Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 mánaða.
Fjárborgararnir Ólafur Dýrmundsson og Sigurleifur Guðjónsson í móttmælastöðu í Fjárborg 23. september 1968.
Fjárborgararnir Ólafur Dýrmundsson og Sigurleifur Guðjónsson í móttmælastöðu í Fjárborg 23. september 1968.
Mynd / Aðsendar
Líf og starf 16. nóvember 2023

Fjáreigendafélag Reykjavíkur er menningarverðmæti

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Hið íslenska bókmenntafélag hefur gefið út bók dr. Ólafs Dýrmundssonar Sauðfjárhald í Reykjavík. Ólafur er að góðu kunnur af störfum sínum fyrir Bændasamtök Íslands um árabil, sem ráðunautur í landnýtingarmálum, sauðfjárrækt, lífrænum búskap – og í tengslum við forðagæslumál.

Í bókinni rekur hann þróun sauðfjárbúskapar í Reykjavík frá 19. öld, sögu sína sem sauðfjárbóndi í Reykjavík frá 1957 til dagsins í dag og fléttar saman við hana sögu Fjáreigendafélags Reykjavíkur og almenna þróun sauðfjárræktar.

Ólafur segist lengi hafa verið að hugsa um útgáfu á bók sem þessari. „Alla tíð hef ég verið að safna gögnum og punktað hjá mér ýmsar athugasemdir í minnisbók sem ég kallaði búskaparbók, alveg frá því að ég eignaðist fyrstu kindurnar 13 ára gamall 1957. Ég er búinn að upplifa svo áhugaverða tíma í sauðfjárræktinni í landinu og ekki síst hjá Fjáreigendafélaginu sem var stofnað 1927 – hef í raun verið samtíðarmaður þriggja kynslóða í þeim félagsskap.“

Höfundur er einn þeirra fáu sem enn gefa þurrhey líkt og fyrir hálfri öld.

Orða- og hugtakaskýringar fyrir yngri kynslóðir

„Mikil gróska er í sauðfjárrækt í Reykjavík þegar ég fer fyrst að blanda mér í búskapinn, það voru þá á þriðja þúsund fjár í bænum og fjáreigendur í kringum 200. Meiri háttar starfsemi er þá í Fjáreigenda­félaginu, bæði á lögbýlum og svo hjá tóm­stundabændum. Í dag eru um 180 vetrarfóðraðar kindur innan félagsmanna Fjáreigendafélagsins í tíu hjörðum sem flestir hafa aðsetur í Fjárborg, svæði félagsins á Hólmsheiði.

Ég sjálfur er með tíu kindur og sá eini sem er neðan Elliðaáa.
Við höfum lagt mikinn metnað í að útbúa allar skrár sem fylgja bókinni eins vel og hægt var; nafna-, mynda- og atriðaorðaskrá auk frágangs á heimildum eins og fundargerðabókum og fjallskilaseðlum. Ég er einnig með orða- og hugtakaskýringar sem eru hugsaðar fyrir þær kynslóðir sem hafa ekki tengingu við gamla tungutakið í kringum sauðfjárbúskapinn. Þar er til dæmis útskýring á „beitarhúsi“, „fúlgu“, „að liggja við opið“, „fjallskilastjóri“ og „töfludráttur“. Þetta eru hugtök mörg hver sem voru fólki mjög töm en eru ekki lengur,“ útskýrir Ólafur.

Örsögur lyfta bókinni upp

Frásögn bókarinnar er í þriðju persónu, en Ólafur segir að hún sé brotin upp með örsögum þar sem hann segir persónulega frá minnisstæðum atburðum. „Þær lyfta efni bókarinnar mikið upp,“ segir hann.
Auk ráðunautastarfa sinna fyrir Bænda­samtök Íslands hefur Ólafur í seinni tíð unnið talsvert starf í þágu Slow Food Reykjavík-hreyfingarinnar og lífrænnar land­búnaðar­framleiðslu.

„Já, einhvern veginn töluðu þessar hugsjónir beint til mín. Þarna er einhver náttúruleg tenging sem kannski á rætur sínar að rekja til mikilvægi hugmyndanna um verndun líffræðilegs fjölbreytileika, sem eru í hávegum hjá þessum hreyfingum.“

Menningarverðmæti Fjáreigendafélagsins

Hann telur mjög mikilvægt að Fjáreigendafélagið haldi áfram að starfa innan borgarmarka og viðhaldi hefðinni; félagið sé í raun menningarverðmæti og hluti af menningarsögu Reykjavíkur.

„Þetta er eina höfuðborgin í heiminum sem hefur fjárhúsahverfi og er með aðild að bæði afrétti og lögskilarétt,“ segir Ólafur að lokum.

Örsaga úr bókinni:
Sauðataðið og blómagarðurinn fagri í Suðurgötu 6

[...] Í Morgunblaðinu 11. mars 1997 birtist myndskreytt viðtal Önnu G. Ólafsdóttur við Brian D. Holt, ræðismann Breta á Íslandi, í þætt­inum „Húsið og garðurinn“ undir fyrirsögninni „Vin í miðbænum“. Hafði Brian og kona hans, Guðrún Friðriksdóttir, þá búið í Suðurgötu 6 í Reykjavík í 20 ár og ræktað rómaðan blómagarð, mest með fjölærum blómum. Brian, sem var ættaður frá Norður-Írlandi þar sem ræktunarmenning er rótgróin, sagði í viðtalinu að ekkert ann­arra áhugamála sinna jafnaðist á við garðrækt. Blómagarðurinn í Suðurgötu 6 var sannkallað augna­yndi borgarbúa á vorin og sumrin fram um aldamótin. Spurður um áburðargjöf og fleira sagðist Brian reyna að komast hjá því að nota kemískan áburð í garðinum en bætti síðan við:

Ég fæ alveg hreint fyrsta flokks kindaskít hjá Ólafi Dýrmundssyni, ráðunauti, helli á hann vatni og vökva með því gróðurinn.

Þannig tengdist þessi orðlagði skrautgarður sauðfjárbúskap í Reykjavík. Við Brian höfðum kynnst þegar hann var að ­aðstoða mig við að sækja um skólavist í háskólum á Bretlandseyjum forðum daga. Hann sótti til mín sauðatað úr fjárhúsunum eftir þörfum og síðast flutti ég það heim til hans í Suðurgötuna. Gaman var að ræða við Brian um garðyrkjuna og ­margt fleira því hann var fróður, glaðsinna og sögumaður góður.

Tónlistarkennari hlaut menningarverðlaun
Líf og starf 25. júlí 2024

Tónlistarkennari hlaut menningarverðlaun

Tónlistarkennarinn Marika Alavere hlaut menningarverðlaun Þingeyjarsveitar árið ...

Telur árangurinn á EM viðunandi
Líf og starf 23. júlí 2024

Telur árangurinn á EM viðunandi

Evrópumótinu í bridds lauk í síðustu viku í Herning í Danmörku. Ísland sendi út ...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 22. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...

Kóngurinn í Skagafirði
Líf og starf 22. júlí 2024

Kóngurinn í Skagafirði

Jón Arnljótsson, sauðfjárbóndi á Ytri- Mælifellsá í Skagafirði, hefur lengi veri...

Safnar saman þekkingu um alþýðulækningar
Líf og starf 18. júlí 2024

Safnar saman þekkingu um alþýðulækningar

Skoða á hefðir og notkun óhefðbundinna lækninga á Íslandi í norrænni rannsókn. A...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 18. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 15. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn er eitthvað órór þessa dagana enda einhver stífla á verkefnum í krin...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 12. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...