Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Elsta starfandi járnvöruverslun Íslands
Mynd / SP
Líf og starf 22. ágúst 2022

Elsta starfandi járnvöruverslun Íslands

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Verslunin Brynja hefur verið rekin í rúm hundrað ár, alla tíð á Laugaveginum. Fyrst um sinn á Laugavegi 24, en á Laugavegi 29 síðan árið 1929, er eigandi festi kaup á því húsnæði. Í dagblaðinu Fálkinn í júnímánuði árið 1930 kemur fram heilsíðugrein þar sem verslunin er kynnt og hefst hún á þessa leið.

Í Vestfirskum sögnum árið 1934 – vísa til heiðurs verslunarinnar Brynju. „Brynja er að brjóta sér, braut til vegs og frama. Þar að kaupa ávalt er öllum gæfan sama.“

„Í nóvembermánuði árið 1919 stofnaði Guðmundur Jónsson trjesmiður ofurlitla verslun i bakhúsi við Laugaveg 24. Var sölubúðin ekki stærri en svo, að skrefa mátti milli veggja – hún var 1 meter á breidd og 3 m á lengd. Líkast til hefir ekki verið stofnuð verslun, sem byrjað hefir öllu smærra, og er þetta nú orðin ein stærsta og vandaðasta verslun bæjarins og án efa stærst í sjergrein sinni: Verslun með byggingarefni og verkfæri.“

Í dag stendur vaktina hann Brynjólfur Halldór Björnsson, framkvæmdastjóri og stærsti eigandi verslunarinnar Brynju, þar sem hann hefur verið við störf í um sextíu ár. Verslunin komst í eigu Björns, föður Brynjólfs, árið 1953 þegar bæjarlífið var litað af litlum verkstæðum og búðum og hóf Brynjólfur störf sín snemma á sjöunda áratugnum.

Á vefnum timarit.is má sjá að Björn hafði undir höndum umsvifamikinn innflutning á verkfærum, bygginga- vörum, glervörum auk annars og jafnan með einkaumboð fyrir þekkta framleiðendur þess varnings. Skorið gler og speglar fengust jafnframt afgreitt en í kringum árið 1940 var þar speglagerð og glerslípun í boði.

Nú hefur verslunin verið í fréttum undanfarið, aðallega vegna þess að hún er til sölu. Það er skrýtið til þess að hugsa, að þarna þar sem hjarta bæjarins slær, séu breytingar í vændum.

Framkvæmdastjórinn Brynjólfur telur þó að þar sem allt sé breytingum háð geti hann væntanlega fundið sér ýmislegt til dundurs þegar gengið hefur verið frá sölu.

„Jú, þetta eru blendnar tilfinningar að fara að brjóta upp dagsrútínuna enda hefur mér aldrei leiðst í vinnunni,“ segir Brynjólfur í stuttu spjalli við blaðamann. „Ástæðan fyrir því að þetta er nú á sölu er sú að ég er kominn á aldur.

Dætur mínar þrjár hafa önnur hugðarefni í lífinu og sjálfsagt og vonandi að verslunin komist í hendur aðila sem hafi sömu hugsjón og hefur fylgt henni síðastliðna öld. Þetta hefur gengið vel.

Einnig er ég við góða heilsu þannig að nú er um að gera að nýta þau ár sem eru eftir í eitthvað hressilegt,“ segir hann léttur í máli.

Litróf mannlífsins ávallt skemmtilegt

„Í daglegu amstri verslunar hef ég annars helst haft gaman af samskiptunum við fólk, hvaðanæva af landinu. Sumir stoppa og spjalla lengur en aðrir og svo hefur síðastliðin ár verið aukinn fjöldi af útlendingum.

Þeir eru hrifnir af úrvalinu, sérstaklega Ameríkanar sem sjá hér gæðamerki sem þeir geta ekki nálgast annars staðar nema á netinu – enda meira um stórar verslanir þar í landi þar sem áherslan er ekki lögð á persónuleg sértæk viðskipti.

