Byrjandi leggur skúrk
Byrjendur í bridds fara stundum varlegar í hindranasagnir en hinir sem lengra eru komnir. Fyrir kemur að „vitleysurnar“ skila góðu skori! Í sumarbridds í Síðumúlanum kom upp spil fyrir skemmstu þar sem þú ert fyrst(ur) á mælendaskrá á hagstæðum hættum. Þú tekur upp ÁKT8742, eyðu í hjarta, einspil í tígli og G8652 í laufi. Á hverju opnarðu?
Flestir byrjendur í bridds láta duga að telja spaðana sína og minnast þess að á briddsnámskeiðum kemur fram að með sexlit skuli opna á öðru sagnstigi. Með sjölit á því þriðja, með áttlit á fjórða sagnstiginu. Að því gefnu að ekki sé mikið af hápunktum. Það sem hefur þá kannski gleymst að segja byrjendunum er að ef fimmlitur fylgir með sexlit er eðlilegt að hækka hindrunina um eitt sagnstig sem þýðir að í spili dagsins er eðlilegt að opna á fjórum spöðum. Doktor Ingi Agnarsson var óheppinn í sumarbriddsinum þetta kvöld. Kannski vegna þess að hann var með byrjendur sem andstæðinga? Hann sat í vestur með áttlitinn í tígli (sjá stöðumynd) og kónginn annan í hjarta. Andstæðingur hans af byrjendakyni á hægri hönd lét duga að opna á 3 spöðum en ekki fjórum eins og nánast allur salurinn. Ingi stökk í 5 tígla. Makker Inga vissi ekki hvað ætti að melda en lyfti eftir umhugsun í slemmuna sem fór niður vegna legunnar.

Bridgeþáttur Bændablaðsinns sendi Magnúsi Magnússyni, landsliðsmanni í bridds, erindi um þetta spil og bað hann að finna skúrkinn við borðið! Ekki kom á óvart að samkvæmt áliti Magnúsar sat skúrkur spilsins í austur, umsjónarmaður þáttarins. Magnús segist reyndar telja að í sveitakeppni „komi til greina“ að lyfta 5 tíglum í 6 eftir þessar sagnir en honum fannst óþarfi í tvímenningi að leyfa ekki bara 5 tíglum að standa.
Þar sem opnað var á fjórum spöðum í suður gengu sagnir nánast alls staðar eins: 4sp-5tíglar-5sp-dobl og spilað.
Byrjendurnir í NS fengu því nánast hreinan topp fyrir hina hóflegu hindrun. En Ingi sat eftir sviðinn, með andstæðing beint fyrir framan og einnig til beggja handa!
Umsjón: Björn Þorláksson,
bjornthorlaksson[hjá]gmail.com
