Ný húsakynni RML
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur opnað nýja starfsstöð í bogahúsinu á Höfðabakka 9 í Reykjavík.
Áður hafði starfsfólk RML verið með tímabundna vinnuaðstöðu á Keldnaholti. Flutningarnir hafa staðið yfir frá haustmánuðum. Áður voru skrifstofurnar í Bændahöllinni við Hagatorg, en eftir að sú bygging var seld hafa Bændasamtökin, Ráðgjafarmiðstöðin og önnur tengd starfsemi þurft að koma sér fyrir á nýjum stöðum.