Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Góður árangur af notkun þorskroðs við  meðhöndlun þrálátra sára og brunasára
Mynd / Kerecis
Líf og starf 15. október 2020

Góður árangur af notkun þorskroðs við meðhöndlun þrálátra sára og brunasára

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir

„Við upphaf COVID-19 faraldursins var óljóst hvaða áhrif hann hefði á rekstur fyrirtækisins en við gripum til ýmissa sparnaðar- og niðurskurðaraðgerða í marsmánuði. Þegar leið á sumarið var ljóst að áhrif þessa faraldurs á reksturinn voru hverfandi,“ segir Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Kerecis, sem er íslenskt lækningavörufyrirtæki sem hagnýtir náttúruleg hráefni til að viðhalda heilbrigði húðar, græða sár og endurgera líkamsvef. 

Raunin hafi orðið sú að alvarlegum sárum fjölgaði í því ástandi sem ríkti, hreyfingarleysi jókst og þar með sykursýki og í kjölfarið tilheyrandi fótasár. „Sjúklingar leituðu sér einnig seinna lækningar en áður, þannig að sárin voru stærri þegar komið var á heilbrigðisstofnanir, sem aftur kallar á dýrari og flóknari meðhöndlunarúrræði, líkt og Kerecis sáraroðið er,“ segir Guðmundur Fertram.

Fyrirtækið framleiðir afurðir byggðar á affrumuðu þorskroði, sem hafa jákvæð áhrif á frumuvöxt og eru notaðar til meðhöndlunar á þrálátum sárum og brunasárum, einkum hjá fólki með sykursýki. Fiskroðið hefur einnig reynst vel til að græða sár dýra. Framleiðsla á vörum Kerecis fer fram á Ísafirði og er roð sem fellur til í fiskvinnslu á Vestfjörðum meginhráefni fyrirtækisins. Skrifstofur fyrirtækisins eru í Bandaríkjunum, Sviss og á tveimur stöðum á Íslandi, á Ísafirði og í Reykjavík. Tækni Kerecis er að sögn Guðmundar byggð á traustum vísindalegum grunni og sjálfbærri notkun náttúrulegra hráefna, m.a. roði og fitusýrum úr plöntum og fiski. Vörur fyrirtækisins eru einkaleyfaverndaðar og hafa verið notaðar bæði fyrir menn og dýr. 

Fyrstu skrefin stigin fyrir vestan

Hugmyndin að því að nota þorskroð til að lækna sár og græða líkamsvef er frá Guðmundi komin. Fyrstu skrefin voru stigin á Ísafirði á árinum 2010 til 2014 þar sem fram fór þróunarvinna og prófanir. Baldur Tumi Baldursson húðlæknir og Hilmar Kjartansson lyf- og bráðalæknir komu til liðs við verkefnið strax í upphafi og eiga stóran þátt í þróun tækninnar ásamt Dóru Hlín Gísladóttur verkfræðingi.  Fyrirtækið Kerecis var í lok sumars valið Vaxtarsproti ársins, en sú viðurkenning er veitt fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Velta fyrirtækisins á milli áranna 2018 til 2019 jókst um 142%. Kerecis er með starfsemi á Íslandi og Bandaríkjunum. Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands.

Kerecis setti nýverið á markað í Bandaríkjunum vörulínu undir heitinu Kerecis Omega3 Vet. Um er að ræða græðlinga eða svokallað sáraroð sem lagt er í blæðandi sár. Heilbrigðar frumur úr umhverfi sársins vaxa inn í sáraroðið og umbreyta roðinu í líkamsvef. Dýralæknar sjá um meðferðina með sáraroðinu, þar sem meðferð hefst á því að allt sýkt og dautt hold er hreinsað eða skorið í burtu og svo er græðlingurinn settur í blæðandi sárbeðinn. Venjulegar sáraumbúðir eru svo settar ofan á hann. Mismunandi er hvort græðlingurinn er saumaður fastur eða hvort látið er nægja að ýta honum vel ofan í sárbeðinn með sáraumbúðum. 

Tíkin Peaches í Sviss fékk 3. gráðu brunasár eftir keisaraskurð þar sem hitateppi sem notað var varð of heitt. Brunasárið náði yfir allt bak hundsins og fyrstu tvær vikurnar meðhöndlað með hefðbundinni meðferð sem bar engan árangur.

