Vísnahornið
Nú snýst margt um farsímanotkun og net í samskiptum manna á milli. Guðmundur Þorsteinsson, bóndi á Skálpastöðum, orti þessa eitt sinn:
Sála mín glúpnaði andspænis örlagdómi
til almáttugs drottins ég vildi í neyð minni snúa mér
og einhver svaraði yfirveguðum rómi: ,
,Það er enginn notandi með þetta símanúmer.“
Snillingurinn Hjálmar Freysteinsson heitinn læknir, sagði eitthvert sinn: Einn því fylgir ókostur að eiga símann; hættan á að hringt sé í mann.
Fyrir mörgum árum orti Hjálmar á sólstöðuhátíð í Grímsey, þar sem nokkrir hagyrðingar komu saman:
Gestrisnir eru Grímseyingar
og gaman að koma á þennan stað.
Jafnvel heimskustu hagyrðingar,
hljóta að viðurkenna það.
Oft eru umræður á Alþingi nokkuð svo sérstakar og eitthvert sinn orti Hjálmar um ónefnda þingmenn:
Sumir þannig sannfæringu sína tjá,
þeir segja nei og síðan já
og sitja loksins hjá.
Þegar stóðu yfir umræður varðandi álver þurfti bæjarstjórn Hafnfirðinga að ræða þrjú mál tengd álveri og Hafnarfirði. Framsókn átti þá einn fulltrúa í bæjarstjórn, hann sat hjá við afgreiðslu fyrsta máls, en greiddi atkvæði gegn máli tvö og síðan atkvæði með því þriðja. Andrés Kristjánsson, ritsjóri Tímans sálaða, orti þarna um 1968:
Glæst er á skriði flokksins fley
með fræknu liði og snjöllu,
það situr hjá og segir nei
og síðan já við öllu.
Um haus og daus yrkir Þórarinn Eldjárn í kveri sínu Eitt og annað:
Til að geta haldið haus
hefurðu þá völ
þó kunni að vera kvöl
að koma þér upp digrum daus
sem dugar vel í kjöl.
Og Þórarinn segir líka ,,Skárra væri“:
Í öllu heimsins veseni og vosi
er viturlegt að koma sér upp brosi.
Koma auga á allt það sem er skárra
æðra, stærra, hærra, skírra, blárra.
Jón Bjarnason var bóndi í Garðsvík á Svalbarðsströnd um skeið og þótti gamansamur, hann orti um heyþurrk:
Sunnanátt og sólarþey
sérhver bóndi metur.
En til hvers er að eignast hey,
sem eyðist næsta vetur.
Einhvern tímann mun Jón B. hafa ort er rannsóknir sýndu að í erfðamengi Mývetninga fundust gen, sem svipaði til erfðaefnis úlfalda að sögn fróðra:
Enn um furður okkar lands
útlendingar þinga.
Rekja allt til úlfaldans
ættir Mývetninga.
Þegar sameinast var um eina nautstöð, var kynbótanautið Sokki flutt þangað frá sæðingastöðinni á Akureyri. Þegar Sokki hafði lokið sínu var hausinn af honum stoppaður upp og gefinn Eyfirðingum. Mynd var af afhendingunni á forsíðu Freys, þar sem formaður B.Í., Ásgeir Bjarnason í Ásgarði, og Vernharður Sveinsson mjólkursamlagsstjóri voru með hausinn af Sokka. Þá orti Jón Bj.:
Jafnvel þó að Sokki sé
sviptur búki gildum,
sýnir myndin mönnum hve
margt er líkt með skyldum.
Kristján Benediktsson var að leggja flísar á forkirkjugólf og var ósáttur með verkið sem og lit á flísum: Flísalögn er ferlegt puð og flesta hér mun gruna, að aldrei framar gangi Guð gegnum forkirkjuna.
Umsjón: Magnús Halldórsson
mhalldorsson0610[hjá]gmail.com
