Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Af heimasíður RML er auðvelt að skrá hross til sýningar.
Af heimasíður RML er auðvelt að skrá hross til sýningar.
Mynd / Skjáskot af vef RML
Fréttir 18. maí 2020

Skráningar á kynbótasýningar vorsins

Höfundur: Halla Eygló Sveinsdóttir, ráðunautur, Búfjárræktar- og þjónustusvið RML - halla@rml.is
Opnað var fyrir skráningu á kynbótasýningar vorsins í byrjun maí og er það nánar auglýst á heimasíðu RML. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum heimasíðu RML www.rml.is en á forsíðunni er flýtihnappur sem skráð er í gegnum. Að þessu sinni er sett í loftið nýtt skráningakerfi og vonum við að það reynist vel. Á forsíðu WorldFengs er einnig hægt að skrá hross til sýningar. 
 
Í töflunni hér að neðan má sjá síðasta skráningardag á hverja sýningu en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umráðamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Til að fá aðstoð er hægt að hringja í  síma 516-5000, eða senda tölvupóst á netföngin halla@rml og hross@rml.is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umráðamenn til að hafa tímann fyrir sér frekar en hitt þegar kemur að skráningum á sýningarnar. 
 
 
Í ljósi óvenjulegs ástands munum við bregðast við og fækka dögum á sýningum ef skráningar eru færri en búist er við og sameina sýningar ef þess gerist þörf. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross. Gerð er undantekning á þessu fyrir sýninguna á Stekkhólma á Fljótsdalshéraði en þar verða að nást 15 skráningar svo sýning verði haldin. Í töflu hér á síðunni má sjá sýningar vorsins og hvenær er síðasti skráningar- og greiðsludagur. 
 
Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðunni www.rml.is, þegar þær eru tilbúnar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu. 
 
Sýningargjöld og fleira
 
Verð fyrir fullnaðardóm er 28.500 kr. en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 21.900 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð. Hægt er að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er hægt að greiða með millifærslu. Um leið og hrossið hefur verið skráð birtist það strax inn á viðkomandi sýningu. Ef það gerist ekki er rétt að kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis við skráninguna. 
 
Aðeins þau hross sem hlotið hafa fullnaðardóm á sama sýningarári er hægt að skrá eingöngu í reiðdóm.
Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Endurgreitt er 15.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 12.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.  
 
Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn. 
 
Minnum á eftirfarandi:
  • Ekki er hægt að skrá hryssur eða geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF. 
  • Allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra. 
  • Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.
  • Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerk
  • Ef örmerki finnst ekki í hrossi sem mætir til dóms ber að örmerkja það á staðnum og taka stroksýni úr nös til DNA-greiningar á ætterni, með þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir eiganda/forráðamann. Örmerki og DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að.
Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar. Hrossum, sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði, verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni án undantekninga. 
 
Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna á heimasíðunni www.rml.is eða hringja í síma 516-5000 hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is.
 
Afurðahæsta sauðfjárbúið í níu skipti á síðustu tíu árum
Fréttir 26. apríl 2024

Afurðahæsta sauðfjárbúið í níu skipti á síðustu tíu árum

Gýgjarhólskot í Biskupstungum var útnefnt ræktunarbú síðasta árs á fagfundi sauð...

Sumarkomunni fagnað
Fréttir 25. apríl 2024

Sumarkomunni fagnað

Að venju verður opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á sumardaginn fyrsta, fim...

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd
Fréttir 24. apríl 2024

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd

Síðan 2019 geta bændur og aðstoðarfólk notað fjölda leiðbeiningarmyndbanda, sem ...

Afurðamestu sauðfjárbúin
Fréttir 24. apríl 2024

Afurðamestu sauðfjárbúin

Í niðurstöðum skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir síðasta ár, sem eru birtar hér í...

SS segir of flókið að upprunamerkja
Fréttir 24. apríl 2024

SS segir of flókið að upprunamerkja

Sláturfélag Suðurlands (SS) sér ekki hag í að upprunamerkja svínakjöt frá Korngr...

Hraðhlaðið við Galdrasafnið
Fréttir 23. apríl 2024

Hraðhlaðið við Galdrasafnið

Orkubú Vestfjarða hefur sett upp nýja 400 kW hraðhleðslustöð við Galdrasafnið á ...

Hámarksmagn minnkað í matvælum
Fréttir 23. apríl 2024

Hámarksmagn minnkað í matvælum

Innan skamms taka gildi breytingar á reglugerð þar sem leyfilegt hámarksmagn nít...

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland
Fréttir 22. apríl 2024

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland

Bæði þjónustu- og vöruviðskipti við Indland munu að öllum líkindum aukast á næst...