Stórt brunasár grætt á hundi í Sviss

Guðmundur segir að á fyrstu mánuðum markaðssetningar í Bandaríkjunum hafi þó nokkur notkun verið á sáraroðinu til að  meðhöndla ýmsar dýrategundir. Roðið hafi til dæmis verið notað á hesta, hunda, sæskjaldböku, kalkún og fleiri dýr. Hann nefnir sem dæmi að fyrr á þessu ári var sáraroðið notað til að græða stórt brunasár á hundi í Sviss. Hundurinn Peaches fékk 3. gráðu brunasár eftir keisaraskurð þar sem hitateppi sem notað var varð of heitt. Brunasárið náði yfir allt bak hundsins. Sárið var fyrstu tvær vikurnar meðhöndlað með hefðbundinni meðferð sem bar engan árangur. Þá var tekin ákvörðun um að nota Kerecis sáraroðið og strax á þriðja degi meðferðar virtist hundinum líða betur og sárgróning var komin strax af stað. Eftir fjóra mánuði var sárið að fullu gróið og er örvefurinn það teygjanlegur að hann hamlar ekki hreyfingum hundsins.

Eftir að sáraroð var sett á hundinn virtist honum líða betur og sáragróning fór strax af stað. Sárið greri að fullu á fjórum mánuðum.

Kerecis með 100 starfsmenn í Bandaríkjunum

„Meginmarkaður okkar fyrir sáraroðið er í Bandaríkjunum er þar er roðið aðallega notað til að græða sykursýkissár sem eru afskaplega algeng þar,“ segir Guðmundur.  Einn af hverjum ellefu Bandaríkjamönnum er nú talinn vera með sykursýki og árið 2030 er áætlað að einn af hverjum fjórum verði með sjúkdóminn. Sykursýki veldur þrálátum fótasárum sem oft tekst ekki að meðhöndla. Sárameðhöndlun um 6% sykursjúkra endar með aflimun og eru framkvæmdar yfir 100.000 aflimanir í Bandaríkjunum einum sér árlega vegna þessa. 

„Við erum með um 100 starfsmenn í okkar þjónustu í Bandaríkjunum, að megninu til í sölu- og markaðsstörfum. Við bjóðum fjórar vörur til sölu þar núna; fyrir þrálát sár, brunasár, skurðsár og dýrasár. Tugir þúsunda sjúklinga hafa verið meðhöndlaðir með vörunni síðan sala hófst fyrir fjórum árum og árangurinn verið framar vonum,“ segir Guðmundur.

Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Kerecis.

Skylt efni: Kerecis

Umhverfisvænar blómaskreytingar
Líf og starf 25. apríl 2024

Umhverfisvænar blómaskreytingar

Náttúruleg fegurð var í fyrirrúmi á námskeiði um blómaskreytingar í Garðyrkjuskó...

Sumardagurinn fyrsti
Líf og starf 25. apríl 2024

Sumardagurinn fyrsti

Samkvæmt dagatalinu kemur sumarið 25. apríl. Bændablaðið leitaði því til lesenda...

Lóan
Líf og starf 23. apríl 2024

Lóan

Lóan er komin! Um þessar mundir eru heiðlóur að tínast til landsins en apríl er ...

Jöklapeysur úr íslenskum lopa
Líf og starf 23. apríl 2024

Jöklapeysur úr íslenskum lopa

Mjólkurfræðingurinn og frumkvöðullinn Pétur Pétursson setur nú á fót hönnunarsam...

Að höndla sér hross til reiðar
Líf og starf 22. apríl 2024

Að höndla sér hross til reiðar

Orðsins list kemur að þessu sinni úr Íslendingasögunum.

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Líf og starf 16. apríl 2024

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands

Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum var krýndur Kjötmeistari Íslands í fagkep...

Paella með skelfiski
Líf og starf 16. apríl 2024

Paella með skelfiski

Paella er einfaldur réttur og til í ýmsum útgáfum, grunnurinn þó alltaf sá sami ...

Flugvélarflak í Eyvindarholti
Líf og starf 10. apríl 2024

Flugvélarflak í Eyvindarholti

Við Eyvindarholt undir Eyjafjöllum hefur gömlu flugvélarflaki verið komið fyrir....