Bretar stoppa hérna líka mikið við enda afar hrifnir af litlum smávöruverslunum þar sem úrvalið er margbreytilegt. Við eigum mikið af ýmiss konar smávöru sem lítið er um að sjáist í öðrum verslunum og fólk til dæmis, sem er að gera upp gömul hús, hluti, húsgögn eða annað, veit að hjá okkur leynist ýmislegt. Við losum okkur ekkert endilega við það sem er á lager þó sumt seljist hægar en annað,“ segir Brynjólfur.

Brynjólfur slípaði speglana sem afi hans útbjó fyrir Grillið, einum glæsilegasta veitingastað landsins, staðsettum á áttundu og efstu hæð Hótel Sögu.

Innflutningur, umboð og upphaf verslunarinnar

„Ömmubróðir minn, Guðmundur Jónsson, hóf reksturinn þarna fyrir um hundrað árum. Hann hafði lært smíðar hjá trésmiðjunni Völundi en lenti í slysi og gat því ekki unnið.

Fór í kjölfarið til Noregs þar sem hann tók ákvörðun um að fá umboð og flytja til Íslands margs konar verkfæri, enda mikill áhugamaður um slíkt. Það var ekkert flutt inn til landsins á þessum tíma þarna rétt fyrir 1920. Þó nokkuð var þarna um fyrirtæki sem voru með verkfæri, en einnig fór hann til Svíþjóðar og Þýskalands og fékk umboð frá heilmörgum fyrirtækjum til að flytja inn vörur og verkfæri undir ýmsum merkjum til Íslands.

Þannig byrjaði þetta hjá honum,“ heldur Brynjólfur áfram.

– Þess má geta að í blaðinu Fálkanum, árið 1930, kemur fram að í Versluninni Brynju finnist:

„Trjesmíðaheflar frá G. Ott í UIm, Þýskalandi og „sagir frá Sandviken í Svíþjóð sem að verslunin hefir umboð fyrir“.

„Árið 1917 setur Guðmundur upp húsgagnaverkstæði á Laugavegi 24 og var verslunin Brynja stofnsett árið 1919. Pabbi, Björn Guðmundsson, var þá nýfluttur frá Húnavatnssýslunni með foreldrum sínum, þau bjuggu á Grettisgötu – en lítið var um annað en íhlaupavinnu fyrir fólk á þessum tíma. Hann fór því að vinna hjá frænda sínum við það sem til féll auk þess að hann sá um bókhaldið. Svo seinna varð hann kaupmaður og eigandi hérna.

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 12. mars 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn finnur að hugmynd sem hefur lengi kraumað innra með honum er eitthva...

Jón Geir tekinn inn í Konunglegu landbúnaðarakademíuna
Líf og starf 11. mars 2026

Jón Geir tekinn inn í Konunglegu landbúnaðarakademíuna

Það var ánægjuleg stund hjá Jóni Geir Péturssyni skógfræðingi nýlega þegar hann ...

Vísnahornið
Líf og starf 11. mars 2026

Vísnahornið

Nú hafa menn þraukað þorrann og óhætt mun að taka upp hjal á léttum nótum. Marga...

Ferðast til að halda lífi
Líf og starf 11. mars 2026

Ferðast til að halda lífi

Ég fylgdi félaga mínum síðustu skrefin um daginn. Strætó ferjaði hann langleiðin...

Alheimsvíðátta Jónasar
Líf og starf 11. mars 2026

Alheimsvíðátta Jónasar

Á rómantíska tímanum átti það jafnt við þegar horft var inn í huga sér og út í g...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 4. mars 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn mun glíma við einhverja óværð eða óværu jafnvel á næstunni. Honum er...

Listaverk úr íslensku byggi
Líf og starf 29. janúar 2026

Listaverk úr íslensku byggi

Listamaðurinn og hönnuðurinn Hanna Dís Whitehead undirbýr sýningu í HAKK gallery...

Vetur í stofunni
Líf og starf 26. janúar 2026

Vetur í stofunni

Að ýmsu er að hyggja til að halda pottaplöntum heilbrigðum og fallegum yfir vetr...