Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Vísnahornið
Mynd / Úr safni
Líf og starf 23. mars 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Umsjónarmaður fékk umvöndun frá Sigfúsi Jónssyni:

Gamanið ég gæti séð

og gæðin yrðu betri,

ef vísnahornið væri

með viðameira letri.

Egill Jónasson var á sinni tíð fremri flestum í gamansömum kveðskap. En þegar hann fékk úrskurð um sykursýki voru hjúkkur að stjana eitthvað við hann og þá kom þessi:

Nú er ég loksins sagður vera sætur

svo mjög að konur girnast á mér kroppinn.

Andvara ég því á mér hef um nætur

og er að verða hræddur um sykurtoppinn.

Þeir sem orðnir eru nokkuð eldri en tvævetur, muna eftir Eiði Guðnasyni, en þegar hann hætti sem fréttamaður hjá sjónvarpi og fór á þing, orti Egill:

Dáði ég sjónvarpsvipinn þinn

söknuð í huga mínum finn,

rakaðu af þér Eiður minn

andsk. ... tísku hýjunginn.

Rósberg G. Snædal orti þessar fallegu hringhendur, en ekki veit ég hver eða hverjir áttu skilið:

Syngdu snjallan blómabrag,

brátt þó falli snærinn.

Frjáls um allan ævidag,

eins og fjallablærinn.

Þú hefur fengið frost og él

frægð og gengi þegið.

Þú hefur lengi listavel

ljóðastrengi slegið.

Einhvern tíma mun Rósberg hafa keypt sér bíl og ekið af Brekkunni á Akureyri og heimsótt Heiðrek frá Sandi, sem heilsaði með þessari vísu:

Onaf Brekku ók með glans,

öll voru dekk með götum.

Þó öll sé flekkuð fortíð hans

fylgir hann ekki krötum.

Þegar Heiðrekur keypti sér Saab, þá launaði Rósberg með góðri stöku:

Heiðrekur á sínum SAAB

seint um bæinn æddi.

Suma meiddi, suma drap,

suma aðeins hræddi.

Heiðrekur var kunnur á sinni tíð og orti margar snjallar og fleygar vísur:

Æskulýður elskar hríð

eftir stríði bíður.

Ellin kvíðir illri tíð

inn í híðið skríður.

Og Húnvetningar fengu þessa kveðju frá Heiðreki á Húnvetningavöku:

Húnvetningar þykjast það

sem Þingeyingar eru.

Lítið skilur okkur að annað,

í raun og veru.

Þessa fallegu vísu orti Heiðrekur til Gísla Ólafssonar frá Eiríksstöðum:

Fennir í slóð og frjósa sund,

fölnar óðum hlynur.

Eigðu góða aftanstund

aldni ljóðavinur.

Umsjón: Magnús Halldórsson

mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Vísnahornið
Líf og starf 11. maí 2026

Vísnahornið

Þættinum barst kveðja frá Tómasi Inga Þorgrímssyni varðandi leturstærð:

Hólmavík rétt svar við myndagetraun
Líf og starf 4. maí 2026

Hólmavík rétt svar við myndagetraun

Hólmavík var staðurinn sem sást úr lofti í myndagetraun Bændablaðsins sem kom út...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 4. maí 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn: Næstu dagar færa óvænta krafta og hugmyndir sem geta breytt þeim fr...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 4. maí 2026

Lausn á vísnagátunni

Lausnin á vísnagátu úr 8. tölublaði Bændablaðsins.

Vísnahornið
Líf og starf 28. apríl 2026

Vísnahornið

Í síðasta þætti birti ég vísu um mun á Húnvetningum og Þingeyingum. Óskar í Meða...

Hámóðins með hækkandi sól
Líf og starf 28. apríl 2026

Hámóðins með hækkandi sól

Það er skemmtilegt þegar sólin tekur að skína og ekki síst þegar hægt er að busl...

Risinn Reykjavíkurskákmótið
Líf og starf 27. apríl 2026

Risinn Reykjavíkurskákmótið

Opna Reykjavíkurskákmótið fór fram í Hörpu dagana 25.–31. mars. Mótið er að öllu...

23 slagir í einu spili
Líf og starf 27. apríl 2026

23 slagir í einu spili

Undankeppni Íslandsmótsins fór fram á dögunum í Fjölbrautaskólanum í Ármúla og v...