Hún getur t.d. glaðst yfir því hversu vel gerð hún er sjálf, aldrei að vita nema það smiti yfir á aðra. Maður má alltaf vona. Happatölur: 6, 15, 30.
Vogin þarf að hlusta á líkamann áður en of mikil þreyta skilar sér í veikindum eða orkuleysi. Hún ætti að slaka á og horfast í augu við einföldustu staðreyndir því lífið er ekkert flóknara. Treystu og trúðu bara á allt hið góða, það er þarna, bara ef vogin slakar svolítið á. Happatölur: 10, 22, 35.
Sporðdrekinn ætti að setja sér það að markmiði að láta af gömlum venjum. Djúp og innileg tengsl sem viðkoma málum hjartans krefjast trausts og þess að sporðdrekinn hefji líf sitt upp á nýtt og hegði sér á annan hátt en áður. Gefi sér góðan tíma og taki eftir því sem aðrir benda á. Happatölur: 9, 13, 50.
Bogmaðurinn má hrósa happi því nú stefnir í óvænta gæfu í peningamálum og jafnvel happdrættisvinning sem kemur á góðum tíma. Frelsið sem fjármunir veita skiptir þig miklu máli, en gæta þarf þess þó að eyða ekki um efni fram. Kanna skal vandlega hvort sé verið að fjárfesta tíma og orku í hluti sem skipta máli til lengri tíma litið. Hmm. Happatölur: 3, 18, 40.
Steingeitin verður að gæta þess að láta ekki einhvers konar skyldustörf verða til þess að hún gleymir að hlúa að sjálfri sér. Hvíld er nauðsynlegur hluti lífsins. Hvíldu þig, hvíld er góð. Þessa möntru má steingeitin hafa yfir þegar henni finnst hún endilega þurfa að gera eitthvað. Það er vanalegast hinn mesti misskilningur. Happatölur: 8, 20, 45.
