Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 mánaða.
Þann 16. júní 2018 fór svo fyrsti bjór RVK bruggfélags í sölu.
Þann 16. júní 2018 fór svo fyrsti bjór RVK bruggfélags í sölu.
Líf og starf 1. maí 2023

Allir með strætó

Höfundur: Höskuldur og Stefán

Í undanförnum tölublöðum Bændablaðsins hafa Höskuldur og Stefán fjallað um sögu handverksbrugghúsanna á Íslandi og að þessu sinni er komið að RVK bruggfélagi.

Sigurður Snorrason á bjórhátíðinni á Hólum 2018. Siggi hafði starfað á verðbréfamörkuðum Wall Street í tæpa tvo áratugi þegar hann flutti heim 2004.

RVK bruggfélag er með eitt af þessum lógóum sem allir yfir fertugu staldra við, halla höfði og hugsa: „Hvar hef ég aftur séð þetta merki?“ Svarið er auðvitað í gamla Reykjavíkurarmi Strætó, Strætisvögnum Reykjavíkur eða SVR. Tildrög þessa brugghúss, sem í fyrstu bar hið eilítið óþjóðlega nafn RVK Brewing en breyttist svo í RVK Bruggfélag, íslenskri málnefnd til ómældrar ánægju, má þó rekja til veiðiferðar í Laxá í Mývatnssveit. Þar fékk Sigurður Snorrason, lengi þekktur sem Siggi saison vegna dálætis síns á þeim ágæta bjórstíl, en í seinni tíð einfaldlega Siggi í RVK, að dreypa á heimabrugguðum Wit-bjór. Heimabruggarinn sagði undan og ofan af tilurð bjórsins, en sem meira máli skipti þá benti hann Sigurði á spjallsíðu Fágunar, Félags áhugafólks um gerjun. Þar með fóru hjólin að snúast svo um munaði.

Siggi hafði starfað á verðbréfamörkuðum Wall Street í tæpa tvo áratugi þegar hann flutti heim 2004. Ekki grunaði hann að bruggið ætti endilega eftir að verða næsta stóra verkefni en aðdragandinn var í sjálfu sér kunnuglegur glöggum lesendum þessa greinaflokks: fólk á tímamótum í lífi sínu kemst í kynni við undraveröld heimabruggsins sem leiðir af sér ástríðu og loks opnunar á brugghúsi.

Sprengju varpað

Eftir þennan örlagaríka bjór í Mývatnssveitinni fór okkar maður að skoða og stúdera Fágunarspjallið þar sem hið litla en nána íslenska heimabruggarasamfélag skiptist á hugmyndum, skoðunum, tækjum og hráefnum. Eitthvað var hann þó tvístígandi en lét slag standa 2012 þegar sprengju var varpað á spjallborðinu! Ungur maður að nafni Hrafnkell Freyr Magnússon tilkynnti um að hann hefði flutt inn nokkra sekki af korni og væri að selja það í lausu út úr bílskúrnum hjá sér. Þessi póstur var upphafið af því sem í dag er Brew.is. Þetta varð til að ýta mörgum af stað, þar á meðal Sigga, sem keypti af Hrafnkatli grunnbúnað og hráefni og hóf að brugga.

Fljótlega vatt tómstundagamanið upp á sig, tækin urðu stærri og betri, bjórarnir flóknari og stílarnir meira framandi. Beðinn og óumbeðinn lét Siggi vini og vandamenn smakka veigarnar og ýmist reyndi að lagfæra bjórana eða bæta smekk viðkomandi, eins og hann orðaði það í viðtali við Bruggvarpið, hlaðvarpi um bjór, sumarið 2021, allt eftir því hvernig viðbrögðin voru. Það var síðan æskuvinur hans, gamall lúðrasveitarfélagi, bekkjarbróðir úr menntó og kollegi í fjármálaheiminum, maður að nafni Steinþór Baldursson, sem hvatti hann til að taka skrefið til fulls og stofna brugghús. Saman fóru þeir og skoðuðu það af fullri alvöru en Steinþór lést í kjölfar erfiðra veikinda síðsumars 2016 og náði því ekki að klára þessa vegferð með vini sínum sjálfur. Þann 1. mars 2017, á sjálfan bjórdaginn, var fyrirtækið stofnað og nefndist það SB brugghús ehf. til að heiðra Steinþór og eftir það var ekki aftur snúið.

Sigurvegarar í Bjórhlaupinu 2019. Siggi, eigandi RVK Bruggfélags, Einar Njálsson og Helga Jóna Jónasdóttir.

Sögulegur dagur

Sem fyrr segir voru bjórar brugghússins í fyrstu seldir undir engilsaxneska heitinu RVK Brewing company, enda sá Siggi fyrir sér erlenda gesti sem uppistöðukúnnahópinn, sérstaklega á Bruggstofunni, en síðar þegar ljóst varð að Íslendingar höfðu mun meiri áhuga en reiknað hafði verið með var nafninu breytt í RVK Bruggfélag. Fyrirmyndin voru míkróbrugghúsin í Bandaríkjunum sem Siggi hafði verið duglegur að heimsækja, sem kannski útskýrði hugmyndirnar um samsetningu kúnnanna upphaflega.

Í maí 2018 hófst bruggun í brugghúsinu sem komið hafði verið fyrir á neðstu hæð í atvinnuhúsnæði í Skipholti. Þann 16. júní fór svo fyrsti bjórinn í sölu á Skúla Craftbar, en varla mætti hræða á opnunina. Ástæðan var reyndar ekki áhugaleysið á bjórnum heldur var Ísland að keppa við Argentínu á HM þar sem frægasta víti Íslandssögunnar var vandlega varið og jafntefli gegn framtíðarheimsmeisturunum tryggt. Óhætt er að segja að RVK hafi kunnað að velja daginn, en bjórinn var tilbúinn og engin bulla í hópnum, þannig að svo fór sem fór.

