Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Undirritunarfundurinn var haldinn með aðstoð fjarfundaforrits. Í efri röð eru, frá vinstri: Hjörleifur Einarsson, stjórnarformaður MýSköpunar, Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir viðskiptaþróunarstjóri og Kristín Linda aðstoðarforstjóri. Í neðri röð: Geir Arnar Marelsson, lögfræðingur, Haraldur Hallgrímsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar og sölu og Júlía K. Björke, framkvæmdastjóri MýSköpunar.
Undirritunarfundurinn var haldinn með aðstoð fjarfundaforrits. Í efri röð eru, frá vinstri: Hjörleifur Einarsson, stjórnarformaður MýSköpunar, Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir viðskiptaþróunarstjóri og Kristín Linda aðstoðarforstjóri. Í neðri röð: Geir Arnar Marelsson, lögfræðingur, Haraldur Hallgrímsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar og sölu og Júlía K. Björke, framkvæmdastjóri MýSköpunar.
Mynd / Landsvirkjun
Líf og starf 11. nóvember 2020

Samstarf um rannsóknir, ræktun, þróun og framleiðslu á þörungum

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir

Landsvirkjun og MýSköpun ehf. hafa undirritað samning um rannsóknir, ræktun, þróun og framleiðslu á þörungum á starfssvæði Landsvirkjunar á Norðurlandi.  Starfsemin verður fyrst um sinn í skrifstofuhúsnæði sem áður tilheyrði Kísiliðjunni við Mývatn.

Verkefnið snýst um að meta fýsileika þess að MýSköpun ehf. rannsaki og rækti þörunga sem m.a. er að finna í Mývatni og  þrói, framleiði og markaðssetji í framhaldinu verðmætar neytendavörur. t.d. úr spírulínu. Horft verður til fjölnýtingar jarðhita þar sem straumar frá jarðhitavirkjunum, t.d. raforka, heitt vatn, kalt vatn og jarðgös, eru nýttir við ræktunina.

Markmið samningsins er að auka verðmætasköpun úr þeim efnum sem verða til við orkuvinnslu Landsvirkjunar. Verkefnið bætir þannig nýtingu auðlinda og skapar tækifæri til uppbyggingar og nýsköpunar fyrir nærsamfélagið. 

Nýsköpun í Mývatnssveit

MýSköpun ehf. er nýsköpunarfyrirtæki í Mývatnssveit sem er ætlað að auka nýsköpun og atvinnuþróun á svæðinu. Markmið MýSköpunar er að vera leiðandi í framleiðslu á lífefnum úr þörungum, með fjölnýtingu jarðhita í fyrirrúmi og nýtingu auka afurða sem verða til í framleiðsluferlinu. Ræktun og hagnýting þörunga hefur í auknum mæli vakið áhuga vegna fjölbreyttra lífefna sem þeir framleiða og hagnýtingu þeirra í ýmsar söluvörur. Þegar talað er um lífefni er átt við efni á borð við fitusýrur, prótein, fjölsykrur, steinefni, karóten og önnur litarefni, auk fjölfenóla. 

Mikilvægur samningur

„Samningurinn er mjög mikilvægur fyrir MýSköpun og gerir okkur kleift að auka framleiðslugetu fyrirtækisins og færa okkur af rannsóknastofunni yfir í tilraunaframleiðslu,“ segir Hjörleifur Einarsson, stjórnarformaður MýSköpunar í frétt á vef Landsvirkjunar. Verkefnið hefur verið í þróun í nokkur ár en nú verður látið á það reyna hvort sá árangur sem þegar hefur náðst standi undir þeim væntingum sem menn hafa haft frá upphafi,  þ.e. að náttúruauðlindirnar geti verið grunnur að sjálfbærri ræktun örþörunga af Mývatnssvæðinu. „Samstarf okkar við Landsvirkjun hefur á undanförnum árum verið ómetanlegt og við væntum þess að samningurinn sé enn ein varðan á sameiginlegri vegferð.“

Kraftur og elja

Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, segir á sama vettvangi að fyrirtækinu þyki ánægjulegt að geta lagt sitt af mörkum til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar á starfssvæðum þess. „Það er mikill hugur í fólki í Mývatnssveit og ég er sannfærð um að sá hugur ber heimafólk hálfa leið. Krafturinn og eljan ber það án efa leiðina á enda. Ég hlakka til að fylgjast með þeirri vegferð.“ 

Vísnahornið
Líf og starf 28. apríl 2026

Vísnahornið

Í síðasta þætti birti ég vísu um mun á Húnvetningum og Þingeyingum. Óskar í Meða...

Hámóðins með hækkandi sól
Líf og starf 28. apríl 2026

Hámóðins með hækkandi sól

Það er skemmtilegt þegar sólin tekur að skína og ekki síst þegar hægt er að busl...

Risinn Reykjavíkurskákmótið
Líf og starf 27. apríl 2026

Risinn Reykjavíkurskákmótið

Opna Reykjavíkurskákmótið fór fram í Hörpu dagana 25.–31. mars. Mótið er að öllu...

23 slagir í einu spili
Líf og starf 27. apríl 2026

23 slagir í einu spili

Undankeppni Íslandsmótsins fór fram á dögunum í Fjölbrautaskólanum í Ármúla og v...

Bók um Svein búfræðing
Líf og starf 27. apríl 2026

Bók um Svein búfræðing

Maður er nefndur Sveinn Sveinsson (1849–1892), austfirskur. Svein má með réttu t...

Samkeppni um hönnun lopapeysu fyrir kvenbændur
Líf og starf 21. apríl 2026

Samkeppni um hönnun lopapeysu fyrir kvenbændur

Árið 2026 er alþjóðlegt ár kvenbóndans en af því tilefni hefur Uppspuni í Ásahre...

Klassísk blómfegurð stofuhindar
Líf og starf 20. apríl 2026

Klassísk blómfegurð stofuhindar

Litir og form garðblóma heilla ræktendur en vinsældirnar eru hverfular, nýjar te...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 20. apríl 2026

Lausn á vísnagátunni

Lausn á vísnagátu.