ListaVestrið er vettvangur fyrir samtímalist og menningarviðburði á Vestfjörðum.
ListaVestrið er vettvangur fyrir samtímalist og menningarviðburði á Vestfjörðum.
Mynd / Aðsend
Menning 6. júlí 2026

ListaVestrið haldin í fimmta sinn

Höfundur: Þröstur Helgason

ListaVestrið, menningarhátíð á Flateyri, fer í ár fram dagana 11. – 19. júlí 2026 og verður þá haldin í fimmta sinn. Opnun hátíðarinnar fer fram 11. júlí kl. 15.00 á Sólbakka. Alls taka 15 listamenn þátt í ListaVestrinu í ár.

ListaVestrið er vettvangur fyrir samtímalist og menningarviðburði á Vestfjörðum. ListaVestrið sameinar starfsemi þriggja sýningarrýma á Flateyri, Gallerísins Undir brúnni, Gömlu Slökkvistöðvarinnar og Tanksins á Sólbakka, sem öll hafa undanfarin ár staðið fyrir listviðburðum, sýningum og opnunum. 

Á aðaldagskrá ListaVestursins í sumar verða fjórar myndlistarsýningar sem endurspegla ólíkar nálganir og breidd innan íslenskrar samtímamyndlistar. Í Gömlu Slökkvistöðinni munu Jón Óskar og Hulda Hákon sýna verk sín þar sem efniskennd, litur og rými fléttast saman í heildstæða upplifun. Undir brúnni mun Krassasig (Kristinn Arnar Sigurðsson) gera staðbundna innsetningu sem nýtir sérkenni rýmisins og opnar á nýja skynjun á umhverfi og samhengi staðarins. Í Tankinum (neðri hæð) sýna Ísfirðingarnir og systkinin Gunnar og Rannveig Jónsbörn verk sín sem og föður þeirra, Jóns heitins Sigurpálssonar. Á efri hæð Tanksins sýna svo þeir Einar Örn Benediktsson tón- og myndlistarmaður auk þess sem Jóel Pálsson saxafónleikari flytur hljóðverk sitt.

Sem fyrr verða, auk ofangreindra sýninga, fjöldi annarra innsetninga og sýninga settar upp víða á Flateyri, sem utandagskrár/“off-venue” sýningar. Þá verður gestum hátíðarinnar boðið að spreyta sig á að mála fjallið Þorfinn sem stendur handan fjarðar.

Nánari upplýsingar um dagskrá ListaVestursins í ár má finna á samfélagsmiðlum og vef hátíðarinnar.

Í ár er jafnframt bryddað upp á nýjung sem er barnadagskrá í formi Listasmiðju ListaVestursins. Um er að ræða þriggja daga listasmiðju 14. – 17. júlí í Samkomuhúsinu á Flateyri fyrir börn á aldrinum 9–13 ára, undir leiðsögn Fannars Arnars Finnssonar og Einars Árnasonar. Í listasmiðjunni munu börnin kanna umhverfi sitt á Flateyri með skissubókum, vinna áfram með hugmyndir sínar í samvinnu við leiðbeinendur og önnur börn og setja svo verk sín fram á lokasýningu Listasmiðju ListaVestursins.

Skylt efni: menning

Skoðað í pakkann
Líf og starf 3. júlí 2026

Skoðað í pakkann

Á Alþingi árið 1730 bauð presturinn í Reykjadal í Hrunamannahreppi amtmanni og S...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 29. júní 2026

Lausn á vísnagátunni

Hér er lausnin á vísnagátunni úr 12. tölublaði Bændablaðsins.

Lausn á myndagátu í 12. tbl
Líf og starf 29. júní 2026

Lausn á myndagátu í 12. tbl

Núna báðum við lesendur um að bera kennsl á þessa húsaþyrpingu þar sem ekki hefu...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 25. júní 2026

Stjörnuspá vikunnar

Krabbinn fær óvæntar upplýsingar sem leggjast þungt á hann, en þá er gott að min...

Mæður og dætur sýna verk  í gömlu haughúsi
Líf og starf 25. júní 2026

Mæður og dætur sýna verk í gömlu haughúsi

Menningarlífið í sveitum landsins blómstrar á sumrin. Myndlistarsýningin Sleppa ...

Lausn krossgátunnar úr 11. tölublaði
Líf og starf 25. júní 2026

Lausn krossgátunnar úr 11. tölublaði

Hér er lausn krossgátunnar úr 11. tölublaði Bændablaðsins.

Hátíðahöld og skemmtanir næstu vikurnar
Líf og starf 24. júní 2026

Hátíðahöld og skemmtanir næstu vikurnar

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið en í næstu b...

Brotist úr viðjum hefðanna
Líf og starf 23. júní 2026

Brotist úr viðjum hefðanna

Sagan sýnir að togstreitan á milli þæginda og fegurðar í fatnaði er alls ekki ný...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f