„Morguninn eftir nartaði hestur hans í haustgrösin við varpann með taumana niðri og hnakkinn enn girtan og þurra lend. Við bæjarhelluna lágu vettlingar Odds og svipa, sumir segja að hún hafi verið brotin í tvennt.“ Myndin er af Miklabæ.
„Morguninn eftir nartaði hestur hans í haustgrösin við varpann með taumana niðri og hnakkinn enn girtan og þurra lend. Við bæjarhelluna lágu vettlingar Odds og svipa, sumir segja að hún hafi verið brotin í tvennt.“ Myndin er af Miklabæ.
Mynd / Minjasafnið á Akureyri
Líf og starf 6. október 2026

Horfinn er séra Oddur

Höfundur: Kristján B. Jónasson

Sveinn Pálsson, náttúrufræðingur og læknir, hélt dagbók öll sín fullorðinsár og í fréttaannál sem hann skráði mánaðarlega í dagbókina um tíma ritar hann að í nóvember árið 1786 hafi sú fregn borist til hans að Nesi við Seltjörn, að presturinn á Miklabæ í Skagafirði, Oddur Gíslason, hafi drukknað í Héraðsvötnum. Sveinn þekkti vel til Odds. Sveinn og eiginkona prestsins, Guðrún Jónsdóttir, voru bræðrabörn. Jón Guðrúnarfaðir hafði tekið við brauðinu í Goðdölum af afa þeirra, Sveini Pálssyni, og þar á bæ hafði Guðrún alist upp.

Oddur kvæntist Guðrúnu 13. júní 1777 í dómkirkjunni á Hólum í Hjaltadal, steinkirkjunni sem enn stendur. Hana hafði faðir Odds, Gísli Magnússon Hólabiskup, látið reisa og vígt árið 1763. Þá var Oddur fjarri góðu gamni, staddur í Kaupmannahöfn þar sem hann streittist við að tileinka sér guðfræði til undirbúnings sínu framtíðarstarfi. Hann innritaðist í Hafnarháskóla skömmu fyrir jól árið 1762 og brautskráðist þaðan árið 1765 með herkjum, lágfleygri þriðju einkunn. Sigldi að því búnu heim í föðurgarð á Hólum. Eftir að Gísli, faðir hans, var látinn kom það í hlut nýs biskups, Árna Þórarinssonar, að meta umsókn Odds um mektarbrauðið Laufás við Eyjafjörð. Við það tækifæri ritaði Árni að hann gæti ekki forsvarað að biskupssonurinn fengi framgang því til þess væru gáfur hans of „mådelige“, eins og það hét á embættismannadönsku 18. aldar. Oddur var einfaldlega ekki nógu greindur. Þeir sem lýstu Oddi geta þess honum þó til hróss að hann hafi verið fríður sýnum, stór og karlmannlegur og gæddur fallegri söngrödd.

Solveig sker sig

Um nýár 1787 fékk Sveinn Pálsson síðan betri fréttir af því sem hafði gerst á Miklabæ þá um haustið. Í fréttaannál sinn ritar hann að séra Oddur sé þegar allt komi til alls ekki drukknaður heldur horfinn.

Oddur hafði fengið Miklabæ fáeinum árum eftir heimkomuna frá Höfn, var vígður þangað 1. nóvember 1767. Í millitíðinni var hann föður sínum innan handar sem ritari og reddari á Hólum. Það var nú venjan að prestar giftu sig um líkt leyti og þeir fengu brauð en Oddur sýndi enga tilburði í þá átt. Það var ekki fyrr en mágur hans fór í málin, meistari Hálfdán Einarsson, rektor Hólaskóla, sem átti systur Odds, Kristínu, að Oddur fullnustaði óskamynd hins lúterska sóknarprests, giftist og jók kyn sitt.

Fram til þess að Oddur kvæntist Goðdala-Guðrúnu var hann að sögn heimildamanna með bústýru á Miklabæ sem hét Solveig. Ekki er vitað hvers dóttir hún var né hvaðan hana bar. Þess er hins vegar getið allvíða að Solveig hafi fyrirfarið sér árið 1778 með því að skera sig á háls. Hallgrímur Jónsson djákni segir í annál sínum að það hafi gerst laugardaginn fyrir pálmasunnudag sem þetta ár bar upp á 11. apríl. Segir Hallgrímur að séra Oddur hafi komið að Solveigu þar sem hún lá í andarslitrunum og orðið svo mikið um að presturinn féll í öngvit og þegar hann rankaði við sér hafi Solveig verið öll.

