Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Jóhann, Vignir, Sigurður Bragi frá Green Diamond og Björn.
Jóhann, Vignir, Sigurður Bragi frá Green Diamond og Björn.
Líf og starf 7. júlí 2026

Skáksumarið hafið

Höfundur: Gauti Páll Jónsson

Skáksumarið 2026 er hafið með pomp og prakt. Teflt er mikið hérlendis ásamt því að Íslendingar eru duglegir að tefla erlendis. Nefna má þátttöku Lenku Ptacnikova á Evrópumeistaramóti kvenna, þátttöku Jóhanns Hjartarsonar, Þrastar Þórhallssonar, Margeirs Péturssonar og Henriks Danielsen á Evrópumóti öldunga, og loks þátttöku Birkis Hallmundarsonar og Guðrúnar Fanneyjar Briem á heimsmeistaramóti barna. Öll þessi mót fara fram í beit og Íslendingar láta sig ekki vanta þar sem keppt er um heims- og Evrópumeistaratitla.

Skemmtilegt boðsmót var haldið fyrir skömmu af þeim félögum í hlaðvarpinu Chess After Dark, Birki Karli Sigurðssyni og Leifi Þorsteinssyni. Boðsmótið var haldið í samstarfi við fyrirtækið Green Diamond sem framleiðir skósóla í Kína. Menn náðu einmitt að sóla sig í góða veðrinu á mótsdegi, þann 20. júní. Tíu af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar tefldu allir við alla, og eftir það fóru fjórir efstu í undanúrslit, þar sem sá sem hafði flesta vinninga mátti velja sér andstæðing. Fór svo að Vignir Vatnar Stefánsson, sem hafði mikla yfirburði í mótinu sjálfu, valdi Örn Leó Jóhannsson. Þá tefldu Jóhann Hjartarson og Björn Þorfinnsson. Að endingu vann Vignir, eftir sigur gegn Erni og síðan Jóhanni, og Björn náði þriðja sætinu eftir sigur gegn Erni. Jóhann í öðru sæti.

Mótið var sýnt beint og fórust tæknimál vel úr hendi hjá Daða Ómarssyni, og Alexander Oliver Mai, mönnunum á bak við tjöldin. Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson, héldu uppi stemningunni í útsendingunni og fengu til sín góða gesti til að spá í spilin, þar á meðal Leif Þorsteinsson.

Í stöðunni sem hér fylgir hafði Björn Þorfinnsson svart gegn sjálfum Jóhanni Hjartarsyni. Smekkleg mannsfórn Björns, 14. … Rd4 snýst um að rýma d4 reitinn til að stugga við riddaranum á e3. Eftir að riddarinn færir sig, eins og gerðist í skákinni, gefst færi á að drepa peðið á g2 með skák og flóðgáttirnar opnast að hvíta kónginum. Birni tókst að vinna þá stöðu. Tölvurnar benda á vörn með 14. …Rd4 15. cxd4 exd4 16. Bb2! Dg5 17. Rf3 Rxg2+ 18. Ke2 Rg2+ með þráskák. Það er þó alls ekki augljóst og var þetta langbesta skák Björns gegn Jóhanni í mótinu, en þeir mættust aftur í undanúrslitum.

Ef lesendur Bændablaðsins luma á áhugaverðum skákum geta þeir haft samband.

Umsjón: Gauti Páll Jónsson

gauti.pj[hjá]hotmail.com

Skylt efni: Skák | Hugaríþrottir

Vísnahornið
Líf og starf 12. ágúst 2026

Vísnahornið

Stuðst fram á stafinn heitir þetta kvæði Rósbergs G. Snædal:

Sumarið er tíminn ...
Líf og starf 12. ágúst 2026

Sumarið er tíminn ...

Falla bringuhár undir sumartískuna 2026? Þegar stórt er spurt.

Teflt utanhúss
Líf og starf 12. ágúst 2026

Teflt utanhúss

Í gamla daga var helsta firmamót Taflfélags Reykjavíkur haldið utanhúss, yfirlei...

Svíinn og þingeyski bóndinn
Líf og starf 12. ágúst 2026

Svíinn og þingeyski bóndinn

Ég hitti þingeyskan bónda fyrir skemmstu, roskinn spilamann sem fylgist töluvert...

Bærinn undir sandinum
Líf og starf 12. ágúst 2026

Bærinn undir sandinum

Haustið 1990 gerðu tveir grænlenskir hreindýraveiðimenn merkilega uppgötvun á af...

Örlög fransk-íslenskra kartaflna
Líf og starf 11. ágúst 2026

Örlög fransk-íslenskra kartaflna

Samkvæmt fréttum sem fara eins og stormsveipur um landsbyggðina og nær heiminn a...

Gíslasafn á Uppsölum
Líf og starf 11. ágúst 2026

Gíslasafn á Uppsölum

Safn Gísla á Uppsölum var opnað á Selárdalshátíð föstudaginn 7. ágúst síðastliði...

Tak hnakk þinn og hest
Líf og starf 10. ágúst 2026

Tak hnakk þinn og hest

Sú hugmynd að leiða saman helstu hryssur, fola og gæðinga landsins á einn stað o...