Brugg í stað bingós

En fall er fararheill er stundum sagt. Litla brugghúsið í Skipholti óx og dafnaði en fyrst um sinn var einungis einblínt á veitinga- og kútamarkað og gekk það ágætlega. Fyrsti bruggmeistari RVK var Alyson Hartwig frá Bandaríkjunum, sem hafði numið bruggfræðin í Siebel Institude í Chicago en fljótlega fór hún í Ölgerðina og Valgeir Valgeirsson, sem áður hefur komið við sögu í þessum pistlum, hafði vistaskipti frá Borg til RVK. Valgeir hefur nú horfið á braut en Hjalti Einarsson hefur borið þungann af bruggun og þróun bjóra undanfarið ár.

Rúmum tveimur árum eftir að fyrsti bjórinn kom á markað var farið að huga að stækkun brugghússins. Covid-bylgjan var farin að leika landsmenn grátt og þegar veitingastaðir lokuðu færðist fókusinn af því að þjónusta veitingastaðinn og yfir í Vínbúðina. Veltan óx jafnt og þétt og margfaldaðist framleiðslan þannig að stækkunin var ákveðin. Ekki var þó leitað langt yfir skammt, heldur var útbúið nýtt brugghús í næsta húsi, í kjallaranum á gamla Tónabíói, sem hefur raunar verið kunnara sem bingósalurinn Vinabær síðustu áratugina. Það er ef til vill tímanna tákn að bingóspil Templara hafi að lokum vikið fyrir handverksbruggurum?

Sömmer lövin, sumarbjór RVK bruggfélags.

Bjórarnir frá RVK bruggfélagi hafa spannað litróf bjórstílanna, frá Imperial Grisette og þungum Hnallþórustátum yfir í léttari Yzuz hrísgrjónalagerbjór og allt þar á milli. Hverfi Reykjavíkur hafa fengið bjóra nefnda í höfuðið á sér: Hlíðar, Skuggi og Holt eru allir bjórar sem komið hafa á markað og svo má nefna bjórinn Verum bara vinir, súröl með ástaraldin. Þar er orðagrín sem lesendum er eftirlátið að geta sér til um. Þá er varla hægt að sleppa því að minnast á Ora jólabjórinn sem sló rækilega í gegn jólin 2021 en það samstarfsverkefni var tilnefnt til ýmissa verðlauna utan bjórheima. Ora-bjórinn rataði alla leið í Landann, sem er næstum eins gott og að komast í skaupið!

RVK bruggfélag hefur gert ýmislegt annað en að framleiða bjóra, eins og t.d. að skipuleggja í þrígang alþjóðlegt bjórhlaup, sem hefðu verið fleiri ef ekki hefði verið fyrir Covid. Þá var til skamms tíma starfrækt Bruggstofa og Honkitonk BBQ-staður á afar viðeigandi stað á Snorrabrautinni, þar sem áður var ÁTVR vínbúð til húsa og þar áður höfuðstöðvar Strætó, en verkstæði var rekið þar á efri hæð hússins. Það ævintýri varð einnig veirunni slyngu að bráð, eins og margar aðrar góðar hugmyndir.

Fram undan er síðan að opna nýja bruggstofu í anddyri Tónabíós og er hún fyrirhuguð í sumarbyrjun. Þar hefur Siggi nostrað við hlutina og endurnýjað eins mikið upprunalegt og hann hefur getað til að halda í anda hússins. Lesendur Bændablaðsins ættu líka að finna þar góða strauma en bæði bar og kælirinn í kjallaranum eru fengnir frá Hótel Sögu og endurbyggðir í Skipholtinu. Ljóst er hverjum sem þar kemur að einkunnarorð RVK bruggfélags, „gríðarlega vandað“, sem fengin voru frá æskuvininum Steinþóri, eru í hávegum höfð.

Safnað fyrir Einstök börn
Líf og starf 26. apríl 2024

Safnað fyrir Einstök börn

Stóðhestaveisla Eiðfaxa var haldin 13. apríl í HorseDay-höllinni á Ingólfshvoli ...

Umhverfisvænar blómaskreytingar
Líf og starf 25. apríl 2024

Umhverfisvænar blómaskreytingar

Náttúruleg fegurð var í fyrirrúmi á námskeiði um blómaskreytingar í Garðyrkjuskó...

Sumardagurinn fyrsti
Líf og starf 25. apríl 2024

Sumardagurinn fyrsti

Samkvæmt dagatalinu kemur sumarið 25. apríl. Bændablaðið leitaði því til lesenda...

Lóan
Líf og starf 23. apríl 2024

Lóan

Lóan er komin! Um þessar mundir eru heiðlóur að tínast til landsins en apríl er ...

Jöklapeysur úr íslenskum lopa
Líf og starf 23. apríl 2024

Jöklapeysur úr íslenskum lopa

Mjólkurfræðingurinn og frumkvöðullinn Pétur Pétursson setur nú á fót hönnunarsam...

Að höndla sér hross til reiðar
Líf og starf 22. apríl 2024

Að höndla sér hross til reiðar

Orðsins list kemur að þessu sinni úr Íslendingasögunum.

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Líf og starf 16. apríl 2024

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands

Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum var krýndur Kjötmeistari Íslands í fagkep...

Paella með skelfiski
Líf og starf 16. apríl 2024

Paella með skelfiski

Paella er einfaldur réttur og til í ýmsum útgáfum, grunnurinn þó alltaf sá sami ...