Jón Espólín segir frá þessum atburðum allnokkru síðar í Skagfirðingasögu sinni og eins og sönnum sagnamanni sæmir skerpir hann vel á katlinum. Nú ávarpar Solveig vinnukonu sem kemur að henni í heytóft þar sem Solveig vann voðaverk sitt og segir: „Líst þér ekki vel á mig núna?“ og er hún þá nýbúin að opna hálsæðarnar. Áður hefur Solveig sagt að hún muni njóta Odds dauð, fyrst hún gat það ekki kvik. Ástæða þess að við vitum svo lítið um Solveigu er meðal annars sú að í kirkjubók Miklabæjar frá þessum árum hefur verið vandlega klippt burt stykki úr einu blaðinu, einmitt frá árinu 1778 þar sem andlát Solveigar hefði að öllum líkindum annars komið við sögu. Sá sem vann þetta verk hefur augljóslega ekki viljað að opinberar skrár geymdu nafn Solveigar eða tilefni andláts hennar. Fyrir vikið vitum við heldur ekki föðurnafn hennar. Engin ástæða er hins vegar til að efast um að hún var til og að hún féll fyrir eigin hendi þetta ár. Hvort sjálfsmorð Solveigar og hvarf Odds átta árum síðar tengjast er svo önnur saga, þótt þjóðsagan hafi vendilega ofið örlög þeirra saman. Við vitum heldur ekki hvort Oddur fór fram á að Solveigu mætti jarða innangarðs eins og margir segja söguna, né vitum við hvar Solveig var að endingu husluð, en löngu síðar töldu menn sig þekkja hana þegar kirkjugarðurinn í Miklabæ var stækkaður til norðurs árið 1914 og kvenmannsbein og kistuleifar fundust. Allt var þetta grafið aftur, innangarðs, en síðan grafið upp að nýju sumarið 1937 eftir tilsögn að handan og beinin jarðsett í Glaumbæ af séra Lárusi Arnórssyni sem þá þjónaði Miklabæ, að beiðni Solveigar sjálfrar úr handanlífinu.

Presturinn hefur ei síðan sést

Sunnudaginn 1. október 1786 reið Oddur fram í Silfrastaði til að messa, en þeirri kirkju þjónaði Miklabæjarprestur þá og löngum síðar. Að messu lokinni reið Oddur svo heim í Miklabæ en kom við hjá nágranna sínum, Vigfúsi Scheving á Víðivöllum, og drakk þar kaffi. Dvaldist Oddi á Víðivöllum fram í myrkur. Ekkert óeðlilegt er að merkja um embættisfærslu Odds af opinberum plöggum, kirkjubók eða skýrslum til biskups, en allir sem rituðu um atburðina á Miklabæ tilgreina að Oddur hafi ekki alveg gengið heill til skógar árin áður en hann hvarf. Til að mynda hafi hann eftir andlát Solveigar orðið svo myrkfælinn og lítill í sér að hann treysti sér ekki einn milli bæja. Fyrr hafi þetta fríða karlmenni ekkert vílað fyrir sér en eftir að Solveig var öll kom í hann merarhjarta. Þarf ekki að efa það. Þessi voðaatburður hlýtur að hafa setið í heimilisfólki á Miklabæ og á tímum þegar fólk var bjargfastlega sannfært um að sáluhjálp þess skipti máli var sjálfsmorðið hin ítrasta synd. Svikarinn Júdas hafði líka fyrirfarið sér og þar með hafnað náðinni sem stendur öllum til boða, jafnvel hinum versta glæpamanni, sé iðrast af heilum hug. Þegar myrkrið gleypir sálirnar og þær sjá ekki einu sinni náðarljós fagnaðarerindisins eru þeim allar bjargir bannaðar.

Þetta kvöld þegar Oddur reið heim á leið eftir kaffisopann hjá Scheving vilja sumir meina að vinnumaður á Víðivöllum hafi fylgt honum svo hann kæmist klakklaust heim á Miklabæ. Það er ekki langur spölur. Vart tekur nema litla stund að komast milli bæjanna sé greitt riðið. Af þeim sökum hafi Oddur sent vinnumanninn heim miðja vegu milli bæjanna. Oddur reið því einn heim síðasta spölinn þessa örlaganótt fyrir sléttum 240 árum.

Morguninn eftir nartaði hestur hans í haustgrösin við varpann með taumana niðri og hnakkinn enn girtan og þurra lend. Við bæjarhelluna lágu vettlingar Odds og svipa, sumir segja að hún hafi verið brotin í tvennt. Enginn hafði orðið var við neitt um nóttina, Oddur hafði ekki guðað á glugga né gert vart við sig með öðrum hætti.

