Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 12 ára.
Langar að búa til vélmenni
Fólkið sem erfir landið 25. september 2014

Langar að búa til vélmenni

Hildur er kát Reykjavíkurmær sem hefur gaman af öllu mögulegu nema vera í fýlu og lesa leiðinlegar bækur. 

Nafn: Hildur Einarsdóttir.
Aldur: Fimm ára og á afmæli í mars.
Stjörnumerki: Fiskur.
Búseta: Reykjavík.
Skóli: Grænaborg.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Renna, róla, fara í eltingar- og feluleik, í bíló og leika mér með vinum mínum í alls konar leikjum.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Mér finnst páfagaukar skemmtilegir og ætla að safna mér fyrir honum. Svo langar mig í lítinn gíraffaunga en svoleiðis eru ekki til á Íslandi.
Uppáhaldsmatur: Lasagna, alveg eins og kettinum Gretti.
Uppáhaldshljómsveit: Pollapönk og líka Páll Óskar.
Uppáhaldskvikmynd: Mér finnst myndin Karolína skemmtileg en hún er líka hræðileg og ekki fyrir smábörn og svo finnst mér Strumpamyndirnar líka skemmtilegar.
Fyrsta minning þín? Ég man að mamma var með varalit þegar ég var skírð.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég æfi engar íþróttir og kann ekki að spila á hljóðfæri en mig langar að spila fótbolta og læra að dansa og æfa fimleika. Mig langar líka að vera trommuleikari og læra að spila á fiðlu.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Sjúkraþjálfari.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Ég er ekki búin að gera það en mig langar að búa til vélmenni en veit ekki enn hvernig á að gera það.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Mér finnst leiðinlegt að vera í fýlu og lesa leiðinlegar bækur.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Ég fór með pabba í stóru sveitina og á Flateyri.

Skylt efni: Vélmenni | Lasagna

Kolfinna Vísa
Fólkið sem erfir landið 30. október 2026

Kolfinna Vísa

Nafn: Kolfinna Vísa Aspar Eiríksdóttir.

Heiðbrá Erla
Fólkið sem erfir landið 21. október 2026

Heiðbrá Erla

Nafn: Heiðbrá Erla Helgadóttir.

Margrét Þóra
Fólkið sem erfir landið 7. október 2026

Margrét Þóra

Nafn: Margrét Þóra Friðriksdóttir Líndal.

Arndís Inga
Fólkið sem erfir landið 23. september 2026

Arndís Inga

Nafn: Arndís Inga Jakobsdóttir.

Ari
Fólkið sem erfir landið 9. september 2026

Ari

Nafn: Ari Jakobsson.

Brynjar Leó
Fólkið sem erfir landið 26. ágúst 2026

Brynjar Leó

Nafn: Brynjar Leó Erlingsson.

Dagur Kári
Fólkið sem erfir landið 12. ágúst 2026

Dagur Kári

Nafn: Dagur Kári Sigurðsson.

Apríl Emma
Fólkið sem erfir landið 8. júlí 2026

Apríl Emma

Nafn: Apríl Emma Ívarsdóttir.