Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Birgir Heiðmann Arason, formaður BSE, færir Guðrúnu Huldu Pálsdóttur hvatningaverðlaunin á skrifstofu blaðsins í Borgartúni.
Birgir Heiðmann Arason, formaður BSE, færir Guðrúnu Huldu Pálsdóttur hvatningaverðlaunin á skrifstofu blaðsins í Borgartúni.
Mynd / ÖÞÓ
Líf og starf 26. júní 2023

Bændablaðið hlaut hvatningarverðlaun

Höfundur: Guðrún Hulda Pálsdóttir

Bændablaðið hlaut hvatningarverðlaun Búnaðarsambands Eyfirðinga á dögunum.

Birgir Heiðmann Arason, bóndi á Gullbrekku og formaður BSE, færði starfsmönnum blaðsins handverk Beate Stormo, eldsmiðs og bónda.

Hér má sjá verðlaunin, pizzaskera smíðaðan af eldsmiðnum Beate Stormo.

Í ræðu við afhendingu verð­launanna fór Birgir yfir ástæður þess að Bændablaðið varð fyrir valinu í ár: „Fyrir 28 árum voru nokkur umbrot í félagsmálum bænda, eins og reyndar í öll þau ár sem má rekja þá sögu að bændur hittist á fundum til að berja sér á brjóst og ígrunda með hvaða hætti sé hægt að bæta hag framleiðenda, efla framfarir og stuðla að uppbyggingu sveitanna.

En á Búnaðarþingi fyrir þessum 28 árum, sem var hið fyrsta eftir sameiningu Búnaðarfélags Íslands og Stéttarsambands bænda, barst þingfulltrúum í hendur blað í svarthvítu, þann 14. mars 1995, sem var fyrsta eintak Bændablaðsins. Fram að því höfðu verið gefin út árleg rit fyrir hverja búgrein, eins og t.d. Nautgriparæktin, Sauðfjárræktin og síðan Freyr sem var fagrit bænda og nánast þeir einir lásu.

En hvað varð til þess að ákvörðun var tekin um að gefa út blað á tveggja vikna fresti í dagblaðsformi? Þar er best að vitna í Jón Helgason, alþingismann og ráðherra, og þá fráfarandi formann Búnaðarfélags Íslands, „að sjálfsögðu hinar miklu þjóðfélagsbreytingar, sem orðið hafa á síðustu árum“.

Frá því Bændasamtökin hófu útgáfu Bændablaðsins 1995 hefur blaðið dafnað og eflst mjög. Að jafnaði er það nú gefið út í 33 þúsund eintökum 23 sinnum á ári og blaðsíðufjöldinn vaxið jafnt og þétt. Lengi var það 56­64 síður en er í dag 72 blaðsíður. Því er dreift frítt með pósti á öll lögbýli landsins og liggur auk þess frammi á meira en 400 stöðum til dreifingar.

Það er snúið að meta til fulls hvaða áhrif blaðið hefur haft á umræðu og afstöðu almennings til landbúnaðar, en ljóst er að þau eru mikil og ómetanleg, auk þess að efla skoðanaskipti og kynningu á fleiru en landbúnaði.

Ekki má gleyma vef Bænda­blaðsins, bbl.is, sem var hleypt af stokkunum árið 2007 og endur­ nýjaður eftir þörfum síðan.
Fjórir ritstjórar hafa starfað við Bændablaðið. Áskell Þórisson var sá fyrsti, þá Þröstur Haraldsson, síðan Hörður Kristjánsson og núverandi ritstjóri er Guðrún Hulda Pálsdóttir. Allir hafa ritstjórarnir haldið vel á spilum og blaðið dafnað í þeirra höndum undir leiðsögn og eftirfylgni eigandans, Bændasamtaka Íslands.

Allt sem gert er byggir á sínum grunni og þar á meðal okkar góða og verðmæta blað og enginn hlutur er betri en þeir sem að hlúa. Starfsfólk Bændablaðsins undir stjórn Guðrúnar Huldu halda vel á þessum verðmætum sem í höndum þeirra er og samkvæmt skoðanakönnunum, m.a. hjá Gallup á liðnum vetri, er Bændablaðið nú um stundir mest lesna blað landsins.

Bændablaðið hlýtur Hvatningar­verðlaun BSE fyrir frábæra kynningu á mikilvægi landbúnaðar og á störfum bænda og fyrir að vera sá öflugi umræðuvettvangur sem dæmin sanna.“

Bændablaðið þakkar Búnaðar­sambandi Eyfirðinga kærlega fyrir verðlaunin sem munu hvetja okkur áfram í þeirri vegferð að vera sterkur málsvari bænda og landsbyggðar. Mun þetta vera í annað sinn sem BSE færir þau aðila utan Eyjafjarðar, en í fyrra hlaut Karólína Elísabetardóttir í Hvammshlíð verðlaunin.

Tónlistarkennari hlaut menningarverðlaun
Líf og starf 25. júlí 2024

Tónlistarkennari hlaut menningarverðlaun

Tónlistarkennarinn Marika Alavere hlaut menningarverðlaun Þingeyjarsveitar árið ...

Telur árangurinn á EM viðunandi
Líf og starf 23. júlí 2024

Telur árangurinn á EM viðunandi

Evrópumótinu í bridds lauk í síðustu viku í Herning í Danmörku. Ísland sendi út ...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 22. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...

Kóngurinn í Skagafirði
Líf og starf 22. júlí 2024

Kóngurinn í Skagafirði

Jón Arnljótsson, sauðfjárbóndi á Ytri- Mælifellsá í Skagafirði, hefur lengi veri...

Safnar saman þekkingu um alþýðulækningar
Líf og starf 18. júlí 2024

Safnar saman þekkingu um alþýðulækningar

Skoða á hefðir og notkun óhefðbundinna lækninga á Íslandi í norrænni rannsókn. A...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 18. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 15. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn er eitthvað órór þessa dagana enda einhver stífla á verkefnum í krin...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 12. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...