Gerð var mikil leit að presti sem tugir manna og kvenna tóku þátt í og var leitað á aðra viku. En ekkert fannst. Oddur var einfaldlega horfinn.

Sýslumaðurinn seinheppni

Þetta var annað víðkunna mannshvarfið á embættistíð Vigfúsar Scheving. Sex árum áður höfðu Reynistaðabræður horfið á Kili og í nokkur ár hafði Vigfús reynt að varpa ljósi á þá atburði með yfirheyrslum og eftirgrennslunum, en árangurslaust.

Nú kom upp nýtt dularfullt mannshvarf. Strangt tiltekið var Vigfús sýslumaður sjálfur viðriðinn það því hann var með þeim síðustu sem ræddu við Odd áður en hann hvarf út í myrkrið. Vigfúsi er lýst í heimildum sem einstöku gæðablóði, stilltum og prúðum manni sem fátt haggaði. Raunar segir Hólabiskup, Árni Þórarinsson, að Vigfús hafi verið um skör fram miskunnsamur. Vigfús var kynstór maður og börn hans giftust öðru kynstóru fólki, sem allt var náskylt þeim. Magnús konferensráð Stephensen og systir hans, Ragnheiður Ólafsdóttir Stephensen, giftust því bæði börnum Vigfúsar og Önnu Stefánsdóttur, eiginkonu hans, sem jafnframt var föðursystir þeirra Stephensensystkina.

Sú kenning komst fljótlega á kreik að allt þetta ættstóra fólk hafi ekki afborið að Oddur Gíslason hafi einfaldlega fyrirfarið sér, líklegast með því að fleygja sér í Héraðsvötn, og þaggað málið niður. Í kirkjubók Miklabæjar stendur til að mynda ekki stafkrókur um andlát Odds, hann bara gufar upp. Í bréfi til Sveins Pálssonar sem Ragnheiður Þórarinsdóttir í Viðey sendi honum til Kaupmannahafnar í ágúst 1789 segir hún að lík Odds hafi þá fundist um vorið „niðri í læk þeim er Gegnir heitir“. Gegnir er raunar ekki lækur, heldur síki, gamall farvegur í Héraðsvötnum. Sveinn hefur víst oft rabbað um hvarf Odds við fólkið í Viðey, jafnoft og hann kom þangað, og Ragnheiður hefur viljað segja honum þessar merkilegu fréttir. En um leið tilkynnir hún Sveini um andlát eiginmanns síns, Jóns Skúlasonar, sonar Skúla fógeta, sem og að sonur þeirra, Jón yngri, og Hallgrímur, bróðir Ragnheiðar, og tveir menn aðrir hefðu farist á Viðeyjarsundi þegar þeir reru í land til að sækja vistir og ölföng fyrir erfi gamla Jóns. Svo mikið lá á að ljúka sögunni um Odd á Miklabæ að jafnvel þessi stórtíðindi nægðu ekki ein og sér til að setja í bréf til Hafnar.

Skylt efni: sagnaþáttur

Vönduð óþekkt
Líf og starf 6. október 2026

Vönduð óþekkt

Haustið er mætt og það þýðir að nú er kominn tími til að stokka aðeins upp í fat...

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.
Líf og starf 6. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.

Hér er lausnin á vísnagátunni sem birtisti í 17. tölublaði Bændablaðsins.

Horfinn er séra Oddur
Líf og starf 6. október 2026

Horfinn er séra Oddur

Sveinn Pálsson, náttúrufræðingur og læknir, hélt dagbók öll sín fullorðinsár og ...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 24. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin blómstrar í vinnu eða skóla og finnur fyrir mikilli hvatningu til að klára...

Fjögur sunnudagsskákmót
Líf og starf 23. september 2026

Fjögur sunnudagsskákmót

Sunnudaginn 30. ágúst síðastliðinn var mögulega einhvers konar skákmet slegið. G...

Græðgin er óseðjandi púki
Líf og starf 23. september 2026

Græðgin er óseðjandi púki

Veðrið var gott og sumarið enn ekki búið. Sviðið er sumarbridds í Síðumúlanum. M...

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands
Líf og starf 22. september 2026

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands

Páll Halldór Benediktsson, bóndi á Hákonarstöðum á Efri-jökuldal, á stórt safn f...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 21. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Meyjan tekur nú fyrstu skref sín full sjálfstrausts inn í nýtt tímabil. Hún má t...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f